INNFLUTNINGUR TIL LANDSINS - HUGLEIÐING...........

Ég held það hafi verið 1988, sem var nokkuð mikil umræða um Íslenska framleiðslu á móti innfluttum UPPÞVOTTALEGI, sem því miður endaði með því að Íslenska framleiðslan varð UNDIR í þeirri baráttu.  En við skulum fara örlítið nánar yfir þessi mál, en ég ætla að skoða tvö mál annað er uppþvottalögurinn og hins vegar "innflutning" á bökunarvörum til landsins:

Við skulum byrja á því að fjalla um UPPÞVOTTALÖGINN. Fyrir það fyrsta þá eru um 90% af uppþvottalegi VATN.  Á þessum tíma (um 1988), var verðið á innfluttum uppþvottalegi um það bil 1/3 LÆGRI en á Íslensku framleiðslunni en á móti kom að það þurfti um það bil ÞRISVAR SINNUM MEIRA MAGN AF INNFLUTTU VÖRUNNI TIL AÐ SKILA SAMA ÁRANGRI.

Þá er komið að BÖKUNARVÖRUNUM.  Ég var að hlusta á viðtal við bakarameistara áðan og hjá honum kom fram að innflutningur á bökunarvörum væri alveg gríðarlega mikill, EÐA UM 14 TONN Á DAG.  Þá kom líka fram hjá honum að visst hlutfall af deiginu væri VATN (ekki nefndi hann neitt sérstakt hlutfall enda hlýtur það að vera misjafnt eftir því hvort er verið að baka brauð, kökur eða kex).  En samkvæmt þessu er varlega áætlað að flutt séu inn til landsins TVÖ-ÞRJÚ TONN AF VATNI Á DAG.

Ég man eftir því að það hefur löngum gengið hér á landi ef verið er að tala um að ef einhver vitleysa er í gangi þá er því líkt við að ef KAFFI VÆRI FLUTT TIL BRASILÍU.  EN HVAÐ MEÐ ÞAÐ AÐ VERIÐ SÉ AÐ FLYTJA VATN TIL ÍSLANDS?????????


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Sæll Jóhann, orð í tíma töluð.

Íslenskt regluverk hefur reyndar alltaf verið ginkeypt fyrir þeim sem vilja græða og þá sérstaklega á innflutningi, því þar ertu bara að hirða mismun án framtaks eða fjárfestingar. Þetta verð ég t.d. var við í byggingargeiranum, húsin eru pöntuð CE vottuð að utan og gámur af austantjöldum með til að reisa þau.

Regluverkið og eftirlitsiðnaðurinn þvælist síðan fyrir ó-CE-vottuðum innlendum byggingaaðilum og hefur náð að koma alveg veg fyrir að Jón og Gunna geti byggt sitt þak yfir höfuðið sjálf.

Regluverkið hefur verið svo rækilega sérhannað fyrir innflutning að það hefur ekki einu sinni verið möguleiki á því að frysta vatn á Íslandi í samkeppni við innflytjendur.

Fluttur er inn norskur klaki og dönsk rabbabarasulta, sem fæst í verslunum, jafnvel þó svo að rabbabarinn vaxi á Íslandi eins og hvert annað illgresi.

En ef þú ætlar að koma upp rabbabarasuðu eða ísmola frystingu á Íslandi þá þori ég að veðja við þig að þú munt aldrei geta keppt við innflutt frosið vatn hvað þá soðinn rabbabara, þó svo að þú ættir bæði Gvendarbrunnana og Hveradali. Regluverkið og eftirlitsiðnaðurinn mun sjá til þess.

Magnús Sigurðsson, 8.3.2023 kl. 15:10

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þetta var alveg frábærlega orðað hjá þér Magnús.  Svo virðist hugarfarið hjá okkur Íslendingum ekkert vera neitt sérstaklega hagstætt fyrir innlenda framleiðslu.  Kannski er einhverri minnimáttarkennd um að kenna???????

Jóhann Elíasson, 8.3.2023 kl. 16:02

3 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sæll Jóhann, er þetta ekki bara það sem ég hef oft skrifað um og þið hér á síðunni að vandamálið er AUÐVALDIÐ á Íslandi?!

Það er allavega mín tilfinning fyrir svona sukki!

Kær kveðja frá Eyjum.

Helgi Þór Gunnarsson, 9.3.2023 kl. 14:53

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Jú Helgi það  er "skítt" að hugsa um hvernig þetta er allt saman..............

Bestu kveðjur af Suðurnesjunum

Jóhann Elíasson, 9.3.2023 kl. 15:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband