Hver ber ábyrgðina?

Þetta er nú meiri sorgarsagan og manni dettur bara í hug að maður sé að lesa "stórlygasögu" þegar maður les fréttaskýringu "Blaðsins" um aðdraganda kaupanna á þessu "hræi", viðgerðirnar og endurbæturnar.  Þrátt fyrir að Ólafur Briem, skipaverkfræðingur hjá Siglingamálastofnun (mjög vandaður maður og virtur og sérstaklega fær á sínu sviði) og fleiri aðilar segðu að það væri algjört glapræði að kaupa þetta skip var skipið samt keypt.  Skipið var keypt í lok Nóvember árið 2005 fyrir 102 milljónir króna og hætt er við því að samanlagt kaupverð og viðgerða og endurbótakostnaður verði um 600 milljónir króna en  til samanburðar væri kostnaður við nýsmíði áætlaður 350 - 400 milljónir króna miðað við 29 metra skip.

En þá er komið að þætti samgönguráðuneytisins, sem er vægst sagt með ólíkindum.  Það er ljóst að hlutur fyrrverandi Samgönguráðherra er þarna langstærstur, Þegar ákvörðun er tekin um kaupin er Sturla Böðvarsson Samgönguráðherra og greinilega er hann ábyrgur fyrir allri vitleysunni, en það er ekki hægt að lýta framhjá aðgerðum eða aðgerðarleysi núverandi Samgönguráðherra.  Í kosningabaráttunni í vor var hann óþreytandi við að gagnrýna kaupin á þessu skipi og talaði hann mikið og fjálglega um hvað þetta hefðu nú verið slæm kaup, en nú kveður svo við að hann vill ekki tjá sig um málið fyrr en skýrsla frá Ríkisendurskoðun kemur.  Hefur maðurinn ekki sjálfstæða skoðun á málinu eftir að hann varð Samgönguráðherra? 

Með því að kaupa þetta ónýta hræ sýna stjórnöld, Vegagerðin og allir sem að þessu komu, Grímseyingum mikla lítilsvirðingu og landsmönnum er gefinn "fingurinn".  Hverjir stjórna þessari sóun?  Þurfti að skaffa skipasmíðistöðinni, sem vinnur verki, mikið verkefni?  Ég vona að ekki verði staðið svona að því að leysa samgöngumál Vestmannaeyinga.


mbl.is Svört skýrsla um Grímseyjarferjuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Öll þessi frásögn blaðsins er með miklum ólíkindum. þarna sýnist vera dæmi um eitthvað óhreint mjöl í einhverjum poka sem lesandinn vill fá að opna betur. Það sýnist vera nokkuð ljóst að annarhvor skoðunarmaðurinn er utan við raunveruleikann í þessu máli,-viljandi eða óviljandi.

Ég er ekki sammála þér um að samgönguráðherra sé orðinn ótrúverðugur í málinu. Mér finnst eðlilegt að hann bíði með yfirlýsingar og ályktanir þar til kominn er botn í allt saman. Ekki þá síst vegna þess að margt bendir til óvandaðra vinnubragða hjá fyrirrennara hans í starfi. Ef um slíkt er að ræða er rétt af ráðherranum að bíða þess að endanleg skýrsla og úttekt liggi fyrir.

En ef marka má fréttina er hér um ótrúlegt klúður að ræða ásamt ámælisverðum ráðstöfunum á fjármunum ríkisins.

Það er löngu kominn tími til að ráðherrar geti átt von á hlutlausri stjórnsýsluúttekt á störfum sínum. Og jafnframt því að þeim verði gert að axla ábyrgð á misferli eða mistökum rétt eins okkur almennum borgurum.

Árni Gunnarsson, 11.8.2007 kl. 21:39

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég segi ekki að Samgöngumálaráðherra sé ótrúverðugur í málinu ég bendi aðeins á það að allt í einu hefur hann ekki skoðun á málinu.  Hafi verið hægt að lesa það út úr því sem ég skrifaði,  að hann væri ótrúverðugur, biðst ég afsökunar á því það var alls ekki ætlun mín.

Jóhann Elíasson, 11.8.2007 kl. 22:33

3 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Já Jóhann ég sé að við höfum báðir höggvið í sama knérunninn(svo maður leyfir sér að reyna vera svolítið skáldlegur)Þetta dæmi með ferjuna er algerlega með einsdæmum.Og þessar sögusagnir um kaup íslenskra manna á ferjunni fyrst,(frumskóatrommurnar segja 10-20 milj)sem síðan eiga að hafa seld ríkinu hana með dágóðum hagnaði verður að rannsakast af hlutlausum aðilum.En þá kemur stóra spurningin finnast þeir yfirhöfuð á Íslandi.Kært kvaddur

Ólafur Ragnarsson, 12.8.2007 kl. 00:00

4 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Já það er með ólíkindum hve menn virðast seinheppnir.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 12.8.2007 kl. 01:58

5 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Ég vil ekki kalla þetta seinheppni. Þetta flokkast undir vanhæfni í starfi og eiga þeir sem skítinn eiga að dragast til ábyrgðar. Það gengur ekki að hvert fíflið á fætur öðru geti sóað fjármunum ríkisins eins og það skipti bara ekki nokkru máli.

kv. Halli 

Hallgrímur Guðmundsson, 12.8.2007 kl. 03:12

6 Smámynd: Árni Gunnarsson

Afsakaðu Jóhann, þetta með ótruverðugleikann er mín snöggsoðna túlkun.

Og Óli, við erum auðvitað allir sammála um að svona vinnubrögð eru ekki þolandi. Aðalatriðið nú er auðvitað það að ALLT komi upp á borðið að lokum. Ég var að lesa þína úttekt og sannarlega brá mér illa þegar ég heyrði óminn frá frumskógartrommunum. Það er vont að svona sögur skuli vera orðnar trúverðugar á okkar góða landi eftir ótrúlega mörg dæmi í þessa veru.

En þó að Samfylkingin sé engin uppáhaldsfjölskylda hjá mér ætla ég að treysta því að Kristján Möller leggi spilin á borðið að lokum.

Líklega hef ég verið pínulítið "bláeygður" þegar ég nefndi hlutlausa aðila!

Árni Gunnarsson, 12.8.2007 kl. 09:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband