SÓSÍALISTAFLOKKUR ÍSLANDS OG GUNNAR SMÁRI EGILSSON.........

Áðan var ég að hlusta á viðtal Arnþrúðar Karlsdóttur við Katrínu Baldursdóttur oddvita Sósíalistaflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður og Sigmar Guðmundsson sem er í öðru  sæti Viðreisnar í Suðvesturkjördæmi ("Kraganum"), viðtalið var á Útvarpi Sögu.  Þau voru sammála um að það þyrfti að breyta miklu í Sjávarútvegnum, Heilbrigðiskerfinu, Félagskerfinu, Löggæslunni, Dómskerfinu og mörgu fleiru en þau voru með öllu ósammála um leiðirnar. þarna fannst mér koma í ljós, í málflutningi Katrínar Baldursdóttur, hvernig Gunnari Smára Egilssyni hefur tekist að koma "frösum" eins og "Ný-Frjálshyggju" (sá frasi hefur reyndar aldrei verið skilgreindur), "Auðvaldið", Öreigar og nokkrir fleiri sem ég reyndar man ekki nákvæmlega hverjir eru, Katrín Baldursdóttir notaði þessa "frasa" alveg óspart og reyndar bætti hún við nokkrum öfgaskoðunum frá sér sjálfri.  En merkilegt nokk þá kom Sigmar Guðmundsson aldrei ESB eða evrunni að því það var nóg að gera hjá honum við að svara Katrínu Baldursdóttur og gekk það alveg ágætlega hjá honum, enda er hann alveg þrautþjálfaður fjölmiðlamaður og reyndar á hún einnig sinn bakgrunn í fjölmiðlum þótt nokkuð sé um liðið síðan hún starfaði á þeim vettvangi.  Gunnar Smári hefur reynt af mikilli örvæntingu og mjög litlum sannfæringarkrafti að verja stjórnmálastefnu sem hefur ALDREI VIRKAÐ og gekk sér endanlega til húðar fyrir um 30 árum og meira að segja Kína hefur að mestu leiti kastað megninu af þessari stefnu.  Það er alveg með ólíkindum hvað þessi maður hefur getað vafið einföldum "Vinstri Öfgasálum" um fingur sér með lýðskrumi og hreinum og klárum lygum.  En það verður ekki tekið af honum að hann er flugmælskur og hann á mjög auðvelt með að hrífa fólk með sér.  En þetta eru einmitt einkenni siðblindingja.  Það væri ekki úr vegi að rifja upp nokkur atriði úr sögu þessa manns:  Hann var einn af helstu forkólfum þess að "Fréttablaðið" fór af stað í núverandi mynd og mér skilst að hugmyndin hafi verið hans.  Þegar hugmyndin um "Fréttablaðið" var komin vel af stað tókst honum að sannfæra Jón Ásgeir og fleiri "viðskiptamógúla" um að það væri tilvalið að koma svona "fríblaði" af stað í Danmörku.  Þessi áform "floppuðu" algjörleg og með því minnkuðu möguleikar hans á því að komast í í "klíkuna" með Jóni Ásgeiri og fleirum.  Eftir ævintýrið í Danmörku kom hann til baka til landsins, með skottið á milli lappanna og "endurreisti" Fréttatímann.  Það ævintýri stóð í nokkra mánuði og endaði í gjaldþroti og það sem var alvarlegast var að starfsfólkið fékk ekki greidd laun síðustu mánuðina.  Þegar það varð alveg ljóst að Jón Ásgeir og félagar vildu ekkert með manninn hafa, gerðist hann stækur Sósíalisti með það að markmiði að berjast gegn "AUÐVALDINU" og með lítilmagnanum.  Hann stofnaði Sósíalistaflokkinn og tókst að fá nokkra til fylgis við sig (maðurinn er jú vel mælskur og sannfærandi) og nú stefnir hann á að flokkurinn fái sæti á Alþingi.  Í dag er ekki vitað hverjir koma til með að vera í framboði fyrir flokkinn, en ekki kæmi það á óvart að þar yrði hann sjálfur í framvarðasveitinni því ekki ætlar hann að lifa eins og einhver öreigi.  Finnst mönnum þessi maður mjög trúverðugur?  Það sem er öllu alvarlegra, að mínu  mati, er sú staðreynd að ýmsir ætla að ljá þessu framboði atkvæði sitt, manni sem ætlar að fótumtroða réttarríkinu, ryðja út úr hæstarétti, skipta Samherja upp og fleira og fleira ætlar hann að gera komist hann að og ég get ekki betur séð en hann vill helst ekki fara í neitt samstarf heldu vill hann verða EINRÆÐISHERRA, því á annan  hátt getur hann ekki komið þessum áformum sínum í framkvæmd........


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Páll Símonarson

Heill og sæll Jóhann Elíasson. Tek undir þín orð. Katrín Baldursdóttir kemur ekki vel fram, eindarlaust með þessa gömlu frasa frá Gunnari Smára Egilssyni, sem dæmi það er búið að skræla allt kerfið að innan, síðan talar hún um dagróðrakerfi, það kerfi gengur ekki upp, svo vill hún frjálsar handfæraveiðar fyrir þá sem hafa selt sig út úr greininni með hagnaði og síðan vilja sömu menn koma sér inn í greinina aftur. Enda sagði Sigmar að Katrín væri svo trekt með mikinn hávaða og endalaust að grípa frammí fyrir aðilum. Ömurlegur flokkur hans Gunnars Smára Egilssonar. Bestu kveðjur. Jóhann Páll Símonarson.

Jóhann Páll Símonarson, 17.9.2021 kl. 11:27

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þakka þér fyrir innlitið nafni og góðar athugasemdir.  Það sem veldur mér mestum vonbrigðum er það hversu margir virðast ætla að falla fyrir þessu "lýðskrumi" og kjósa þetta í næstu kosningum.  Á hvaða leið er þetta þjóðfélag eiginlega?????

Jóhann Elíasson, 17.9.2021 kl. 11:51

3 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Ég vil meina að "fjórflokkurinn" er búinn að skapa þennan grundvöll fyrir svona öfgar sem sósalistar setja fram.

Sigurður I B Guðmundsson, 17.9.2021 kl. 11:57

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það má vel vera Sigurður en þeir eru jafnslæmir fyrir það og það er mitt álit að öfgar laga ekkert og eru bara til skaða...

Jóhann Elíasson, 17.9.2021 kl. 12:24

5 identicon

Sæll Jóhann Stýrimsður æfinlega; sem og aðrir gestir, þínir !

Jóhann Stýrimaður; sem og aldavinur okkar Jóhann Páll Símonarson, athugið.

Fyrir það fyrsta; akutu þau Gunnar Smári Egilsson sig strax í sína fætur, vegna nafngiptar flokksins (það er ekki áhugavekjandi: fyrir hinn almenna kjósanda, að styðja flokk, sem kenna má við kenningar þeirra Marx- Engels og Leníns, þó ekki væri: nema í ljósi sögunnar, og hversu Venezuela, eitt fyrrum mesta velferðarríki Suður- Ameríku er grátt leikin af þeim Maduro og hans fylgiliði, t.d.) nær hefði þeim Gunnari verið, að kalla flokkinn Verkamannaflokk Íslands, ekki hvað sízt með tilliti til þess niðurifs, sem núverandi stjórnarflokkar / sem og ýmsir hinna áður hafa iðkað, og leikið land og þjóð illilega, piltar.

Sigurður I B Guðmundsson; hittir naglann þráðbeint á höfuðið, hvort sem á naglann væri slegið með Kopar hamri / eða þá hefðsbundnum Klauf- og Slaghömrum, ágætu drengir.

Mbkv.; sem endranær, af Suðurlandi /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 17.9.2021 kl. 12:40

6 identicon

.... afsakið; óþarflega margar innsláttarvillur mínar, var að hripa þetta niður áðan, á 1/2 gerðum hlaupum.

ÓHH 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 17.9.2021 kl. 12:45

7 Smámynd: Jóhann Elíasson

Óskar Helgi, þakka þér fyrir innlitið og góðar og kjarnyrtar athugasemdir.  Þetta er alveg rétt athugasemd hjá Sigurði IB enda bar ég alls ekki móti því ég var aðeins að benda á að öfgar laga ekkert og það sem meira er að þeir geta valdið meiri skaða en hitt.......

Jóhann Elíasson, 17.9.2021 kl. 13:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband