"INNLIMUNARSINNAR" SKÝLA SÉR Á BAK VIÐ LYGINA AÐ ESB SÉ "FRIÐARBANDALAG"!!!

Í gær var Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar, gestur í þætti hjá Magnúsi Þór Hafsteinssyni á Útvari Sögu.  Nú ætla ég að taka það fram að ég hef aldrei haft mikið álit á Sigmari Guðmundssyni en það viðurkenni ég alveg að hann kemur ágætlega fyrir og virðist vera nokkuð mælskur.  En í þessum þætti afhjúpaði hann algjörlega hversu þekkingarleysi hans á ESB er algjört og til að  breiða yfir þetta þekkingarleysi sitt talaði hann í FRÖSUM og endurtók bara það sem aðrir "INNLIMUNARSINNAR" hafa verið að segja til dæmis það sem hefur verið lífseigt bull "AÐ ESB VÆRI FRIÐARBANDALAG", það er ósköp einfalt að  bandalag sem "fóðrar" ANNAN AÐILANN Í STRÍÐSÁTÖKUM MEÐ VOPNUM er EKKI friðarbandalag.  Fyrir nokkrum árum skrifaði ég stutta greinargerð um tilurð ESB og tengsl sambandsins við Nasista SJÁ HÉR og þar kemur  það fram að ESB er síður en svo "friðarbandalag".  Nú vil ég ráðleggja Sigmari Guðundssyni og fleirum INNLIMUNARSINNUM að kynna sér ESB og fyrir hvað það stendur, ég var fyrir nokkrum árum harður ESB sinni og fór í að kynna mér sambandið og fyrir hvað það stendur, þegar ég var búinn að fara á heimsíðu sabandsins og skoða hana nokkuð vel (það skal tekið fram að þarna voru alveg gríðarlegt magn af upplýsingum og ekki var nokkur möguleiki að kynna sér allt sem þar var en ég held að ég hafi náð því helsta), en þetta "grúsk" mitt VARÐ TIL ÞESS AÐ ÉG SNÉRIST UM 180° Í AFSTÖÐU  MINNI TIL ESB og ef eitthvað er hefur andstaða mín til ESB aukist með árunum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Hvað gerir friðarbandalag ef ráðist er á það?

Sigurður I B Guðmundsson, 29.4.2022 kl. 10:51

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Varla grípur "Friðarbandalagið" til vopna, Sigurður??????? cool wink

Jóhann Elíasson, 29.4.2022 kl. 11:01

3 Smámynd: Mason

Vopnuð friðarbandalög telja það tilheyra friðnum að vera fyrri til, eins og dæmin sanna, Þetta friðarbandalag mun aldrei bjóða hinn vangann.

Mason, 29.4.2022 kl. 13:16

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þetta er, eins og þú segir Mason, ekkert kristilegt "friðarbandalag" sem býður fram hinn vangann ef á þá verður ráðist........ cool undecided

Jóhann Elíasson, 29.4.2022 kl. 13:49

5 Smámynd: Grímur Kjartansson

Svíar eru í ESB en ekki Nato
Mikil umræða er nú um að Svíar gangi í Nato
Herskylda er í Svíþjóð og því hafa "unglingar" í Svíþjóð miklar áhyggjur af því að vera skikkaðir í stríðsátök í öðrum löndum ef svíar gengu í Nató
Sennilega hræða frásagnir danskra dáta frá Afganistan unglingana en þetta með stríð og frið er ekki einfalt

Grímur Kjartansson, 29.4.2022 kl. 22:04

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er hverju orði sannara, Grímur og í því ljósi ættu Íslendingar að hafa varann á sér gagnvart ESB en æðsti draumur Ursulu Von Der Layen framkvæmdastýru ESB er að koma upp Evrópuher og það verði herskylda innan sambandsins og ef Íslendingar verða svo vitlausir að ganga í ESB þá verður herskylda hér á landi og ég er ekki viss um að menn verði neitt áfjáðir í að Íslensk ungmenni berjist í stríði um allan heim þar sem stjórn ESB ákveður.........

Jóhann Elíasson, 30.4.2022 kl. 03:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband