ÞAÐ VAR MIKIÐ AÐ MENN TÓKU LOKSINS VIÐ SÉR!!!!!!!!!

Það hefur ekki dulist nokkrum manni, sem er með rétt rúmlega hálf-fimm, að það hafa verið VERULEG vandræði á "stjórnarheimilinu" og steininn tók alveg úr þegar hún tók upp á því að "fresta" hvalveiðum deginum áður en þær áttu að hefjast og svo bætti hún um betur og stöðvaði STRANDVEIÐAR.  En þessi ágreiningur varð opinber á Bessastöðum þegar Dómsmálaráðherraskiptin urðu og hafa verið að stigmagnast síðan þá.  Að mínum dómi, var ríkisstjórnin í rauninni fallin þarna en forráðamenn hennar náðu sér í "GÁLGAFREST" til haustsins með því að senda "Þingið" heim, EN Í HAUST BYRJAR HASARINN OG ÞAÐ VERÐUR FRÓÐLEGT AÐ FYLGJAST MEÐ ATBURÐARRÁSINNI........


mbl.is Þolinmæðin á þrotum: „Miklar ógöngur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Mikið rétt Jóhann- við þetta má bæta annarri dís.

Þeirri sem því sem næst sleit stjórnmálasambandi við eina af stóru viðskiptaþjóðum íslendinga í gegnum tíðina, korteri eftir að þingið fór í frí. 

Sá gjörningur hygg ég að svíði mörgum sjálfstæðismanninum, þó ekki séu þeir eðal eins og þeir kumpánar sem blása til þessarar fréttar.

Þeir vonandi taka þá líka til heima hjá sér úr því að þeir eru á annað borð byrjaðir.

Tími komin til að setja þessa ríkisstjórn, -sem betur hefði aldrei orðið, -á ruslahauga sögunnar.

Magnús Sigurðsson, 29.7.2023 kl. 18:23

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Svo ekki sé nú talað um þá ósvinnu, Magnús.  Sá gjörningur virðist hafa komið því inn hjá Ráðherrum ríkisstjórnarinnar að þeir gætu gert það sem þeim sýndist, án þess að það væri hægt að "snerta" nokkuð við þeim.  Segir ekki einhvers staðar "AÐ DRAMB SÉ FALLI NÆST"??????

Jóhann Elíasson, 29.7.2023 kl. 18:47

3 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Skaðinn er skeður. Það verður að losa landið undan "fjórflokknum". 

Sigurður I B Guðmundsson, 29.7.2023 kl. 18:56

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Mér sýnist allt stefna í það, Sigurður.......

Jóhann Elíasson, 29.7.2023 kl. 19:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband