FARNAR AÐ RENNA TVÆR GRÍMUR Á FÓLK VARÐANDI RAFMAGNSBÍLANA

Í síðasta bloggi mínu sagði ég frá því að rafmagnsbílar nýttust ENGAN VEGIN TIL ÞESS AÐ DRAGA NOKKURN SKAPAÐAN HLUT og engum er sagt frá þessu. Ég er ekki viss um að kaupendur að stórum og dýrum rafmagnsbílum hafi orðið mjög kátir,, þegar þeir komust að því að þeir þyrftu að LEIGJA SÉR JARÐEFNAELDSNEYTISBÍL til að draga hjólhýsið.  Fleiri ókostir eru tengdir rafmagnsbílnum eins og til dæmis það segja má að ökumaður þeirra sitji á risasprengju en rafhlaða rafmagnsbílanna er mjöööög óstöðugt og illa varið, rafmagnsbílar eru dýrir í framleiðslu og afskaplega "ÓUMHVERFISVÆNIR" í framleiðslu.  Það hefur ekki enn reynt á það en mér skilst að einhver vandamál eigi eftir að koma upp við FÖRGUN þessara bíla.  Það er nú reyndar ekki við þessa bíla að sakast þar en nú er orðið svo dýrt rafmagnið í Evrópu að ekki borgar sig lengur að aka um lengur á rafmagnsbíl og nú seljast jarðefnaeldsneytisbílar eins og heitar lummur og nú eru menn "að leggja" rafmagnsbílunum í röðum.  Nú eru komnar upp einhverjar blikur á loft,varðandi áframhaldandi framleiðslu á rafmagnsbílum en það er nokkuð ljóst að markaðurinn fyrir þá hefur "skroppið" saman undanfarið varla verður neinn sem framleiðir bara fyrir Íslendinga, mér skilst að á Íslandi sé eini staðurinn í Evrópu þar sem verðið á rafmagni sé það skikkanlegt að enn borgi sig að keyra um á rafmagnsbílum.................


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Hafi menn efni á að kaupa "stóra og dýra" rafbíla hafa þeir einnig efni á að kaupa hjólhýsi og þau eru misjafnlega þung, eins og bæði rafbílar og bensínbílar.

Mörg hjólhýsi eru um 1.000 kg, margar tegundir rafbíla geta dregið þau og dráttargeta bensínbíla er misjafnlega mikil, rétt eins og rafbíla.

26.5.2021:

Tíu bestu rafbílarnir þegar kemur að dráttargetu

Þar að auki eru rafbílar sífellt fullkomnari og margir rafbílar eru ódýrari en bensínbílar.


"Nissan Leaf er mesti seldi rafbíllinn í Evrópu og 3 tegundir Nissan Leaf 2020 eru 1.605-1.790 kg."

"The U.S. Environmental Protection Agency states that the average weight of a car in 2018 was 4,094 pounds [1.857 kg.]"

Og rafbílar eru mun ódýrari í rekstri en bensínbílar. "Hefðbundnar bifreiðar nota mikið af rafbúnaði sem knúinn er af sprengihreyfli en honum fylgir margvíslegur og flókinn búnaður og mengunarskapandi útblástur.

Rafmótorinn hefur hins vegar einungis fáeina hreyfanlega hluti í stað hundraða.

Í rafbíl eru slitfletir margfalt færri og hitamyndun minni, sem skilar sér í lengri endingu.

Rafmótor þarf minna viðhald en hefðbundin bílvél sem þarfnast olíu- og síuskipta, kertaskipta, ventlaskipta, tímareimaskipta, pústviðgerða, viðhalds á vatnsdælu, eldsneytisdælu, rafal og öðru sem fylgir flóknum sprengihreyfli."

Þorsteinn Briem, 28.12.2013:

""Við hjónin látum okkur ekki muna um að skreppa frá Reykjavík austur á Flúðir og það kostar aðeins 200-kall," segir Halldór Jónsson húsgagnabólstrari og Nissan Leaf-eigandi."

Raforkukostnaðurinn er því um tvær krónur á kílómetrann.

"Áður var þetta eldsneytiskostnaður upp á 5-6 þúsund krónur fram og til baka," segir Halldór Jónsson."

Meðalakstur einkabíla í Reykjavík er um 11 þúsund kílómetrar á ári og því er raforkukostnaður vegna rafbílsins Nissan Leaf þar um 22 þúsund krónur á ári, þar sem kostnaðurinn er um tvær krónur á kílómetra.

Meðalstórt heimili í Reykjavík notar hins vegar um fjögur þúsund kWst raforku fyrir um 70 þúsund krónur á ári.

Raforkukostnaður vegna rafbílsins er því minni en þriðjungur af þeim kostnaði.

"Every US specification Nissan LEAF is backed by a New Vehicle Limited Warranty providing: [...] 96 months (í átta ár)/100,000 miles (eða 161 þúsund km.) Lithium-Ion Battery coverage (whichever occurs earlier)."

Nissan Leaf 2013

Og miðað við 11 þúsund kílómetra akstur á ári tekur um fimmtán ár að aka 161 þúsund kílómetra.


Þorsteinn Briem, 26.3.2013:

"Rafbíllinn Tesla Roadster eyðir einni hleðslu, 7,2 kílóvattstundum, frá Reykjavík til Akureyrar á 80 kílómetra hraða á klukkustund fyrir 68 krónur á taxta Orkuveitu Reykjavíkur, 1,51 kílóvattstund á klukkustund 382ja kílómetra vegalengd.

Tesla Roadster fer 388 km. á einni hleðslu

VW Polo BlueMotion, sem var valinn bíll ársins 2010, eyðir einungis 3,3 lítrum á hundraðið og er sparneytnasti og umhverfisvænsti fimm sæta bensínbíllinn í heiminum. Hann eyðir því 12,6 lítrum af bensíni á milli Reykjavíkur og Akureyrar, sem kosta nú 2.330 krónur, eða 34 sinnum hærri upphæð en rafhleðsla Tesla Roasters á þessari leið.


Bensín á nýjan 2,2ja milljóna króna bíl kostar hér að meðaltali 172.800 krónur á ári, miðað við 40 kílómetra akstur a dag og 144 krónur fyrir lítrann af bensíni, samkvæmt Félagi íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB).

En nú kostar lítrinn 185 krónur og miðað við þá upphæð og 30 kílómetra akstur á dag að meðaltali þyrfti að kaupa bensín á VW Polo BlueMotion fyrir að minnsta kosti 166.500 krónur á ári.

Og 34 sinnum lægri upphæð í kaup á raforku fyrir Tesla Roadster er fimm þúsund krónur á ári, 14 krónur á dag, eða 10% af raforkukaupum meðalfjölskyldu á ári.

VW Polo Bíll ársins 2010

Meðalfjölskylda notaði hér á Íslandi 4.400 KWh af rafmagni árið 2008 fyrir 52.400 krónur, eða 144 krónur á dag, sem er um 30% lægra verð en árið 1997, en verð á raforku frá Orkuveitu Reykjavíkur til heimilisnota er nú 9,49 krónur fyrir kílóvattstundina.


Í febrúar 2012 var innkaupsverð á bensíni hér á Íslandi um 94,50 krónur, flutningur, tryggingar og álagning um 32,40 krónur, fast kolefnisgjald 5 krónur, fast bensíngjald samtals um 64 krónur og virðisaukaskattur um 50 krónur.

Í ágúst 2007 var innkaupsverð á bensíni um 34,40 krónur en í febrúar 2012 um 94,50 krónur, tæplega þrisvar sinnum hærra en í ágúst 2007.

Bensín kostaði hér á Íslandi um 120,70 krónur í ágúst 2007 en um 245,90 krónur í febrúar 2012, 104% eða tvisvar sinnum meira en í ágúst 2007.

Og alls var flutt hér inn bensín á bíla fyrir um 11,5 milljarða króna (CIF-verð) árið 2008.

Cif-verð (Cost, Insurance, Freight) = fob-verð að viðbættum kostnaði sem fellur á vöruna þar til henni er skipað upp í innflutningslandi.

Hávaðamengun og loftmengun vegna bensínbíla kostar einnig mikið fé.

Loftmengun í Reykjavík er aðallega vegna bílaumferðar, hljóðmanir hafa verið reistar og Reykjavíkurborg hefur styrkt eigendur húsnæðis við Hringbrautina til að kaupa þykkra rúðugler vegna hávaða frá umferðinni."

Verð á gasi, raforku og bensíni í Evrópusambandsríkjunum er mjög mismunandi, enda er Evrópusambandið ekki eitt ríki.

Þar að auki hefur verð á öllum þessum orkugjöfum hækkað, ekki einungis verð á raforku.

Og verð á bensíni á bensínstöðvum í Noregi er með því hæsta í heiminum, enda þótt Noregur sé níunda stærsta olíuútflutningsríki heimsins.

Fuel prices in Europe in August 2022

"The average UK household electricity price is at least 30 per cent higher than in many of its European neighbours."

Image

Ódýrara er að hlaða rafbílana á nóttunum í Evrópusambandsríkjunum, þegar raforkunotkun heimila og fyrirtækja er minnst, og þar hafa verið settir upp snjallmælar á heimilum til að fylgjast með raforkunotkuninni.

Þorsteinn Briem, 9.9.2022 kl. 15:22

2 identicon

Ég gleðst fyrir hönd Þorsteins Briem

að búa í Ungverjalandi,

ríki Victor Orbans, þar sem rússneskt gas og olía fær að flæða áfram.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 9.9.2022 kl. 16:16

3 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Einhvern tíman heyrði ég að búa nálægt rafmagnskassa og yfirleitt að vera og nálægt rafmagni væri krabbameinsvaldandi!!

Sigurður I B Guðmundsson, 9.9.2022 kl. 18:46

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þorsteinn þetta er EKKI spurningin um hvort menn hafi EFNI á hlutunum eða ekki heldur er verið að fjalla um HEIÐARLEIKA en líklega er það hugtak sem þú og fleiri LANDRÁÐAFYLKINGARMENN þekkið ekki eða að minnsta kosti VIRÐIÐ ekki.......

Jóhann Elíasson, 9.9.2022 kl. 20:38

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já Símon Pétur frá Hákoti, Þorsteinn getur staðið í því að hlaða rafmagnsbíla á nóttunni þar niður frá á meðan það verður leyfilegt..... 

Jóhann Elíasson, 9.9.2022 kl. 20:42

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það á sjálfsagt margt eftir að koma fram um þessa "umhverfisvænu" bíla, Sigurður og sennilega er styttra í það en marga grunar......

Jóhann Elíasson, 9.9.2022 kl. 20:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband