Í TILEFNI KOSNINGA TIL ALÞINGIS Í HAUST................

Jæja það er ekki seinna að vænna að fara að undirbúa sig fyrir kosningarnar í haust og skoða hvað er í boði og hvernig (að mínu mati) flokkarnir hafa staðið sig á yfirstandandi kjörtímabili og til hvaða „afreka“ þeir eru líklegir:

 

SJÁLFSTÆÐISFLOKKUR:  Sú var tíðin að  þessi flokkur bar höfuð og herðar yfir ALLA aðra stjórnmálaflokka á Íslandi og virtist hafa hagsmuni lands og þjóðar í fyrirrúmi í sínum gjörðum og margt mjög gott sem þessi flokkur stóð fyrir.  En þetta er liðin tíð og stóryrt sagorð eins og BÁKNIÐ BURT og STÉTT MEÐ STÉTT ásamt ýmsu fleiru er hjómið eitt í dag og algjörlega merkingarlaust.  Rétt er að minna á það að núverandi formaður flokksins ásamt öðrum þingmanni flokksins Illuga Gunnarssyni, þáverandi þingmanni flokksins og fyrrum Menntamálaráðherra, lofgrein í Morgunblaðið, um ESB (það skal tekið fram að þetta var árið 2006 og þá var Bjarni Benediktsson EKKI orðinn formaður flokksins) EN SÍÐAN ÞETTA VAR HEFUR BJARNI BENEDIKTSSON ALDREI GEFIÐ UPP  AFSTÖÐU SÍNA TIL ESB.  EINA SEM HANN SEGIR ER „AÐ ESB AÐILD SÉ EKKI Á DAGSKRÁ NÚNA“ og ekki fæst hann til að afturkalla umsókna um aðild að ESB, sem var send til Brüssel í júní 2009, bara það vekur upp efasemdir um heilindi hans í þessum málum.

Sannir SJÁLFSTÆÐIMENN hljóta að vilja gleyma þessu kjörtímabili sem allra fyrst lokkurinn var undir „járnhæl“ VG mest allt kjörtímabilið og sem dæmi má nefna að Bjarni (formaður flokksins) lét Kötu litlu svinbeigja sig varðandi þá kröfu að Sigríður Andersen færi frá vegna þess að hún vildi standa í lappirnar í hælisleitendamálunum og Umhverfisráðherra fékk nokkurn veginn alveg að leika lausum hala.  Það var ekki fyrr en HÁLENDISÞJÓÐARÐURINN kom til umræðu að flokkurinn tók aðeins við sér og stöðvaði það mál enda farið að hilla í kosningar.   Margt fleira væri hægt að tína til en þetta er nú þegar orðið of langt um þennan flokk (það verður að búast við því að einhver eigi eftir að nenna að lesa þetta).

Niðurstaðan er sú að ég get ekki með nokkru móti séð að þessi  flokkur komi nokkuð til með að breytast þannig að hann eigi það skilið að maður fórni sínu atkvæði í hann.

 

FRAMSÓKNARFLOKKUR:  Hvað er hægt að segja um hann?  Kannski er fátt um hann að segja nema að hann er þarna.  Ráðherrar flokksins hafa siglt nokkuð lygnan sjó ákjörtímabilinu nema Ásmundur Einar Daðason hefur verið að færa sig upp á skaftið í hælisleitendamálunum en sem betur fer stöðvuðu Sjálfstæðimenn frumvarp hans um að veita hælisleitendum sama rétt og kvótaflóttamönnum.  En formaður flokksins lét borgarstjórann teyma sig á „asnaeyrunum“ allt kjörtímabilið varðandi þennan SAMGÖNGUSÁTTMÁLA og verður ekki séð fyrir endann á þeirri vitleysu allri og ekki virðist maðurinn geta tekið af skarið með Reykjavíkurflugvöll heldur.  KANNSKI AÐ EITTHVAÐ SÉ TIL Í  ÞVÍ AÐ FRAMSÓKNARFLOKKURINN SÉ OPINN Í BÁÐA ENDA?

Niðurstaðan er sú að ég get ekki með nokkru móti séð að þessi  flokkur komi nokkuð til með að breytast þannig að hann eigi það skilið að maður fórni sínu atkvæði í hann.

VINSTRI HREYFINGIN GRÆNT FRAMBOÐ (VG):  Alltaf þegar þessi flokkur hefur gengið gjörsamlega fram af manni og maður hélt að ekki yrði lengra komist... bætist eitthvað við sem „toppar“ það sem áður hafði komið.  Og þannig hefur þetta kjörtímabil verið.  Það sem  hefur verið mest áberandi hjá þeim er hversu ALLT er öfgafullt í öllum þeirra málum.  Fyrst skal nefna loftslagsmálin, „jafnréttismálin“ og FÓSTUREYÐINGARMÁLIN hjá Forsætisráðherra, umhverfismálin hjá Umhverfisráðherra og þráhyggjuna hjá Heilbrigðisráðherra gagnvart EINKAREKSTRI HVERS KONAR í heilbrigðiskerfinu og hvað henni gekk til í samningunum við lyfjarisana í „bóluefnasamningunum“ verður sennilega hulin ráðgáta um aldur og ævi, takist núverandi ríkisstjórn að halda öllum gögnum þessa máls leyndum eins og virðist vera staðfastur vilji stjórnvalda og meðreiðarsveina.

Niðurstaðan er sú að ég get ekki með nokkru móti séð að þessi  flokkur komi nokkuð til með að breytast þannig að hann eigi það skilið að maður fórni sínu atkvæði í hann.

 

Nú er ég búinn að  fjalla lítillega um núverandi ríkisstjórnarflokka og samkvæmt þessari litlu yfirreið um verk þeirra á kjörtímabilinu er nokkuð ljóst að þeir ríða ekki feitum hesti eftir þessa yfirferð.  Allir þekkja mína afstöðu til „fiskveiðistjórnunarkerfisins“ og ég get ekki með nokkru móti séð   að þessir flokkar afi vilja eða getu til að gera nokkrar breytingar á þessu kerfi, hvorki til góðs né ills.  Og það sem er hægt að  segja um mörg önnur mikilvæg mál.

Þá ætla ég að færa mig yfir í stjórnarandstöðuflokkana, sem eiga sæti á Alþingi og svo ætla ég aðeins að koma inn á þá flokka sem hyggja á framboð í haust en það eru ennþá að koma fram ný framboð þannig að það er ekki hægt að gera þessum aðilum almennileg skil af skiljanlegum ástæðum.

 

SAMFYLKINGIN:  Upphaflega var þessi flokkur settur saman úr Alþýðubandalaginu, Alþýðuflokki og Kvennalista ásamt ýmsum vinstri flokksbrotum sem fengu að fylgja með.Allt frá því að Samfylkingin var stofnuð hefur farið fram mikil valdabarátta þarna innandyra, til að byrja með náðu Kvennalistakonur ásamt Alþýðubandalagsfólki þarna yfirhöndinni og framanaf leit útfyrir að flokksmenn ætluðu að sættast við þau öfl sem voru búin að koma sér fyrir í stjórn flokksins.  En þá færðust átökin undir yfirborðið og Alþýðubandalagsfólkið losaði sig við Kvennalistakonurnar úr stjórn flokksins (sendu  Ingibjörgu Sólveigu til Kabúl til að gera konur það að femínistum og vinna að „jafnrétti“ þar 😉).  Þegar Allaballarnir voru búnir að koma Kvennalistanum út snéru þeir sér að Krötunum, það gekk nú aðeins hægar fyrir sig en tókst loksins, þeir losnuðu við þann síðasta á þessu kjörtímabili.  En hingað til hefur Samfylkingin ekkert mátt vera að því að sinna starfi sínu sem stjórnarandstöðuflokkur því það hefur allt „LOGAГ stafnana á milli í innanhússátökum.  Stefnum álin hafa nú heldur ekki verið upp á marga fiska en helsta og lengi vel eina málið, var að koma Íslandi inn í ESB en eftir að fylgið við það mál næstum hvarf þá bætti flokkurinn lotslagsmálunuu við og að fjölga hér hælisleitendum.

Eins og ég hef gefið til kynna í skrifum mínum þá hefur flokkurinn verið því sem næst ósýnilegur allt þetta kjörtímabil og það hvarflar ekki að mér eitt augnablik að SÓA atkvæði mínu á þennan flokk.

 

VIÐREISN: þá er komið að „LAUMUKRÖTUNUM“ sem voru í Sjálfstæðisflokknum, en það má þó segja þeim það til hróss að þau viðurkenndu fyrir sjálfum sér og öðrum hver þau voru en það eru ennþá margir „LAUMUKRATAR“ eftir í Sjálfstæðisflokknum. Þetta fólk hefur fylkt sér um EITT MÁL sem er AÐ KOMA ÍSLANDI Í ESB en þessu máli fylgir eitt málefni en það er gjaldmiðillinn EVRA, sem þetta fólk telur hina einu sönnu lausn á ÖLLUM vanda landsins.  Það skrítna er að einhverra hluta vegna láta einhverjir blekkjast af lýðskrumi þessa fólks og meira að segja hef ég séð þarna „sprenglærða“ hagfræðinga innan þessa hóps en það vekur upp spurningar um hvort námið hafi nokkru skilað til viðkomandi.

Niðurstaðan er einföld ÞESSI FLOKKUR ER  EKKERT FYRIR MIG OG ÉG MUN EKKI KJÓSA HANN.

 

MIÐFLOKKUR:  Allir vita hvernig þessi flokkur kom til og að mörgu leiti kom þessi flokkur með ferskan blæ inn í Íslensk stjórnmál.  Flokkurinn vann mög gott ver í hinu svokallaða „ORKUPAKKAMÁLI“og Þingmaður flokksins, Þorsteinn Sæmundsson á heiður skilinn fyrir baráttu sína við að REYNA að koma því fram í dagsljósið hverjir fengu uppboðsíbúðir  Íbúðalánasjóðs á BRUNAÚTSÖLU EFTIRHRUNIГ (ránið), en þetta hefur ekki enn tekist.  Og nú er búið að „losa“ sig við þennan „óþæga“ þingmann (og maður spyr sig hver raunveruleg ástæða sé?).  Nú seinni árin hefur mér þótt ýmislegt vera hulið þoku í stefnu flokksins, sem dæmi má nefna að ekki hefur formaðurinn enn gefið skýrt til kynna hver stefnan sé í sjávarútvegsgsmálunum og hann lét það flakka, í útvarpsviðtali, að „hann“ áliti að kvótinn væri EIGN þeirrar útgerðar sem honum hefði verið úthlutað.

Því miður held ég að þessi flokkur hafi fjarlægst mín sjónarmið það mikið að ég reikna ekki með að ljá honum atkvæði mitt í þetta skipti.

 

PÍRATAR:  Þar er kominn flokkur, sem hefur tekist fullkomlega að  blekkja fólk til fylgis við sig með því að halda því fram að þeir vilji hafa ALLT UPPI Á BORÐUM OG ENGA LEYND YFIR NEINU OG SEGJAST BERJAST GEGN SPILLINGU.  Til þess að leggja áherslu á þessi mál sín hafa þeir verið „duglegir“ að mæta í pontu Alþingis og „talað mikið en sagt mög lítið og gert ennþá minna“ ÞAÐ KOMA MARGAR SPURNINGAR FRÁ ÞEIM EN ENGAR SEM SKIPTA MIKLU MÁLI.  En samt sem áður eru einhverjir sem láta enn blekkjast af fagurgalanum og kjósa þá.  Þarna er, að mínu mati, kominn ekta „POPPLISTAFLOKKUR“ og kannski fær  hann einhver atkvæði út á það en hann fær ekki atkvæði frá mér.

 

FLOKKUR FÓLKSINS:  Þetta er „nýjasti“ flokkurinn á Alþingi og er svo sannarlega hægt að segja að þingmenn hans hafi komið með ferskan blæ þangað inn og virkilega hægt að segja að þessi flokkur hafi komið málefnum aldraðra og öryrkja á dagskrá, þótt árangurinn hafi ekki verið mikill enda flokkurinn í stjórnarandstöðu.  ÉG FURÐA MIG Á ÞVÍ AÐ ALDRAÐIR OG ÖRYRKJAR SKULI EKKI FLYKKJAST UM ÞENNAN  FLOKK ÞVÍ ÞESSI FLOKKUR ER SÁ EINI Á ALÞINGI SEM HEFUR EITTHVAÐ GERT FYRIR ÞESSA HÓPA.  Ýmsir aðrir (og ég held allir aðrir) hafa komið með loforð fyrir kosningar, sem hafa svo strax verið svikin þegar þeir eru komnir að „kjötkötlunum“.

Þarna er kominn, að mínu mati, áhugaverður kostur fyrir kosningarnar í haust.

Í þessum pistli mínum hef ég falað um þá flokka sem eru á Alþingi  (það skal tekið fram að þetta er ALLT skrifað út frá mínu sjónarhorni og ég ætlast ALLS ekki til að allir séu mér sammála).  Hafi ég gleymt að fjalla um einhvern flokk biðst ég afsökunar á því.

 

Ýmsir fleiri eru í startholunum með ný framboð og aðrir komnir lengra.  Ég treysti mér ekki til að fjalla um þá en ég vona að þetta pár mitt komi einhverjum að einhverju gagni.  Ég þakka þeim  sem höfðu úthald í að lesa þetta........


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Örn Gunnlaugsson

En Jóhann, það væri mjög áhugavert að breyta kosningalögunum á þann hátt að atkvæði kosningabærra manna sem ekki skiluðu sér eða skiluðu sér auð teldu til fækkunar þingsæta, það gæti kallast Auði Flokkurinn. Það yrði þá bara minni skarkali í fuglabjarginu á Austurvelli. Svo væri alveg snilld að veita kjósendum möguleika á að greiða nokkurs konar mótatkvæði sem myndi þá teljast til frádráttar meðatkvæðum sem sá flokkur fengi. Þannig gætu kjósendur barist gegn þeim sem þeir síst vilja fá. Það var svolítið fyndið um árið þegar Ástþórsflokkurinn bauð fram að hann fækk færri atkvæði en nam frambjóðendum hans, rétt eins og þeir hefðu ekki einu sinni kosið sjálfa sig. Þú talar um Flokk Fólksins sem áhugaverðan kost. Kannski er það bara rétt þar sem við erum nú báðir komnir áleiðis að Blómabrekkunni og án efa farið að slá verulega í okkur. En þá þarf að hreinsa spillinguna fyrst úr flokknum. Ekki vildi formaðurinn nú gefa eftir réttindi sem hún hafði vegna lágra uppgefinna tekna þegar hún komst á Alþingisjötuna. Og svo er alveg spurning hvort rétt sé að veita þeim brautargengi sem þykjast vera öryrkjar og þiggja ölmusu frá samborgurum sínum þegar þeir hinir sömu sanna það með setu sinni á þingi að þeir eru fullvinnufærir. Eða er þingmennska ekki talin til vinnu ? Sennilega er bara best að láta sér bara fátt um finnast og kjósa ekki neitt, nóg er maður nú hafður að fífli samt.

Örn Gunnlaugsson, 6.8.2021 kl. 11:48

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég er alveg sammála þér með það að það þyrfti að breyta kosningalögunum og tillaga þín er mjög áhugaverð.  Að mínum dómi hefur aldrei verið jafn "lélegt" fólk á þingi eins og á yfirstandandi þingi og mikið af fólki sem er, að mínum dómi, ekkert annað en RUSLARALÝÐUR.  ´Eg held að menn séu nú ekki að þykjast vera öryrkjar, ég segi nú  bara fyrir mig að ég get ekki stundað hvaða vinnu sem er en ég hef ekki möguleika á þeirri vinnu sem ég er fær um.  Ég myndi glaður vilja vera fær um að "vinna" en maður hefur ekki alltaf val.  Ég veit ekki Örn en mér hefur alltaf fundist að hver maður eigi að mæta á kjörstað og það að skila auðu er líka afstaða........

Jóhann Elíasson, 6.8.2021 kl. 12:19

3 Smámynd: Örn Gunnlaugsson

Varðandi öryrkjana þá er það þannig að langflestir geta unnið einhver störf en þeir eru jú lika einhverjir sem ekkert geta unnið og að því fólki þarf að hlúa. Ég minnist þess enn þegar ég var í siglingum fyrir nokkrum áratugum síðan þá voru nokkrir skipsfélagar mínir sem höfðu slasast og misst framan af handlegg eða fæti. Enginn þeirra kveinkaði sér yfir bágindum sínum og klifruðu upp og niður úr vélarúmi og lestum án þess að barma sér. Allir áttu þeir það sameiginlegt að láta vanþóknun sína uppi við þá sem viðruðu þær hugmyndir að hlífa þeim við erfiðari verkum sem við hinir áttum betur með. Fólk sem ekki getur unnið einhverja vinnu getur oftar en ekki unnið einhver störf og það er ekki rétt að stimpla slíkt fólk út af vinnumarkaði með aumingjavæðingu. Ég get sjálfur núorðið ekki unnið öll störf en ég tel mig samt ekki vera öryrkja og því síður leggst ég á samborgara mína með betlistaf og krús. Að eyða tíma sínum í að mæta á kjörstað til að velja á milli kúks og skíts er nokkurn veginn það sama og sóa tíma sínum til einskis. Nema maður mæti á kjörstað og stingi seðlinum beint í kassann án þess að fara inn í klefann svo ekki fari milli mála hverrar virðingar þeir njóta sem eru í framboði.

Örn Gunnlaugsson, 6.8.2021 kl. 16:01

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Að mörgu leyti get ég tekið undir með þér.  Reyndar hef ég aðeins einu sinni verið með manni til sjós sem hafði misst fót fyrir neðan hné og sá maður vann sín verk mjög vel og vildi ekki fyrir nokkra muni að sér væri hlíft við nein verk af þeim sökum þannig að stundum fannst manni hann ganga full langt í þeim efnum til dæmis þegar þurfti að senda menn upp í "gálga" og losa um gils.  Ég lít ekki þannig á að ég sem öryrki hafi lagst upp á samborgara mína, því meðan ég var í vinnu greiddi ég mikla skatta og aðrar skyldur.  Það sem ég tel verst í þessu kerfi er, að vegna skerðinga, er fólki gert nær ómögulegt að vinna meðfram bótunum þannig að menn fá skerðingar + það að menn borga skatta af vinnunni ef skerðingunum yrði sleppt og menn greiddu bara skatta af sinni vinnu einsog allir aðrir.  Ég hef nú ekki það mikið að gera að ég sé nú reyndar ekki eftir tímanum sem fer í að mæta á kjörstað, síðasta athugasemdar þinnar tek ég alveg undir.......

Jóhann Elíasson, 6.8.2021 kl. 16:43

5 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Örn. Heldur þú að allir öryrkjar séu svo bundnir við sjúkrarúmstokkinn að enginn þeirra geti unnið við ígildi skrifstofustarfs sem útheimtir enga líkamlega áreynslu?

Guðmundur Ásgeirsson, 6.8.2021 kl. 16:51

6 Smámynd: Örn Gunnlaugsson

Jóhann , eins og ég hef bent á get ég ekki núorðið unnið alla vinnu en ég get stundað vinnu við annað en ég gerði áður og haft framfærslu af henni. Sú vinna er ekki endilega það sem mig mest langar að gera en hún fæðir mig og klæðir. Þetta bótakerfi er jafnhandónýtt og lífeyrissjóðakerfið vegna þess að fólki er refsað fyrir að bjarga sér. Að greiða í lífeyrissjóð er sama og að henda peningunum sínum, skoðaðu reiknivél TR og þá sérðu hvað ég á við. 

Örn Gunnlaugsson, 6.8.2021 kl. 19:59

7 Smámynd: Örn Gunnlaugsson

Guðmundur, ekki öll vinna útheimtir líkamlega áreynslu og þá eru menn ekki öryrkjar. flestir geta unnið einhverja vinnu og eiga því ekki að fara á jötuna vegna þess að þeir geta ekki unnið vinnu sem krefst líkamlegs hreystis meðan annað stendur til boða. Nú þykir sjálfsagt að fólk mennti sig nánast til ólífis í greinum þar sem engin eftirspurn er eftir fólki í og hlutirnir síðan lagðir upp þannig að neyða eigi fólk til að taka hvaða vinnu sem er. Þó ég sé með þokkalega góða menntun á nokkrum sviðum þá varð sú menntun ekki til þess að ég hætti að kunna að skúra eða gera hvað sem sérstaka fagmenntun þurfti til. Ég hef reyndar aldrei verið upptekinn við það sjálfur að gera bara það sem ég hef sérstaka gráðu til og hef tekið hvaða vinnu sem fæðir mig og klæðir. Sem samfélag með góð og mannleg gildi eigum við að hlúa að þeim sem ekki eru færir um að sjá sér farborða en það þýðir ekki að þeir sem ekki nenna eigi að geta lagst á jötuna og skert möguleika samfélagsins til að veita þeim sem raunverulega þurfa aðstoð þá aðstöð sem þeir þurfa með sem ríkulegustum hætti.

Örn Gunnlaugsson, 6.8.2021 kl. 20:10

8 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég fór að skoða lífeyrissjóðakerfið fyrir nokkrum árum af einhverri alvöru og gerði mér þá grein fyrir því að það er handónýtt.  Síðar tók kunningi minn það sem lokaverkefni í Viðskiptafræði við Háskólann á Akureyri að skoða lífeyrissjóðina og var niðurstaða hans sú að ENGAN VEGINN borgaði sig að greiða í lífeyrissjóð, eins og þeir eru uppbyggðir í dag heldur væri hagstæðast að sjá sjálfur um sinn lífeyrissjóð svipað og er gert í sumum ríkjum Bandaríkjanna og hefur það gefið góða raun...

Jóhann Elíasson, 6.8.2021 kl. 20:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband