NÚ ER AÐ HARÐNA ATLAGAN AÐ BELJUNUN VEGNA MEINTRA ÁHRIFA ÞEIRRA Á LOFTSLAGIÐ

Þegar ég var í sveitinni í "gamla daga" og gegndi því virðulega starfi á bænum að vera "KÚAREKTOR", gerði ég mér ekki nokkra grein fyrir því að beljurnar væru stórhættulegar loftslaginu á jörðinni, vegna þess að þær slepptu út svo miklu "ÞARMAGASI", út í andrúmsloftið og yrðu fyrir vikið allt að því "RÉTTDRÆPAR" eftir nokkra áratugi.  Nú fyrir stuttu las ég það á "netinu" að menn ættu ekki að borða meira en 500 grömm af rauðu kjöti á VIKU.  Ég er nokkuð viss um það að þegar að því kemur að bændur "VERÐI LÁTNIR" skera niður kúastofninn hjá sér, þá verði "BÚINN TIL EINHVER SJÚKDÓMUR" sem á að ver að hrjá blessuð dýrin svo það verði að urða þau eða eyða þeim með því að brenna þau eða gera eitthvað annað við þau ÞVÍ ÞAÐ ER ALVEG Á HREINU AÐ ALLT ÞETTA KJÖT VERÐUR EKKI SETT Á MARKAÐ.  Fólki ætti að vera í fersku minni hvernig fór með "RIÐUVEIKISFÉÐ" og ætti að vera eitthvað öðruvísi með kýrnar?????????


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Þegar ég var í sveit í Öræfum (Hofi) þá var hugsað vel um beljurnar og ég rak þær á beit og svo komu þær sjálfar til baka. Enginn talaði um að þær væru stórhættulegar mannkyninu heldur bjargvættir fyrir fólkið þarna.  

Sigurður I B Guðmundsson, 6.6.2023 kl. 16:16

2 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Beljur eru sagðar heilagar á Indlandi, og ég gæti trúað að þær séu allavega jafnheilagar þar og skurðagrafan er í mínum heimabæ sem kalla mætti heimabæ skurðgröfunnar. Skurðgröfur eru miklir kolefnisjafningjar og voru jafnvel notaðar  til að að moka ofaní gamla skurði á meðan votlendissjóður var kolefnisjafnaður ofan í valda vasa.

En ætli mengandi beljurnar verði ekki kolefnisjafnaðar ofan í nýjan skurð eftir að hafa verið fluttar heilan hring um hnöttinn eins og fjór-flokkaða sorpið í Reykjavík áður en það er brennt í gamalli sementsverksmiðju í Þýskalandi í suðaustan sjö svo reykurinn kolefnisjafnist við svifrykið heimaborg tóma votlendissjóðsins.

Magnús Sigurðsson, 6.6.2023 kl. 16:41

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þarna er ég 100% sammála Sigurður, beljurnar og hafa alltaf verið bjargvættir.  Ég var ekki nema 7 ára gamall þarna í sveitinni og mér þótti alla tíð mjög vænt um beljurnar og urðu þær fljótt góðir vinir mínir þær virtust alveg treysta mér og mér virkilega vænt um þær og virkilega flottir karakterar og hverja eina þekkti ég með nafni og ég man að mér þótti gaman að "spjalla" við þær þótt það væri nú þannig að ég sá eingöngu um "röflið" þær sýndu mér mikla þolinmæði.......

Jóhann Elíasson, 6.6.2023 kl. 17:01

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Flottur Magnús eins og þín er von og vísa.  Ég er eiginlega á því að VOTLENDISSJÓÐUR hafi verið eitt af STÓRU floppunum" í loftslagsmálunum, en það er bara mín skoðun..............

Jóhann Elíasson, 6.6.2023 kl. 17:05

5 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Sammaála ykkur Sigurði með beljurnar þær eru miklir karakterar og bjargvættir, á góðar minningar af kunningsskap við þær í sveitinni.

Magnús Sigurðsson, 6.6.2023 kl. 17:50

6 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Hefði kúm og ám ekki notið við á dögum forfeðra okkar væri íslenska þjóðin ekki til í dag. En til eru þeir sem vilja eyða okkur og þjóðinni allri, ásamt kúm og ám, þeir kallast siðblindir glæpamenn á nútíma máli.

Tómas Ibsen Halldórsson, 6.6.2023 kl. 18:33

7 Smámynd: Jóhann Elíasson

Tómas, það er engu líkara en einhverjir geri sér ekki grein fyrir því að dýr og menn eru hluti af "keðju", þar sem allir spila sitt hlutverk og styrkleiki "keðjunnar" takmarkast við styrk veikasta hlekksins í keðjunni.........

Jóhann Elíasson, 6.6.2023 kl. 20:12

8 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Það er heila málið Jóhann, þetta veit hið siðblinda fólk enda er þeim sama um alla aðra en það sjálft.

Tómas Ibsen Halldórsson, 6.6.2023 kl. 22:14

9 identicon

Ætli að sagan af Búkollu verði bönnuð?

Jóhannes (IP-tala skráð) 7.6.2023 kl. 15:08

10 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já, alveg örugglega  Jóhannes.... cool

Jóhann Elíasson, 7.6.2023 kl. 19:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband