"SJÁLFSAFGREIÐSLUKASSAR" ............

Það virðist vera nokkuð ljóst að það er ætlunin að "beina" viðskiptavinum verslana inn á það að fara að nota þessa kassa hvort sem þeir vilja það eða ekki.  Ég versla þó nokkuð mikið í Bónus á Fitjum í Njarðvíkum og hef eindett mér það að NOTA EKKI ÞESSA SJÁLFSAFGREIÐSLUKASSA (reyndar hef ég tvívegis gert það því ég vildi nú kynna mér aðeins hvað væri þarna á ferðinni, því ekki er hægt að gagnrýna eitthvað sem maður hefur ekki kynnt sér).  Ekki get ég með góðri samvisku sagt að ég hafi fengið jákvæða upplifun af því að nota þessa "sjálfsafgreiðslukassa".  Þetta var svifaseint og alveg sérstaklega ómanneskjulegt umhverfi, greinilegt var að það átti eftir að sníða vankanta af þessu og þegar ég var þarna sá ég ekki betur en að fólk væri orðið verulega pirrað á því skitteríi sem var að koma upp og þótti mér það nokkuð augljóst að "kerfið" var hreinlega EKKI TILBÚIÐ til notkunar og loksins þegar "ferlinu" var lokið sá ég að ég hafði ekki fengið neinn afslátt fyrir að nota þetta kerfi en ég álít að ég sé búinn að greiða fyrir þjónustuna sem ég fæ á afgreiðslukassanum og ef ég sleppi þeirri þjónustu og vinn þetta sjálfur með því að afgreiða mig sjálfur finnst mér það liggja í augum uppi að ég eigi að fá afslátt af vöruverðinu.  En samt sem áður virðist eiga að NEYÐA fólk til að nota þetta.  Ég hef verið staddur í Bónus á Fitjum þar var LÖÖÖÖÖNG biðröð við afgreiðslukassa en ENGINN viðskiptavinur var við "sjálfsafgreiðslukassana en samt sem áður voru ÞRÍR starfsmenn á því svæði og ekki datt þeim í hug að opna annan afgreiðslukassa.  Sama hef ég upplifað í Krónunni á Fitjum, þar var LÖÖÖNG biðröð við afgreiðslukassann (það eru tveir afgreiðslukassar þara en bara einn í gangi).  Það var ungur maður á kassanum og þegar hann var inntur eftir því hvort ekki ætti að opna hinn kassann svaraði hann því til að hann héldi að sá kassi væri bilaður.  Ég held það ætti nú að bíða með það að neyða fólk til að nota þessa "sjálfsafgreiðslukassa" þar til þeir eru farnir að "virka" almennilega.........


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Þetta er bara þróunin og maður verður bara að sætta sig við það saman ber t.d. tékkheftið þegar það datt út.

Sigurður I B Guðmundsson, 8.7.2021 kl. 16:16

2 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Sæll Jóhann.

Það er allt gert til að slíta í sundur persónuleg samskipti fólks, þetta sjáum við í matvöruverslunum, í bönkum og víðar. Allt á að gera með rafrænum hætti þar sem einstaklingurinn er í samskiptum við tölvur. Þetta sáum við í tengslum við kórónuveiruna, fólk átti að hafa sem minnst samskipti við annað fólk o.s.fr. Allt er þetta liður í að eyðileggja eðlileg mannleg samskipti.

Tómas Ibsen Halldórsson, 8.7.2021 kl. 16:18

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Mér finnst nú algjört lágmark að tækin séu farin að VIRKA þegar þau eru innleidd.  Eða er það kannski ekki hluti af þróuninni??????

Jóhann Elíasson, 8.7.2021 kl. 17:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband