ENGINN SPARNAÐUR EÐA NIÐURSKURÐUR HJÁ "BÁKNINU"...........

Á meðan almenningur og einkageirinn verða að fara í "blóðugan" niðurskurð og "fordæmalaust" aðhald, blæs opinberi geirinn út, eins og púkinn á fjósbitanum.  Það lýtur út fyrir að það sem er alltaf verið að tala um AÐ ÞAÐ BÚI TVÆR ÞJÓÐIR Í ÞESSU LANDI sé bara alveg hárrétt:  ÞAÐ ER OPINBERRI GEIRINN, sem samanstendur af stjórnmálaelítunni og "viðhengjum" þeirra OG SVO ALMENNINGUR OG EINKAGEIRINN, sem sér um að opinberi geirinn, geti fleytt rjómann ofan af landsframleiðslunni og megnið af undanrennunni og svo fær almenningur og einkageirinn lítinn hlut af undanrennunni og sá hlutur er alltaf að minnka.......


mbl.is Nærri níu nýjar nefndir í hverjum mánuði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er eins og ákvörðun sé sjaldan tekin í stærri málum nema það fari fyrst í nefnd,ætli það sé gert sér til afsökunar ef kostnaður er mikill við ákvörðunina, síðan eru nefndarlaun skattfrjáls og yfirleitt kosnir í þær einhverjir flokksgæðingar eða grasrótarmenn í stjórnmálunum,niðurstaðan er að verið er að hygla einhverjum góðum stuðningsmönnum flokkanna á kostnað þjóðarinnar.Yfirstjórn þjóðfélagsins er alltof dýr og þess vegna er ekki hægt að láta öryrkja og ellilífeyrisþega njóta betri kjara,nægir fjármunir eru einnig til að bæta við húsakynni alþingismanna uppá einhverja milljarða þrátt fyrir nauðsynlegan niðurskurð í covid niðurskurði.Það mætti byrja á því að fækka þessum þingmönnum okkar,síðan þurfa þeir ekki að fá 4 mánuði í sumarfrí eins og gert hefur verið undanfarin ár.Hámarki 30 þingmenn og þeir vinni eðlilegan vinnutíma eins og aðrir.

Sigurgeir Árnason (IP-tala skráð) 8.10.2020 kl. 10:09

2 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Væri til í að vera í vellaunuðu "bloggnefnd" með þér og Jens Guð!!!

Sigurður I B Guðmundsson, 8.10.2020 kl. 10:37

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já Sigurgeir, þetta er alveg stórfurðuleg forgangsröðun, sem er í gangi í þessu þjóðfélagi okkar.  Þessi tillaga þín um að fækka þingmönnum niður í 30 finnst mér alveg frár, reyndar finnst mér að það eigi að ganga lengra 15-20 þingmenn er mikið meira en nóg til að staðfesta lögin frá ESB, ég get ekki séð að þeir geri mikið meira restin fer að miklu leiti bara í blaður.........

Jóhann Elíasson, 8.10.2020 kl. 11:56

4 identicon

Það væri gaman að vita hversu margir þingmenn eru hjá öðrum þjóðum og fá þannig samanburð,t.d. Bretar eru með ca.300 þingmenn en þar búa milljónir,Bandaríkin er milljónaþjóð og hvað ætli séu margir þingmenn þar,og hvað skyldi kostnaður nefndarmanna vera mikill á alþingi Íslands,þetta er tölfræði sem hægt er að velta vöngum yfir,er nær því viss um að Ísland fer illa útúr þeim samanburði.En allt virðist leyfilegt ef það kemur frá pólitíkinni og flokksgæðingum hennar.

Sigurgeir Árnason (IP-tala skráð) 8.10.2020 kl. 12:20

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég veit nú ekki svo sniðugt, Sigurður?  En kannski væri "bloggnefnd" ekkert síðri kostur en margar nefndir, sem eru skipaðar????

Jóhann Elíasson, 8.10.2020 kl. 12:23

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

"Það væri svo sniðugt, Sigurður? átti þetta að vera og biðst ég afsökunar á þessari fljótfærni minni.....

Jóhann Elíasson, 8.10.2020 kl. 12:26

7 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Svo rétt hjá þér Jóhann. Alveg til háborinnar skammar. Svo er þetta lið, sem er á ríkisspenanum með gulltryggðar

lífeyrisgreiðslur og alltaf hærri en almenningur fær.

Varðandi athugasemd frá Sigurgeir #4, þá búa 5,8 milljón manns í Danmörku.

Þar eru til staðar 179 þingsæti sem kemur út sem 1 þingaður fyrir hverja 32.400 íbúa.

Miðað við það, ætti Ísland að vera með 11 en ekki 63.

M.b.kv.

Sigurður Kristján Hjaltested, 8.10.2020 kl. 13:00

8 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þakka þér fyrir þessar upplýsingar Sigurður Kristján Hjaltested það var flott að fá að vita þetta.

Jóhann Elíasson, 8.10.2020 kl. 13:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband