NÚ ER HEMSMARKAÐSVERÐIÐ ORÐIÐ ÖRLÍTIÐ HÆRRA EN ÞEGAR "HÆKKUNARHINAN" BYRJAÐI....

Í janúar árið 2020 var heimsmarkaðsverðið á bensíni $0,64 en í apríl sama ár fór heimsmarkaðsverðið alveg niður í $0,57 síðan hefur verið um hækkun að ræða, sem varð mest í maí 2021 og fór í $1,13 en eftir það hófst lækkunarferlið, sem stendur enn yfir og er verðið komið í $0,69 og er ekki lokið í dag.  EN VERÐIÐ Á BENSÍNLITERNUM ER EKKERT Í NÁMUNDA VIÐ ÞAР  SEM VERÐIÐ VAR, ÞEGAR ÞESSI "HÆKKUNARHRINA" HÓFST.  Það hefur oft verið gert grín að því að þegar heimsmarkaðsverið á olíu og bensíni HÆKKAR að þá séu til svo LITLAR BIRGÐIR AF OLÍU OG BENSÍNI Í LANDINU en svo þegar verðið EN ÞESSU ER ÖFUGT FARIÐ ÞEGAR LÆKKUN VERÐUR, þá eru til svo miklar birgðir í landinu af olíu og bensíni á HÁA VERÐINU.  En nú hljóta þessar MIKLU BIRGÐIR AÐ VERA Á ÞROTUM OG VERÐIÐ ÆTTI AÐ FARA AÐ NÁLGAST ÞAР SEM ÞAÐ VAR ÁÐUR EN "HÆKKUNARHRINAN" HÓFST.  Eða eru olíufélögin að auka álagninguna hjá sér og er verið að láta almenning greiða fyrir ORKUSKIPTIN???????????  


mbl.is Fyrirboðar niðursveiflu halda niðri olíuverðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Svo er þetta bara og ekkert hægt að gera í því. 

Sigurður I B Guðmundsson, 12.6.2023 kl. 15:01

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Nei það er alveg rétt Sigurður að svona er það og ekkert við því að gera en það er allt í lagi að minna aðeins á hlutina, varla versnar ástandið við það????????????????

Jóhann Elíasson, 12.6.2023 kl. 15:37

3 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Það gæti bara kostað verðbólgufall og vaxtalækkun í Seðlabankanum ef eitthvað verður farið að rugga bátnum, -og ekki vill neinn það er það?

Magnús Sigurðsson, 12.6.2023 kl. 18:44

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Magnús það er enginn sem gerir það, nema hann hafi engra hagsmuna að gæta eins og til dæmis að maðurinn sé hættur í vinnu og stofni ekki afkomu sinni og fjölskyldunnar í hættu.......

Jóhann Elíasson, 12.6.2023 kl. 20:35

5 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Það virðist vera þannig Jóhann, eins og þú reyndar segir undir rós í pistlinum, að engin vilji sé til að lækka verð sem hefur einu sinni hækkað, alltaf séu einhverjir tilbúnir til að hirða hækkunina þó svo að kostnaðurinn lækki.

Verðhjöðnun hefur lengi verið litin hornauga af stjórnvöldum á landinu bláa, enda gengur slektið fyrir vísitöluhækkunum, -og gleymum ekki því að þjóðin hefur verið heilaþveginn með þannig hagvexti.

Það mun engin standa upp og fara út á götur til að mótmæla eldsneytishækkunum, Sturla og vörubílstjórarnir urðu síðastir til þess hér á landi í óþökk þjóðarinnar.

Magnús Sigurðsson, 13.6.2023 kl. 05:58

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þetta er akkúrat það sem er "meinið", Magnús og svo horfum við aðgerðalaus á þetta gerast án þess að nokkur hreyfi "litlafingur" einu sinni.....

Jóhann Elíasson, 13.6.2023 kl. 07:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband