HVAÐ ER EIGINLEGA Í GANGI HÉR Á LANDI OG VÍÐAR?????????

Nú upp á síðkastið hafa verið MJÖG miklar verðhækkanir á sjávarafurðum (hjá okkur almenningi heitir þetta fiskur og afurðir úr fiski).  Kunningi minn er á frystitogara og hann kom að máli við mig og hann hafði fréttir af því að þorskur, sem fór í "fish and chips" í Bretlandi, hafði hækkað um rúmlega 98% en hann hafði ekki séð neina hækkun á sínum launum síðustu mánuði.  Hann sýndi mér nokkra síðustu launaseðla máli sínu til stuðnings.  Ég veit ekki betur en að fiskur af Frystitogurum hér á landi fari eða réttara sagt eigi að fara beint á markað og því verð hækkun á launum sjómanna þegar hækkun á fiski verður á markaði.  Eru Íslendingar kannski hættir að selja á markaði þar sem verð er hátt?Nú er komin í ljós mikil hækkun á fiski undanfarið á fiskafurðum, talað er um að verð á fiski hafi hækkað um allt að 30% upp á síðkastið, svo eru margir alveg kjaftbit á að það sé farið fram á launahækkanir í næstu kjarasamningum.....

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er það ekki vegna þess að allt er í hendi útgerðanna,söluskrifstofur erlendis og vinnslan hérlendis,eftirlitið er hjá þeim sjálfum og þar með eru sjómenn hlunnfarnir,þó verðið hækki erlendis er reynt að hylja það af útgerðinni sjálfri og enginn þorir að gera neitt í málinu,mafían ræður sínu. 

Sigurgeir Árnason (IP-tala skráð) 20.10.2022 kl. 11:42

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þetta er alveg hárrétt hjá þér Sigurgeir og að undarlega er að það virðist enginn sýna nokkurn áhuga á því að neinar breytingar verði á þessu....

Jóhann Elíasson, 20.10.2022 kl. 11:51

3 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

LÍÚ hvað ha!!!

Sigurður I B Guðmundsson, 20.10.2022 kl. 21:51

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já Sigurður útgerðin virðist ansi víða koma við sögu í því neikvæða sem er að gerast hér á landi.........

Jóhann Elíasson, 20.10.2022 kl. 22:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband