ÞÁ SETJA STUÐNINGSMENN GUÐNA "STÓRU SKÍTDREYFARANA" AF STAÐ......

En það verður kannski að skoða hlutina í samhengi.  Helgi sakar Guðmund Franklín um einræðistilburði og fljótfærni.  En voru það ekki einræðistilburðir hjá Helga, þegar hann sagði á Útvarpi Sögu að það ætti EKKI að setja Orkupakka 3 í þjóðaratkvæðagreiðslu vegna þess að þjóðin væri ekki nógu og vel inni í málunum EN HANN VÆRI VEL UPPLÝSTUR UM MÁLIÐ OG ÞVÍ ÆTTI ÞINGIÐ AÐ SJÁ UM ÞETTA.  Þannig að menn ættu aðeins að skoða sjálfa sig áður en þeir fara að kasta grjóti úr glerhúsi.  En stuðningsmenn lýta þannig á að Helgi Hrafn sé einn af þessum stóru og orð hans hafi eitthvert vægi.  Ef Helgi Hrafn er "rjóminn" af stuðningsmönnum Guðna, þá er Guðni í slæmum málum.......


mbl.is Helgi Hrafn líkir Guðmundi við Trump
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Heill og sæll Jóhann

Þegar menn hafa ekki annað máli sínu til framdráttar þá er gripið til þess sem þú lýsir hér að ofan, menn halda að það hjálpi málflutningi þeirra.

En að lýsa Guðmundi við Trump, það hlýtur að vera heiður fyrir hann, Trump hefur áorkað meiru en margir fyrrum forsetar á undan honum gerðu til samans, jafnvel þó þeir hafi setið tvö kjörtímabil.

Tómas Ibsen Halldórsson, 18.6.2020 kl. 11:24

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þakka þér fyrir innlitið Tómas.  Satt segirðu þetta er alveg ótrúleg "taktík" hjá þessu liði og svona skrípaleikur getur ekki verið framboði Guðna til framdráttar............

Jóhann Elíasson, 18.6.2020 kl. 11:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband