ERU "HÆLISLEITENDUR" HELSTI FORGANGSHÓPURINN Á LANDINU ÞESSA DAGANA????

Það er ekki að undra að svona sé spurt í ljósi rýmingarinnar í Grindavík.  Ég verð að segja að mér var stórlega misboðið þegar mér bárust fréttir af því hvernig að þessari rýmingu var staðið og hvernig "HÆLISLEITENDUR" VORU MEÐHÖNDLAÐIR Á ALLT ANNAN OG BETRI HÁTT EN ÍSLENDINGAR (Ég vil alls ekki mismun fólki sem er kominn hingað komið til að vinna fyrir sér og sínum eins og Pólverjar og annað harðduglegt fólk af EES-svæðinu).  Það voru milli 100 og 120 hælisleitendur í Grindavík á vegum Vinnumálastofnunar, þegar rýming bæjarins fór fram.  Þessir aðilar fengu heldur betur sérmeðferð, þeir voru ekkert fluttir á einhverjar FJÖLDAHJÁLPARSTÖÐVAR eins og aðrir íbúar Grindavíkur urðu að gera sér að góðu, með "hermannabeddum" til að sofa á sem er að sjálfsögðu ekki hægt að bjóða "HÆLISLEITENDUM" upp á en er víst alveg nógu og gott fyrir aðra íbúa Grindavíkur.  Samkvæmt mínum heimildum, sem ég hef ekki kannað nánar en ég hef enga ástæðu til að rengja þær, þá fór einn þriðji þessara hælisleitenda í úrræði á Lagavatni, einn þriðji þeirra fór á hótel Glym í Hvalfirði og síðasti þriðjungurinn fór á hótel í Borgartúninu.  ERU ÍSLENDINGAR OG ÞEIR SEM TIL LANDSINS ERU KOMNIR TIL AÐ VINNA TIL AÐ SJÁ SÉR OG SÍNUM FARBORÐA ANNARS FLOKKS BORGARAR Í ÞESSU LANDI???????????


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Loncexter

Hælisleitendur hafa verið með alls kyns forréttindi lengi. Þegar svona margar konur hafa sest að í velferðarkerfinu, er þetta bara svona og verður svona.

Loncexter, 14.11.2023 kl. 17:06

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ætli þetta sé ekki hluti af vandamálinu??????

Jóhann Elíasson, 14.11.2023 kl. 20:05

3 Smámynd: Loncexter

Jú, stór hluti hælisleitenda er ekki hér að því að þjóðin vill borga fyrir þá. 

Heldur eru þetta aðalega of hjartahlýjar konur í stjórnkerfinu sem vilja bjarga öllu og öllum, en gleyma kostnaðarhliðinni því miður.

Loncexter, 14.11.2023 kl. 21:29

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já og svo er líka fjandi gott að vera "góður" fyrir fjármuni annarra........

Jóhann Elíasson, 14.11.2023 kl. 22:15

5 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Hælislæeitendur fengu megnið af peningunum úr viðlagasjóði líka.

Bara svo því sé haldið til haga.

Íslenska ríkið vanvirðir íslendinga við hvert tækifæri.

Ásgrímur Hartmannsson, 15.11.2023 kl. 14:20

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Var ekki líka farið í "FRAMKVÆMDASJÓÐ ALDRAÐRA" og hann tæmdur og hann er örugglega víðar "SKÍTURINN" sem hefur verið "FALINN" til að "fela" kostnaðinn við  hælisleitendur??  Ég held að það kæmi margt fróðlegt í ljós ef SJÓÐIRNIR sem hafa verið settir á frá um það bil 1970 og jafnvel fyrr yrðu vandlega rannsakaðir........

Jóhann Elíasson, 15.11.2023 kl. 16:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband