Föstudagsgrín

Þessi er dagsönn:hjón úr Mosfellsbænum Lögregluþjónn stöðvaði mann á fallegum brúnum Mersedes Benz á Vesturlandsvegi hér í Mosfellsbæ og auk ökumanns sem er virðulegur eldri maður var konan hans í bílnum. Lögreglumaðurinn: "Þú ókst að minnsta kosti á 120 km hraða og veist væntanlega að leyfilegur hámarkshraði er aðeins 90 km á klst." Maðurinn: "Nei þetta er ekki rétt hjá þér, ég var á tæplega 100.." Konan: "Láttu ekki svona elskan mín, þú varst á 140, ég sá það." Lögreglumaðurinn: "Ég þarf einnig að setja á sektarmiðann að annað bremsuljósið er brotið." Maðurinn: "Brotið bremsuljós? Ég vissi það bara ekki!" Konan: "Æ, elskan mín, þú veist að það er búið að vera brotið í nokkrar vikur." Lögreglumaðurinn: "Ég þarf einnig að setja á sektarmiðann að þú hafir ekki verið með öryggisbelti." Maðurinn: "Heyrðu, láttu nú ekki svona ég losaði mig úr beltinu þegar þú stoppaðir mig." Konan: "Elsku kallinn minn , ekki segja svona, þú notar aldrei öryggisbeltið.." Maðurinn er nú greinilega orðinn eitthvað pirraður yfir konunni, hann snýr sér að henni og öskrar á hana: "Reyndu nú að þegja einu sinni!" Lögreglumanninum var farið að finnast þetta nokkuð skemmtilegt svo hann sneri sér að konunni og spurði hana: "Frú, talar maðurinn þinn alltaf svona við þig?" Konan: "Nei, bara þegar hann er fullur."

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Jónína Dúadóttir, 12.10.2007 kl. 08:24

2 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Góður

Hallgrímur Guðmundsson, 12.10.2007 kl. 11:39

3 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Georg Eiður Arnarson, 12.10.2007 kl. 21:10

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Gunnar Th. Gunnarsson, 12.10.2007 kl. 21:44

5 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Þessi er stórgóður Jóhann he he..

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 13.10.2007 kl. 01:11

6 Smámynd: Einar Örn Einarsson

hahahah  Góður Jóhann.

Einar Örn Einarsson, 13.10.2007 kl. 15:30

7 Smámynd: gudni.is

Góður....!! 

gudni.is, 13.10.2007 kl. 22:10

8 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Hann er Góður þessi Jóhann

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 14.10.2007 kl. 21:39

9 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Haraldur Haraldsson, 20.10.2007 kl. 00:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband