HVAÐA "SKÍT" ER VERIÐ AÐ REYNA AÐ FELA?????????

Það er alveg á kristaltæru að félagið var langt frá því að vera gjaldfært þegar það var úrskurðað gjaldþrota.  Séu stjórnarmenn og fjármálastjóri að halda því fram, er ekki annað hægt en að stórefast um að þetta fólk hafi verið fært um að gegna því starfi sem það átti að gegna (og þar af leiðandi sé það ekki undarlegt að reksturinn endaði eins og hann gerði).  Síðustu mánuðina sem félagið var í rekstri var lítið annað gert en að safna skuldum og til allrar hamingju var gripið inn í og reksturinn stöðvaður áður en meira tjón hlaust af og þá er spurningin hvort þessa síðustu mánuði, í ævi félagsins, fór ekki fram glæpsamlegt athæfi og hvar ábyrgðin á því athæfi liggi???????


mbl.is WOW hafi verið gjaldfært
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Er þetta ekki svipaður skítur og var í bankahruninu???

Sigurður I B Guðmundsson, 6.3.2020 kl. 19:29

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Jú, en það er spurningin hvort eigi að horfa framhjá því í þetta skipti??????????

Jóhann Elíasson, 6.3.2020 kl. 19:37

3 Smámynd: Björn Ragnar Björnsson

Gjaldþrot Wow er ekki að neinu leiti líkt gjaldþroti bankanna. Það var t.a.m. raunverulega hægt að forða Wow frá gjaldþroti en sá möguleiki var ekki fyrir hendi í tilfelli bankanna. Wow air var atvinnurekstur í raunhagkerfinu sem er einnig allt annað en um var að ræða í tilfelli bankanna. Kostnaður við að bjarga Wow var brotabrot af þeim skaða sem íslenskur þjóðarbúskapur hefur orðið fyrir af falli félagsins.

Björn Ragnar Björnsson, 7.3.2020 kl. 21:13

4 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sæll Jóhann, Ég er sammála Sigurði þér og Birni hér að ofan.

En á meðan peninga elítan er við lýði, þá verður Ísland bananalýðveldi, okkar hagsmunir fara ekki saman við þeirra hagsmuni!

Við erum ekki en búin að borga útrásarsukkið, þannig að okkur munaði ekki um að taka eitt stykki flugfélag líka!

Kær kveðja frá Eyjum.

Helgi Þór Gunnarsson, 8.3.2020 kl. 12:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband