Það á nú ekki að þurfa að koma með svona yfirlýsingar!!!!

Ég veit ekki til að það leiki nokkur vafi á því að ALLIR eigi að greiða þær skuldbindingar, sem þeir hafa tekið á sig.  Ég efast stórlega um að ég kæmist upp með það að neita að borga þær skuldir sem ég hef komið mér í, ansi er ég hræddur um að ég fengi bágt fyrir.  Kannski eru skuldirnar mínar ekki nógu og háar svo niðurfelling komi til greina.
mbl.is Glitnir mun innheimta skuldir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Þú hefðir kannski átt að vera búinn að fá þér grilljónir í lán, þá værirðu í góðum málum. Skuldlaus og flottur og kannski á fínum jeppa líka.. Nei, ætli þú fengir ekki bara að taka pokann þinn fljótlega og þyrftir að sofa í strætóskýli!

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 5.11.2008 kl. 23:07

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Jú ætli það ekki Sigrún.  En mér fannst það nú svolítið skondið ég fór upp í Hringrás um daginn, með eitthvað drasl til að "farga".  Þar var verið að "pressa" fimm ára gamla bíla á þetta horfði ég úr 12 ára gömlum bíl ég hugsaði með mér að það væri best fyrir mig að hypja mig áður en bíllinn minn yrði tekinn og "pressaður" og jafnvel með mig innanborðs.

Jóhann Elíasson, 5.11.2008 kl. 23:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband