"HOW DO YOU SLEEP" GUNNAR BRAGI SVEINSSON????????????

Nú kom fyrsta loðnan til Þórshafnar á Langanesi að kvöldi nýársdags.  Aflinn var 400 tonn og fer sá afli ALLUR í BRÆÐSLU, eingöngu fyrir það að Gunnar Bragi Sveinsson, sem áa þeim tíma var Utanríkisráðherra á Íslandi, fylgdi ESB að málum og setti VIÐSKIPTABANN á Rússland, vegna athafna Rússa að innlima Krímskaga.  Þessi athöfn Rússa kom Íslendingum ekkert við á einn eða neinn hátt en með því að gerast "ATTANÍOSSAR" ESB hafði þetta alveg gríðarleg áhrif á efnahag Íslendinga og ekki búið að bíta úr nálinni með það.  Rússar gáfu Íslendingum 18 mánuði til þess að endurskoða þessa ákvörðun sína en ráðherrann þverskallaðist við og tók þá viðskiptabannið gildi af fullum þunga með alveg gífurlegum þunga fyrir efnahag landsins.  VEGNA ÞESSARA AÐGERÐA FER MEGNIÐ AF ÞESSARI LOÐNU SEM KEMUR TIL MEÐ AÐ VEIÐAST Í LÖGSÖGUNNI Í BRÆÐSLU, SEM ÞÝÐIR AÐ AFLAVERÐMÆTI LOÐNUNNAR VERÐUR AÐEINS BROT AF ÞVÍ SEM ÞAÐ ANNARS HEFÐI VERIÐ............ 


mbl.is Fyrsta loðnan á nýársdag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

 Af hverju er ekki búið að breyta þessu fyrir löngu eða gert núna strax???

Sigurður I B Guðmundsson, 4.1.2022 kl. 12:11

2 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Það er vegna þess nafni, að þinginu var breytt í

Barbie dúkkuklúbb, og mál sem skipta þjóðina máli  er hent til hliðar.

Gunnar Bragi var í þeim klúbb.

Að afla tekna fyrir þjóðarbúið er ekki á dagskrá, heldur skal

eytt eins hægt er í hælisleytendur og ímyndaðar loftlags breytingar.

Enn stækkar báknið og öllum á þingi er nákvæmlega sama svo lengi sem

þeir ná 8 ára setuni, þá eru þeir tryggðir fyrir lífstíð.

Fruss á allt þetta lið.

Sigurður Kristján Hjaltested, 4.1.2022 kl. 12:30

3 Smámynd: Grímur Kjartansson

Það var aldrei við því að búast að Gulli breytti þessari kolröngu ákvörðun Gunnars Braga (honum til vorkunnar þá sá hann aldrei fyrir mótleik Rússa)

en nú er Þórdís Kolbrún Reykdal Gylfadóttir utanrikisráðherra og ef til vill mun hún standa undir nafni

en líklegra er að vegna Úkraníu og hræðslu við gamalmennið í USA þá verið frekar bætt í og bannað að kaupa rússneskan vodka á árinu

Grímur Kjartansson, 4.1.2022 kl. 15:13

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þessi "laumukrati" hún Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir er nú í enn minna áliti hjá mér en Guðlaugur Þór Þórðarson.   Hún gerði ekkert af viti í síðustu ráðherratíð sinni, hvað veldur því að menn halda að hún geri eittvað meira núna?????????

Jóhann Elíasson, 4.1.2022 kl. 16:02

5 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Var farið í þessar aðgerðir fyrir fólkið í landinu eða ESB???

Sigurður I B Guðmundsson, 4.1.2022 kl. 16:03

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Alveg örugglega ekki fyrir fólkið í landinu.......... undecided

Jóhann Elíasson, 4.1.2022 kl. 17:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband