Bensín – olíuhækkanir. Eru þær lögmál?

Enn eru olíufélögin að taka okkur neytendur í ra....... með því að hækka bensínið, án þess að nokkur sjáanleg ástæða sé til staðar, við látum þetta bara yfir okkur ganga eins og ekkert sé sjálfsagðara.  Við verðum jú að kaupa bensín til þess að komast okkar ferða, en það dettur engum í hug að kannski ættum við, svona einu sinni að sýna forráðamönnum olíufélaganna að við látum ekki bjóða okkur svona lagað endalaust og einhvern tíma verður mælirinn fullur.  Við þurfum ekki í hvert einast skipti sem við förum út fyrir dyrnar að nota bílinn, það er hægt að ganga ef verið er að fara eitthvað stutt, strætó gengur (þó að ferðirnar séu á hálftíma fresti og leiðakerfið sé svo flókið að ekki er fyrir venjulegt fólk að læra á það og þar fyrir utan vagnstjórarnir skilja mann ekki) nú og svo getur maður farið að hjóla (mér er sagt að það sé góð hreyfing).  Það hefur sýnt sig að það dugir ekkert að leggja bílnum og liggja á flautunni í fimm mínútur til þess að mótmæla þessum bensínhækkunum – það er greinilegt að það þarf eitthvað róttækara til. Eitt kemur okkur neytendum nokkuð “Spánskt” fyrir sjónir:  Fyrir nokkrum árum,komu fram á völlinn menn sem tilkynntu okkur það að þeir ætluðu að segja “gömlu olíufélögunum” stríð á hendur, þessir menn ætluðu að sjá til þess að “landinn” fengi að kynnast alvöru samkeppni á olíumarkaðnum.  Að sjálfsögð urðu allir voða ánægðir, þessir framtaksömu aðilar byrjuðu á því að kaupa bensínstöð í vesturbæ Kópavogs og þar voru langar biðraðir af fólki sem dældu ódýru bensíni á bílana sína.  Brátt fjölgaði svo þessum bensínstöðvum þeirra og var þarna eingöngu um svokallaðar sjálfsafgreiðslustöðvar að ræða.  En viti menn, þrátt fyrir litla yfirbyggingu, ódýra dreifingu, lágan rekstrarkostnað (mín áætlun) Þá er verðið á bensíninu eiginlega það sama og hjá gömlu olíufélögunum hvernig ætli standi eiginlega á þessu?

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Því miður, held ég að þeir hafi fallið í þá gryfju að með því að vera með nánast sama verð og gömlu olíufélögin, þá yrði hagnaðurinn meiri og þá fór nú samkeppnin fyrir lítið.  Mér skilst nú að það vanti ekkert á að það sé verslað við þá þrátt fyrir allt.

Jóhann Elíasson, 2.9.2007 kl. 13:15

2 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Kannski fellst lausnin í því að neytendur hætti að versla við eitt af félögunum og neyði það þannig til að lækka verðið. En þeir eru að setja undir þann leka með lykla málunum og sértilboðum fyrir lyklabörnin sín. En það er með þetta eins og allt annað hér á skerinu að við neytendur látum teyma okkur á eyrunum.Gott dæmi er sófasett og flatskjár fylgir með. Persónulega vildi ég fá sófasettið á réttu verði og kaupa mér flatskjá sjáfur ef að ég teldi mig hafa þörf fyrir hann. En aðalmálið er að við neytendur nýtum samtkamátt okkar

Jón Aðalsteinn Jónsson, 2.9.2007 kl. 13:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband