Fer ekki skórinn að verða fullur?

Ég sagði það í einni bloggfærslunni minni, að þessar stýrivaxtahækkanir virtust ekki hafa nein áhrif á verðbólguna, þetta væri eins og að pissa í skóinn sinn.  Ekki virðast Davíð og aðrir "hryðjuverkamenn" í Seðlabankanum vera búnir að átta sig á þessu og er þá nema von að maður spyrji hvort skórinn sem er verið að pissa í sé ekki að verða fullur? Woundering
mbl.is Spáir vaxtahækkun á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Gæti ekki verið þessu meira sammála/ ekki bara pissa heldur að drulla í skóinn / Kveðja Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 9.4.2008 kl. 13:34

2 Smámynd: Johnny Bravo

Skil ekki alveg, hvernig kerfi þú ert að tala um? Hver á þá að stýra eftirspurn? Ríkið? 

Þetta er bara tímabundin lausn, en það kvartar engin yfir því þegar menn lækka til að skapa eftirspurn og atvinnu.

Ef lækkanir skapa eftirspurn þá hljóta hækkanir að minnka eftirspurn?

Ef lækkanir veikja gengið, þá hljóta hækkanir að styrkja það.

Ef engar hækkanir hefðu komið til frá 2005, þá væru ennþá nóg af lánum og allir að eyða og verðbólgan búinn að vera 12-24% síðustu 12mánuði. 

Johnny Bravo, 9.4.2008 kl. 14:50

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég get ekki betur séð en að það skorti langtímamarkmið og skammtímamarkmið í peningastefnu Seðlabankans,eina markmiðið sem Seðlabankinn virðist hafa er að halda verðbólgu í skefjum og það vita allir hvernig hefur gengið að uppfylla það og þessir "snillingar" ættu að vera búnir að komast að því að stýrivextirnir hafa ekki verið að virka sem stjórntæki til að hafa áhrif á verðbólgu.  Er þá ekki kominn tími til að fara í aðrar aðgerðir?

Jóhann Elíasson, 9.4.2008 kl. 15:50

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jú þetta er komið alveg nóg. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.4.2008 kl. 15:56

5 Smámynd: Einar Örn Einarsson

Eigum við ekki að henda þessari krónu Jóhann??

Hún er vandamálið held ég.

Einar Örn Einarsson, 10.4.2008 kl. 10:40

6 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sæll Jóhann, ég held að Davíð sé í klofstígvélum. Kær kveðja frá Eyjum.

Helgi Þór Gunnarsson, 10.4.2008 kl. 18:07

7 Smámynd: Jóhann Elíasson

Mann fer að gruna að hann sé jafnvel í "vöðlum2 og það gæti nú hvarflað að einhverjum að hann væri í kafarabúningi.  Maður veltir fyrir sér að lyktin sé ekkert sérstök þegar þessar "græjur" fyllast.

Jóhann Elíasson, 10.4.2008 kl. 19:40

8 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Jóhann.

Það var vitað mál að þegar Seðlabankinn var aftengdur í formi laga á sínum tíma að sá hinn sami yrði ekki nokkurt stjórntæki á peningamálastefnuna sem lagður hafði verið grundvöllur að.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 11.4.2008 kl. 02:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband