GOTT I BILI........

Nú er ég búinn að fá nóg af blogginu í bili, samt er ég nú  ekki alveg hættur ég kem til með setja inn einhverjar athugasemdir inn og svo kem ég líklega til með að blogga eitthvað seinna.....


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Það verður mikill missir af þér hér á blogginu en sem betur fer segist þú nú ætla að koma inn með eitt og eitt síðar! En ég vil þakka þér fyrir öll þín blogg og nú mun ég ekki fara eins oft inn á bloggið og áður. 

Sigurður I B Guðmundsson, 31.1.2023 kl. 11:23

2 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Sæll Jóhann.

Þau eru nú alltaf hressileg blogginn hjá þér og málefnaleg. Ég vona að þetta sé nú bara

smá vetrarfrí hjá þér og þú verður hér aftur innan skamms.

M.b.kv.laughing

Sigurður Kristján Hjaltested, 31.1.2023 kl. 11:23

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Sigurður ég vil þakka þér fyrir hversu mikið þú hefur komið inn á bloggið hjá mér (þrátt fyrir að mér finnst ég ekkert eiga það sérstaklega skilið) og það eru margir sem eru með mjög góð og fræðandi blogg og vil ég sérstaklega benda á bloggið hjá Arnari Þór Jónssyni, sem mér finnst alveg sérstaklega gott.  Jú Sigurður ég er eins Marteinn Mosdal "ég kem allraf aftur"..... wink

Jóhann Elíasson, 31.1.2023 kl. 11:59

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Sigurður Kristján Hjaltested, ég vil segja það sama við þig og við nafna þinn og svo vil ég þakka fyrir góð orð í minn garð.  Eins og sagði þá er ég ekki endanlega hættur heldur bara í pásu.......

Jóhann Elíasson, 31.1.2023 kl. 12:06

5 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Þú ert með kjarnyrtari Mogga bloggurum Jóhann, og verður mikill missir af þínum skörpu bloggum. Ég veit samt að það er ágætt að hvíla sig á hliðarlínunni við og við, og gott að heyra að þú hefur hugsað þér það. Ég er sammála þér í því að bloggið er óvenju vel skipað þessa stundina, bæði nýir og gamlir ákvæðabloggarar sem fara nú stórum, eins er mikið um allskonar fróðleik. Ég óttaðist það satt að segja um tíma að Mogga bloggið væri að geispa golunni. Hafðu það gott í fríinu Jóhann.

Magnús Sigurðsson, 31.1.2023 kl. 13:12

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þakka þér fyrir góð orð í minn garð Magnús og sömuleiðis hef ég haft mikla ánægju af að lesa þín skrif.  Já þeir eru margir góðir hérna á blogginu og finnst mér endurnýjunin mjög góð og bjartir tímar framundan  ég er sérstaklega ánægður með það að Arnar Þór Jónsson skyldi ganga til liðs við Mogga bloggið.  Þakka þér fyrir, ég kem örugglega til með að hafa það gott í fríinu; er það ekki hugarfarið sem skiptir mestu máli um það hvernig maður kemur til með að hafa það?????

Jóhann Elíasson, 31.1.2023 kl. 13:36

7 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Þú ert með þeim albestu Jóhann. Einnig eruð þið fyrirmyndir okkar sem erum nýbyrjuð að þið hafið verið aðhald fyrir ríkisstjórnir sem hafa gert að lögum ýmislegt sem hefði betur mátt sleppa. Ég finn stundum fyrir ákveðnu tilgangsleysi þegar ríkisstjórn og valdhafar gera sinn óskunda þrátt fyrir gagnrýni og aðhald. En ég vona að þú hafir það sem best. Stundum ert þú algjörlega einstakur og segir betur en allir aðrir það sem þarf að segja. Bestu kveðjur.

Ingólfur Sigurðsson, 31.1.2023 kl. 18:54

8 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þakka þér góð orð í minn garð Ingólfur. Ég verð nú að sega að mér finnst þú kannski vera full örlátur á lofið svo ég verð kannski bara montinn.  Ég hef það örugglega gott ef maður ætlar sér að hafa það gott þá hefur maður það gott.  Það er ekki eins og ég yfirgefi sviðið fyrir fullt  og allt.  Það er fullt af góðum bloggurum sem ég kem til með að fylgjast með og svo set ég inn eina og eina athugasemd og kannski set ég eitthvað inn ef andinn kemur yfir mig......

Jóhann Elíasson, 31.1.2023 kl. 20:19

9 Smámynd: Snorri Gestsson

Treysti því að þú haldir áfram að rýna auðlindirnar okkar og komir frískur úr fríinu !

Snorri Gestsson, 1.2.2023 kl. 06:50

10 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þakka þér kærlega fyrir Snorri, ég vona að það  verði engin stórbreyting á mér í fríinu.........wink

Jóhann Elíasson, 1.2.2023 kl. 08:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband