Auðvitað gefa HRYÐJUVERKAMENNIRNIR ekkert upp hvað þeir gera!!!

En hvað veldur því að þetta "lið" kemur til Íslands að mótmæla?  Ætli það hafi eitthvað með það að gera að íslensk stjórnvöld taka alls ekki hart á þessu liði og það er meira litið á þetta lið eins og "misheppnaða auðnuleysingja"?  En þetta lið reynir ekki að fara til landa í Austur Evrópu eða Kína þar sem þörfin er mun meiri en hér á landi, því að í þessum löndum yrði tekið nokkuð "harkalega" á þeim.
mbl.is Mótmælabúðir á Hellisheiði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nei Jóhann, það hefur ekkert með linkind íslensku lögreglunnar að gera. Aktivistahreyfingar starfa allstaðar í veröldinni og eru öflugastar þar sem lögregluofbeldið er mest.

Eva Hauksdóttir (IP-tala skráð) 12.7.2008 kl. 20:49

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Annað segir kunningi minn sem er fréttamaður á Aftenposten.

Jóhann Elíasson, 12.7.2008 kl. 20:58

3 identicon

Jæja. Vinur þinn er þá væntanlega jafn vel upplýstur um eðli og umfang aktivisma og íslenskir blaðamenn.

Eva Hauksdóttir (IP-tala skráð) 12.7.2008 kl. 21:06

4 Smámynd: Rauða Ljónið

Hvað ætli þetta lið mengi mikið ,  það flýgur í álfuglum.

Og sendir frá sér CO2.

    dc8 05Ferðamanniðnaður

Saman komið og klætt eins og það er í raun.

findbuttons2 

    Flytur boðskað  Joseph McCarthy.

501px Joseph McCarthy Inn í áldós og kallast þá dummy.751px Controlled impact demonstration dummies.

Og sefur mikið.

Rauða Ljónið, 12.7.2008 kl. 21:20

5 Smámynd: Lilja Kjerúlf

Döööö þetta LIÐ, mjög vandað hjá þér...

Ég er mjög ánægð með að þau séu hérna.  Frábært framtak.

Áfram! áfram! Saving Iceland

Lilja Kjerúlf, 12.7.2008 kl. 21:24

6 Smámynd: Villi Asgeirsson

Ég gæti tekið undir hryðjuverkahjalið ef þau væru að reyna að sprengja Kárahnjúkastífluna í loft upp, stingandi göt á dekk Lúðvíks, kveikjandi í höfuðstöðvum OR eða eitthvað álíka. Að tjalda uppi á fjöllum eru ekki hryðjuverk. Að kalla þau hryðjuverkamenn gerir ekkert annað en að setja þann sem það segir í sama bás og Bush og félaga sem nota það orð yfir alla sem eru ósammála þeim.

Rauða ljón. Hvað hafa þau sameiginlegt með McCarthy?

Villi Asgeirsson, 13.7.2008 kl. 08:58

7 identicon

Pófessorinn hafði lengið vantað orð yfir þetta síðhærða kaffihúsapakk sem hefur uppi háreysti og læti. Gott ef það sest ekki fyrir framan vinnuvélar og stöðvar þannig þjóðþrifaverkin við að stemma ár landsins landi og lýð til heilla.

Loks fann Mambó orðið hér á þessu framúrskarandi gáfumannalega ritaða bloggi. "Hryðuverkamenn" þarna kom það.  Þetta blasir við. Í dag eru það kaffiþamb, mótmælaspjöld og gjallarhorn. Á morgun AK-47 og sjálfvígsárásir. Þetta sér hver maður.

Prófessor Mambó (IP-tala skráð) 13.7.2008 kl. 22:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband