ÞAÐ HEFUR FREKAR LITLA ÞÝÐINGU AÐ AFNEITA ÞVÍ SEM AUGLJÓST ER....

Nú hlýtur að fara að styttast í það að opinber umræða fari í gang um aðgerðir Matvælaráðherra í HVALAMÁLINU síðastliðiðið sumar (Umboðsmaður Alþingis hlýtur að fara að skila þeirri skýrslu af sér) og svona "mjálm", eins og núna kemur frá Forsætisráðherra, gerir það sennilega að verkum að umræðan verður enn óvægnari.  Svo má geta þess að margir ráðherra núverandi Ríkisstjórnar eru staddir inni á miðju "jarðsprengjusvæði" ef færi fram skoðun á störfum þeirra á ýmsum sviðum gagnvart ÞINGI og ÞJÓÐ.  Þar skal fyrst nefna hina svokölluðu "BÓLUEFNASAMNINGA", sem mér skilst að almennir þingmenn hafi ekki þann dag í dag fengið að sjá, ekki hafa öll útgjöld ríkisins, vegna stríðsins í Úkraínu komið fyrir þingið ofleira mætti tína til.......


mbl.is Hafnar því að Svandís sé í klemmu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Það er eins og enginn þori að taka nauðsynlegar ákvarðarnir sem gætu verið óvinsælar heldur bara hugsa um að halda frið og fá góð laun. 

Sigurður I B Guðmundsson, 29.10.2023 kl. 10:41

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þarna komst þú akkúrat inn´það sem er stærsta vandamál okkar í dag, Sigurður, það þorir enginn að gera neitt......

Jóhann Elíasson, 29.10.2023 kl. 12:16

3 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Þörf ádrepa Jóhann, -og tek undir með ykkur Sigurði.

Svo virðist það taka umboðsmann alþingis óratíma að stauta sig í gegnum lagatexta, auk þess að þegar svo loksins eitthvað afgerandi kemur, þá er úrskurðurinn hafður í flimtingum af ríkisstjórn Íslands.

Magnús Sigurðsson, 29.10.2023 kl. 15:04

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þarna erum við alveg á sama máli Magnús og eins og Sigurður segir  þá er aumingjaskapurinn í ráðamönnum alveg "hrópandi" og með öllu yfirgengilegur.....

Jóhann Elíasson, 29.10.2023 kl. 15:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband