KJÖRNIR ALÞINGISMEN HAFA SKYLDUR VIÐ KJÓSENDUR SÍNA OG EIGA AÐ FARA AÐ LÖGUM EINS OG AÐRIR......

kosningaloforðin (1)Ástæða þessara skrifa er að þingmaður, sem var kjörinn á þing fyrir einn stjórnmálaflokk fór yfir í annan stjórnmálaflokk og þar tók hann með sér þau atkvæði sem þessi stjórnmálaflokkur sem hann hafði verið í framboði fyrir fékk.  Að mínum dómi er  þarna um klárt brot á STJÓRNARSKRÁNNI og LÖGUM UM KOSNINGAR TIL ALÞINGIS (lög nr: 24/2000 16. maí ).  Við vinnslu þessa pistils fann ég talsvert misræmi milli STJÓRNARSKRÁRINNAR og annarra laga en mér skilst að það sé eitt af hlutverkum þingmanna AÐ SJÁ TIL ÞESS AÐ SETT LÖG SÉU Í SAMRÆMI VIÐ STJÓRNARSKRÁ LANDSINS.  Þarna brjóta þeir sína helstu starfsreglu.  Áður en ég hef greinina ætla ég að renna yfir nokkrar greinar í stjórnarskránni, sem menn annað hvort hafa kosið að hunsa eða hafa ekki tekið eftir að væri til staðar, nema hvort tveggja sé, í það minnsta er þessum greinum ekki framfylgt:

 

  • 17. gr. „Ráðherrafundi skal halda um nýmæli í lögum og um mikilvæg stjórnarmálefni.  Svo skal og ráðherrafund halda, ef einhver ráðherra óskar að bera þar upp mál.  Fundinum stjórnar sá ráðherra, er forseti lýðveldisins hefur kvatt til forsætis og nefnist hann forsætisráðherra.“   Mér er ekki kunnugt um að NEINUM stjórnmálamanni hafi verið veitt umboð til stjórnarmyndunar af forseta lýðveldisins nú  eftir Alþingiskosningar 25 september og verður þá ekki séð að hægt verði að uppfylla þetta skilyrði án þess að STJÓRNARSKRÁ verði brotin.
  • 31. gr. Þriðja málsgrein. „Öðrum þingsætum en kjördæmissætum skal ráðstafa í kjördæmi og úthluta þeim til jöfnunar milli stjórnmálasamtaka  að hver samtök fái þingmannatölu í sem fyllstu samræmi við heildaratkvæðatölu sína.  Þau stjórnmálasamtök koma þó ein til álita við úthlutun jöfnunarþingsæta sem hlotið hafa minnst fimm af hundraði af gildum atkvæðum á landinu öllu.“   Þetta er eini staðurinn í STJÓRNARSKRÁNNI sem ég hef fundið eitthvað um þetta margumtalaða 5% „þak“ en eins og kemur fram þá á það einungis við um JÖFNUNARÞINGSÆTI.  Samkvæmt þessu  þá er EKKERT lágmark á kjöri til Alþingis og er þá hægt að áætla sem svo að einhverjir hafi orðið af þingsæti á Alþingi að ósekju og það þurfi að fara fram endurskoðun á reglum um úthlutun þingsæta.
  • 48. gr. „Alþingismenn eru eingöngu bundnir við  sannfæringu sína og eigi við  neinar reglur frá kjósendum sínum.“   Í þessa grein stjórnarskrárinnar vísa menn í þegar þeir „flakka“ á milli flokka.  Að mínu mati er EKKERT í þessari grein sem gefur tilefni til þess að ætla hún réttlæti á nokkurn hátt að þingmenn „hlaupist undan merkjum“ eða svíki kjósendur þess stjórnmálaflokks sem þeir voru í framboði fyrir.
  • 52. gr. „Alþingi kýs sér forseta og stýrir hann störfum þess.“   Þarna viðist hafa orðið breyting á.  Meirihluti Alþingis virðist hafa eignað sér þetta embætti með samkomulagi sín á milli en  samkvæmt STJÓRNARSKRÁNNI þá hefur þetta embætti ekkert með MEIRIHLUTA eða MINNIHLUTA að gera, að minnsta kosti er þessi grein ekki þannig upp sett.

 

Að mínum dómi VERÐUR að hnykkja enn betur á hlutverki forseta lýðveldisins, varðandi stjórnarmyndunarviðræður til að koma í veg fyrir að ástand eins og hefur myndast í dag geti orðið (enginn hefur fengið formlegt stjórnarmyndunarumboð og þar af leiðandi eru engin tímamörk á stjórnarmyndunarviðræðum, þingið er í lausu lofti og enginn veit hvenær það verður kallað til starfa og margt fleira mætti tína til).

En nú er best að koma sér að MÁLINU, sem stóð til að fjalla um, en það var „flótti“ Birgis Þórarinssonar úr Miðflokknum yfir í Sjálfstæðisflokkinn nokkrum dögum eftir kosningar.  En er þetta hvimleiða athæfi margra þingmanna, sem stundað hafa þennan „flótta“ milli flokka á kjörtímabilinu miðju eða svo áratugum saman, LÖGLEGT en SIÐLAUST, eins og þeir hafa sjálfir haldið fram?   En eftir að hafa skoðað bæði STJÓRNARSKRÁNA  (lög nr. 33/1944) og KOSNINGALÖGIN (lög nr. 24/2000) er niðurstaðan sú að þetta athæfi er BÆÐI ÓLÖGLEGT og SIÐLAUST.  Menn hafa aðallega „réttætt“ þetta og vísað þá í 48 gr. stjórnarskrárinnar, sem að mínu mati er afskaplega langsótt svo ekki sé nú fastar að orði kveðið, en það hef ég rakið fyrr í þessum pistli.  Kosningalögin eru enn skýrari hvað þetta varðar, þar er hvergi minnst á einstaka frambjóðendur heldur LISTA sem e borinn fram af vissum STJÓRNMÁLAFLOKKI og þessi stjórnmálaflokkur ber ábyrgð á.  Kosningalög fjalla alltaf um hversu MÖRG ÞINGSÆTI HVER FLOKKUR HEFUR FENGIÐ Í KOSNINGUNUM Í HVERJU KJÖRDÆMI FYRIR SIG.  Þess vegna er ekki skrýtið að spurt sé „ER KOMIÐ PERSÓNUKJÖR „EFTIR“ KOSNINGAR“?  Svo virðist vera að „sumir“ séu jafnari fyrir lögum en aðrir það er hætt við að ef þetta hefði verið gert annars staðar í þjóðfélaginu, hefði verið tekið á því af hörku til að gefa fordæmi og sýnt fram á að svona lagað yrði ekki liðið.  ÞAÐ ER NEFNILEGA ALLS EKKI ÖRUGGT AÐ ÞÓTT EITTHVAÐ HAFI VERIÐ LÁTIÐ VIÐGANGAST ÁRATUGUM SAMAN SÉ LÖGLEGT. Að lokum vil ég láta fylgja skrif sem ég fékk af Facebook síðu Guðbjarnar Jónssonar og birt er með samþykki hans: „Þegar litið er til Revíunnar sem hefur verið að þróast eftir að Birgir sagði sig úr Miðflokknum og tók sér ferð á hendur yfir í þann stjórnmálaflokk sem hefur tvímælalaust flesta lögfræðinga á Alþingi, formann og varaformann flokksins, ásamt dómsmálaráðherra, er næsta undarlegt að sjá svona skýrt opinberast virðingarleysi allra þessara aðila fyrir RÉTTLÆTI, STJÓRNARSKRÁ, KOSNINGALÖGUM OG ÆRU ÞESS FÓLKS SEM MENNTUNAR SINNAR VEGNA EIGA AÐ ÞEKKJA LEIKREGLUR HEIÐARLEIKANS Í SVONA MÁLUM.”  ÞAÐ VERÐUR FRÓÐLEGT AÐ FYLGJAST MEÐ ÞVÍ HVAÐ KJÖRBRÉFANEFND GERIR Í ÞESSU MÁLI.  LÆTUR HÚN ÞESSA LÖGLEYSU GANGA EÐA VERÐUR TEKIÐ Á ÞESSU MÁLI???????


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Ætli þetta 48. ákvæði hafi ekki átt að eiga við það þegar þingmenn greiða atkvæði samkvæmt sannfæringu sinni sem samræmist ekki stefnu þeirra stjórnmálflokks eða kjósenda á þingi. Þannig mál eru yfirleitt ein og sér eða þá að stjórnmálaflokkur gerir allt annað en stefnuskrá hans boðaði, sem ekki er óþekkt þegar valdastólar eru í boði.

Nei Jóhann liðinu sem velst á þing er yfirleitt ekki viðbjargandi, það er ólæst á stjórnaskrána og er fyrir löngu búið að pakka fullveldi landsins niður í tösku til afgreiðslu aflands, og forseta fáráðurinn virðist ekki hafa hugmynd um út á hvað lýðveldið gengur.

Magnús Sigurðsson, 6.1.2022 kl. 15:44

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þakka þér kærlega fyrir innlitið Magnús.   Ég er þér algjörlega sammála um að þetta lið á þingi virðist ekki vera læst á stjórnarskrána, sem er mjög alvarlegur hlutur þar sem þau sverja eið að henni við upphaf þingmennsku sinnar. AF ÞVÍ GETUR MAÐUR DREGIÐ ÞÁ ÁLYKTUN AÐ ÞAU HAFI EKKI NOKKRA HUGMYND UM HVAÐ ÞAU ERU AÐ GERA. Nóg er af lögfræðingunum á þingi, þannig að þekkingin ætti að vera til staðar.  En það sem er verst er að það virðist bara eiga að láta þetta viðgangast áfram.  Ekki komumst við almenningur upp með augljós lögbrot áratugum saman.......

Jóhann Elíasson, 6.1.2022 kl. 16:32

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Stjórnarskrá:

34. gr.
Kjörgengur við kosningar til Alþingis er hver sá ríkisborgari sem kosningarrétt á til þeirra og hefur óflekkað mannorð.
...

Kosningalög:

6. gr. Kjörgengi.
Kjörgengur til Alþingis er hver sá sem á kosningarrétt skv. 3. gr. og hefur óflekkað mannorð.

Spurningakeppni:

Hver getur verið fyrstur til að benda á nákvæmlega hvað úr stjórnarskrárákvæðinu vantar í kosningalögin? (Vísbending: það tengist skiptingu landsins í kjördæmi.)

Guðmundur Ásgeirsson, 6.1.2022 kl. 17:10

4 Smámynd: Grímur Kjartansson

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir lofaði mér að hún ætlaði að vera áfram borgarstjóri
svo ég  kaus hana 
ég hef aldrei getað fyrirgefið henni þau svik

Grímur Kjartansson, 6.1.2022 kl. 17:50

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Guðmundur; það eru mun fleiri misræmi milli Stjórnarskrárinnar og Kosningalaganna en þú nefnir þarna og til að ræða þau mál tel ég best fyrir þig að ræða við Guðbjörn Jónsson því mér er kunnugt um að hann ásamt fleiri aðilum hugðist láta reyna á ákvæði hennar,  þess efnis að ALLIR EINSTAKLINGAR sem uppfylla skilyrði til framboðs til Alþingis sé  KJÖRGENGIR.  ÞEIM VAR HAFNAÐ Á GRUNDVELLI KOSNINGALAGA, SEM HLÝTUR AÐ VEKJA SPURNINGU UM STÖÐU STJÓRNARSKRÁRINNAR?  Spurningu þinni, er að mínu mati einfalt að svara: KJÖRDÆMASKIPANIN GENGUR Í BERHÖGG VIÐ ÁKVÆÐI STJÓRNARSKRÁRINNAR UM AÐ ALLIR EINSTAKLINGAR SKULI VERA JAFNIR..............

Jóhann Elíasson, 6.1.2022 kl. 19:56

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Grímur, því miður eru þetta ekki einu svik Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur á hennar stjórnmálaferli og Samfylkingin virðist hafa tekið upp svik í stefnuskrá sinni og reyndar kveður svo hart að, að ekki virðist vera nokkur leið að taka mark á einu einasta orði sem kemur úr þeirri átt, því miður....

Jóhann Elíasson, 6.1.2022 kl. 20:02

7 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Sæll Jóhann. Ég kannast við Guðbjörn og hef oftar en einu sinni rætt við hann um ýmis málefni.

Þú virðist samt ekki hafa fattað alveg gátuna sem ég setti fram í fyrri athugasemd minni og aðrir hafa ekki gefið sig fram með nein svör.

Ég ætla því hér með að upplýsa um rétta svarið við gátunni: Það sem vantar úr stjórnarskrárákvæðinu í kosningalögin eru orðin "til þeirra".

Svo er hér næsta gáta til aukins skilnings á þeirri fyrri: Hvernig getur maður verið kjörgengur í kjördæmi þar sem hann hefur ekki kosningarrétt ("til þeirra" kosninga)?

Guðmundur Ásgeirsson, 6.1.2022 kl. 23:15

8 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Myndin heldur áfram að sanna gildi sitt.

Sigurður I B Guðmundsson, 6.1.2022 kl. 23:18

9 Smámynd: Jóhann Elíasson

Guðundurr, ég svaraði spurningu þinni Á MANNAMÁLI.  Kannski er það vegna þess að ég hef fundið og það er kannski vegna þess sem ég hef fundið fleiri atriði en þú sem ekki ganga upp í Stjórnarskránni og Kosningalögunum (sennilega kæmist ég samt aldrei með tærnar þar sem þú hefur hælana í að TÚLKA lögin).  Já Guðbjörn er alveg óhemju fróður í hinum ýmsu málum og þá ekki síst í lögfræðinni, sem virðist vera sérstakt áhugamál hjá honum.  Það er að mínum dómi fullkomlega þess virði að eiga við hann orð bæði um lögfræðileg málefni og önnur............

Jóhann Elíasson, 7.1.2022 kl. 02:53

10 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já Sigurður mér fannst MYNDIN eiga alveg sérstaklega vel við þennan pistil........ wink

Jóhann Elíasson, 7.1.2022 kl. 02:56

11 Smámynd: Jóhann Elíasson

Fyrirgefðu Guðmundur, það var einu r ofaukið í nafninu þínu í athugasemd númer níu hjá mér og biðst ég afsökunar á þessari  fljótfærni minni.......

Jóhann Elíasson, 7.1.2022 kl. 03:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband