Það veitir nú ekki af að fara að fægja Davíðsstjörnuna - það fellur svo hratt á hana...

Það kemur út hver skýrslan á fætur annarri sem, sýnir fram á að ríkisstjórnin og Davíð Oddsson, vissu hvað var framundan en samt sem áður var ekkert gert.  Og við sitjum uppi með þetta getulausa lið og eigum við bara að vera sátt við það?
mbl.is Seðlabankinn varaður við í júní
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Það sem fyrst og fremst þarf að leggja af eru úreltir stjórnunarhætti Sjálfstæðismanna. Þeir bera langmesta ábyrgð á þeim ákvörðunum í fortíðinni sem urðu til þess að við erum hér í dag. Það gæluverkefni Davíðs Oddssonar að láta krónuna okkar fljóta í alþjóðlegu fjarmálaumhverfi hefur verið okkur afspyrnu dýrt og endað með stórstrandi. Hvað hver vissi í júní er ekki aðalmálið, heldur svo margar stórar ákvarðanir sem teknar voru fyrr og löngu fyrr. Það er sá sannleikur sem við þurfum upp á borðið svo hægt sé að varast sömu mistökin síða. Við þurfum heildarsýn hvort sem hún er fögur eður ei.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 18.12.2008 kl. 22:47

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Auðvitað skiptir máli hver vissi hvað í júní og þó það hafi verið teknar rangar ákvarðanir fyrir löngu síðan er ekki þar með sagt að þess vegna hafi fólk verið "dæmt" til að aðhafast ekki neitt sama á hverju gengi.

Jóhann Elíasson, 18.12.2008 kl. 22:54

3 Smámynd: Jón Ragnar Björnsson

Ég óttast að þetta sé aðeins blábyrjunin á endalausum skandalmálum sem grassera um allt þjóðfélagið.

Engin þarf að vera hissa á vaxandi reiði fólks. Sama hvert litið er, einn stór skaldal.

Jón Ragnar Björnsson, 18.12.2008 kl. 23:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband