Bloggfærslur mánaðarins, september 2021

SORGLEGA LÍTIÐ FJALLAÐ UM "BESTA FISKVEIÐISTJÓRNUNARKERFI Í HEIMI" Í ÞESSARI KOSNINGABARÁTTU

Að sumu leiti er það ágætt að þetta svokallaða „Samherjamál“ skyldi koma upp. Þá komu hinir gífurlegu VEIKLEIKAR fiskveiðikerfisins betur í ljós.  Það hefur lengi verið opinbert leyndarmál að uppgangur Samherja ætti sér ýmsar dökkar hliðar, sem ekki þyldu dagljósið.   Aldrei hefur verið hægt að sanna að eitthvað ólöglegt hafi átt sér stað og meira að segja var forstjóri Samherja svo óforskammaður að heimta það að Seðlabankastjóri yrði saksóttur vegna rannsóknar og húsleitar, sem bankinn framkvæmdi á Samherja og það sem alvarlegra er að Forsætisráðherra blandaði sér í málið með því að senda til lögreglu meintan „leka“ frá Seðlabankanum til RÚV.  EN ÞAÐ ER RÉTT AÐ ÞAÐ KOMI FRAM AÐ MÁLINU VAR VÍSAÐ FRÁ, VEGNA FORMGALLA.  ÞAÐ ER EKKI RÉTT AÐ SAMHERJI HAFI VERIÐ SÝKNAÐUR Í ÞESSU MÁLI eins og margir hafa viljað halda fram, þar á meðal forstjóri Samherja, MÁLINU VAR VÍSAÐ FRÁ OG KOM EINFALLEGA ALDREI TIL ÞESS AÐ FJALLAÐ VÆRI UM ÞAÐ EFNISLEGA.

En það að þetta Samherjamál kom upp, segir það okkur ekki að það er full ástæða til að rannsaka viðskipti og viðskiptahætti ALLRA stóru sjávarútvegsfyrirtækjanna á Íslandi? Fyrir daga kvótakerfisins og fyrstu ár þess, voru á markaðnum tveir risar í sölu á fiski á erlenda markaði Þetta voru SÍS (Samband Íslenskra Samvinnufélaga) og SH (Sölumiðstöð Hraðfrystihúsanna).  Skiptingin á milli þessara sölusamtaka var nokkuð skýr,  SÍS sá um söluna fyrir kaupfélögin og fyrir þá sem voru „Framsóknarmegin“ í pólitíkinni en SH sá um söluna fyrir þau fyrirtæki sem voru „Sjálfstæðisflokksmegin“ í pólitíkinni.  En þá kom Samherji til sögunnar og riðlaði „öllu sölukerfinu“ með því að stofna sín eigin sölusamtök og eftir það hafa þessi tvö sölusamtök smám saman verið að lognast útaf misjafnlega hratt þó.  En eitt er þó sem ætti að hafa í huga: SAMHERJI HEFUR ALVEG FRÁ UPPHAFI SINNAR ÚTGERÐARSÖGU ALDREI SETT EINN EINASTA SPORÐ Á MARKAÐ.  Og hvers vegna skyldi það vera?  Jú, því er auðsvarað.  Ef þarf að greiða markaðsverð fyrir fiskinn, hagnaður útgerðarinnar eykst og þá verður erfiðara að réttlæta það að áhöfnin taki þátt í að greiða olíuna á fiskiskipin og að dregið sé af launum sjómanna til að taka þátt í nýsmíði fiskiskipaflotans og ekki nokkur leið að réttlæta LÆKKUN veiðigjalda og um leið verður minni hagnaður til að flytja úr landi, í skattaskjól fyrir eigendur fiskvinnslufyrirtækjanna, sem einnig eru með útgerð á sinni könnu.

Eru menn virkilega svo barnalegir að halda að Samherjamenn séu þeir einu sem stunda þetta?  Frá lýðveldisstofnun, sáu þessu tvenn sölusamtök um að selja fiskinn úr landi og að hluta til eftir að kvótakerfið var sett á.  Þetta var til þess að útgerðin fékk skammtað eins skít úr hnefa „afkomu“ sem svo aftur og aftur kallaði á gengisfellingar Íslensku krónunnar, til að rétta hlut útgerðarinnar.  Fljótlega áttuðu útgerðarmenn sig á því að til þess að „mjólka“ sem mest út úr fiskveiðiauðlindinni YRÐU þeir að koma sér upp FISKVINNSLU, þeir útgerðarmenn sem voru  svo framsýnir og sáu þetta á sínum tíma, STJÓRNA SJÁVARÚTVEGSMÁLUNUM Á ÍSLANDI Í DAG. En svo kom Samherji til sögunnar, þeir stofnuðu sitt eigið sölufyrirtæki, þannig gerðu þeir tengslin milli útgerðar og vinnslu mun sterkari en áður hafði verið.  Umskiptin urðu ekki á einni nóttu en smám saman „lognuðust“ þessi tvö sölufyrirtæki útaf og útgerðin varð öflugri.  ÞARNA ER KOMIN SKÝRINGIN Á ÞVÍ HVAÐ VELDUR ÞVÍ AÐ ÚTGERÐIN ER MEÐ SVONA MIKLU BETRI AFKOMU EFTIR AÐ KVÓTAKERFIÐ VAR SETT Á.   Þetta telja stuðningsmenn kvótans, vera sín „sterkustu rök“ fyrir því að viðhalda núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi og dæmi nú hver fyrir sig.

Stærsti þátturinn í að þetta SVINDLI var og er mögulegt, er þetta TVÖFALDA VERÐLAG SJÁVARAFURÐA SEM HEFUR VERIÐ Í GILDI HÉR Á LANDI Í MARGA ÁRATUGI.  Annars vegar er fiskverð ákveðið af stjórnvöldum sem gildir um útgerðir sem eru aðgang að fiskvinnslu (hvaða gögn eru höfð til grundvallar er mér alveg hulin ráðgáta og sjálfsagt einhverjum fleirum en ég auglýsi eftir þessu hjá þeim sem til þekkja), hins vegar fer fiskur,  frá bátum sem EKKI eru með fiskvinnslu á sínum snærum, á fiskmarkað.  Þetta verður til þess að verð á fiski á markaði er mjög hátt, eins og kerfið er í dag og fiskverð til okkar neytenda verður þar af leiðandi miklu hærra en annars yrði.

Það var árið 1977, sem ég fór í mína fyrstu „siglingu“ á erlenda markaði með fisk.  Ég hugsaði ekki um það þá en það var nokkuð algengt að það væri tvöfalt til þrefalt verð á fiski á erlendum mörkuðum en það sem fékkst hér á landi.  Það var hægt að lenda í svokölluðum „downtúrum“ en verðin fóru mest eftir framboði og eftirspurn, árstíma, veðurfari og það albesta var að eiga „söludag“ fyrsta dag sem markaðir opnuð eftir jólahátíðina en þá var alveg pottþétt góð sala.  Ég man eftir einum alveg sérstaklega slæmum túr á togaranum Júní frá Hafnarfirði, sumarið 1978, en þá barst mjög mikill fiskur að landi og frystihúsið gat ekki tekið við aflanum frá okkur (við vorum á veiðum á vestfjarðamiðum og fengum á tíu dögum rúmlega 400 tonn af þorski), þá var brugðið á það ráð að senda okkur í „siglingu“ til Hull og svo áttum við að fara í slipp í South Sields, sem er rétt við Newcastle en norðan við Hull.  Það var mikil veðurblíða og gífurlega heitt í veðri þegar þetta var og skemmst frá því að segja að salan var ein allsherjar hörmung.  Sá hluti aflans sem seldist fór á mjög lágu verði og það sem verra var er að 90 tonn seldust bara alls ekki og var bara keyrt í GÚANÓ.  Árið 1985 fór ég svo í mína síðustu „siglingu“, þá seldum við „hæfilegt magn“ rétt fyrir jól og gerðum ágætis sölu.  Framan af var verið að „friða“ sjómenn, vegna þess hve fiskverð var lágt hér á landi, með því að gefa leyfi fyrir því að senda einn til tvo gáma af fiski á markaði í Englandi eða Þýskalandi (Þorskur,ýsa og koli fóru á England en karfi og ufsi fóru á Þýskaland). þetta lagðist af um 1990 hjá flestum og var því svarað til að ef menn væru óánægðir með fiskverðið skyldu menn bara fá sér aðra vinnu.

En hvað  er mögulegt að gera til að þessi svokallaði „GJAFAKVÓTI“ verði upprættur og öll spillingin í sambandi við hann.

Ég tel að það eigi að kippa „GJAFAKVÓTANUM“ af með það sama.  Við yrðum með kvótakerfi áfram en með annarri útfærslu.  Það sér það hver heilvita maður að þessi „sýndarmennska“, sem er í gangi með „GJAFAKVÓTANN“ í dag gengur engan veginn upp.  Þó svo að það standi í lögum um stjórnun fiskveiða að fiskveiðiauðlindin sé sameign þjóðarinnar, þá er reyndin ekki sú í raunveruleikanum.  Útgerðarmenn færa „kvótann“ sem EIGN  í bókhaldinu hjá sér og það sem meira er kvótinn ERFIST og ekki nóg með það heldur KEMUR HANN TIL SKIPTA Í SKILNAÐARMÁLUM.  Það er svo mikil hrópandi mótsögn í þessu kerfi í dag að menn sem skoða þennan ófögnuð verður örugglega flökurt.  Fyrst og fremst tel ég að deila eigi kvótanum á milli byggðarlaga.  Segjum sem svo að Þorlákshöfn væri úthlutað 5.000 tonna þorskkvóta.  Í Þorlákshöfn landar síðan bátur 20 tonnum af þorski, þessi 20 tonn myndu dragast frá heildar þorskkvóta Þorlákshafnar, þannig að þar væru eftir 4.980 tonn af þorski.  En nú á útgerð þessa báts eftir að greiða fyrir að veiða þessi 20 tonn af þorski og væri gjaldið eitthvað hlutfall af aflaverðmætinu, t.d 20 % af aflaverðmæti, menn hljóta að sjá að það er náttúrulega tóm þvæla að veiðigjöld séu ákveðin eftir að tillit hefur verið til FJÁRFESTINGA viðkomandi útgerðar, eins og gert er í dag.  Þannig að sumar stórútgerðir greiða ENGIN veiðigjöld, vegna þess að þau eru að fjárfesta svo mikið í skipum og búnaði (bara það að kaupa eitt flottroll verður til þess að ekki þarf að greiða nein veiðigjöld það árið). Það sem er aðalatriðið í þessu er að það eru byggðir landsins sem fengju kvótanum úthlutað og þær greiða síðan 50% af kvótasölunni til ríkisins.  Og svo er algjört grundvallaratriði að hver einasti landaður fiskur fari á markað þannig verði slitin tengslin á milli veiða og vinnslu, sem hefur verið helsta meinsemdin í Íslenskum sjávarútvegi.  Nú kunna ýmsir að reka upp ramakvein, en ég minni á það að það þurfa allar greinar iðnaðar að greiða gjald fyrir það hráefni sem er notað og því skyldi ekki útgerð gera það líka?  Þessi tekjustofn yrði síðan notaður til þess að fjármagna hafrannsóknir (og þá er ég að meina ALVÖRU hafrannsóknir ekki stofnanir eins og HAFRÓ sem stunda einhverjar rannsóknir sem eru ekki í neinu sambandi við raunveruleikann og skal þar fyrst minnst á „togararallið“ þeirra sem allt stofnstærðarmat þeirra á þorski byggist á) , veiðieftirlit og landhelgisgæslu.  Nú segja einhverjir að þeir sem eru í útgerð í dag og hafa KEYPT sínar veiðiheimildir, hvað á að gera í þeirra málum?  Þarna hafa flestir staðið á gati aðallega vegna þess að þessum fyrirtækjum hefur verið heimilað að EIGNFÆRA veiðiheimildirnar í bókhaldi sínu og síðar var þeim heimilt að VEÐSETJA þær en þá byrjaði nú VITLEYSAN fyrir alvöru menn fóru að taka LÁN út á óveiddan fisk (eins fáránlegt og það hljómar) og það sem meira er þessar heimildir eru í trássi við mörg gildandi lög (t.d lög um fiskveiðistjórnun og eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar svo eitthvað sé nefnt).  Ég hef ekki á takteinum hvernig eigi að leysa skuldastöðu útgerðarinnar enda myndi ég nú telja að það þurfi að skoða hvert einstakt tilfelli fyrir sig, t.d verður að liggja alveg ljóst fyrir hvernig skuldirnar eru tilkomnar og hvers vegna var til þeirra stofnað.  Ef farin yrði sú leið að INNKALLA ALLAR veiðiheimildirnar á einu bretti því að innkalla heimildirnar smátt og smátt held ég að sé eingöngu að flýja þann gríðarlega vanda sem við erum komin í með kvótakerfið og það býður eingöngu upp á að það verði gerð einhver „bráðabirgðaúrræði“ sem eingöngu myndu auka á þann vanda sem þegar væri til staðar, sem ég tel albesta kostinn í stöðunni, væru þeir aðilar sem eru nú þegar í útgerð með TALSVERT MIKIÐ forskot á þá sem hygðust koma inn í greinina því þeir ættu þegar skipin og veiðarfærin, sem eru notuð við veiðarnar.  Það er bara óhjákvæmilegt að sumar útgerðir eiga eftir að fara í gjaldrot, það gildir bara það sama um útgerðina og önnur fyrirtæki.  Málið er að það er alveg gífurleg offjárfesting í útgerðinni og ég er bara ekki alveg viss um að menn hafi farið eftir einhverri skynsemisreglu í þeim efnum.    Og svo er eitt alveg „stórkostlegt“ SJÓMENN GREIÐA VISSAN HLUT AF LAUNUM SÍNUM Í „NÝSMÍÐASJÓГ OG EKKI NÓG MEÐ ÞAÐ AÐ ALVEG SÍÐAN OLÍUKREPPAN (1973) VAR SKIPTAPRÓSENTUNNI BREYTT ÞANNIG AÐ SKIPTAPRÓSENTAN, VAR EKKI REIKNUÐ FYRR EN EFTIR AÐ OLÍUKOSTNAÐUR HAFÐI VERIÐ GREIDDUR OG ÞANNIG ER ÞETTA ENN ÞANN DAG Í DAG.

Svo er eitt mál, sem hefur verið alveg ótrúleg andstaða við á Alþingi og þá sérstaklega hjá stjórnarflokkunum (reyndar hjá stærstum hluta Alþingismanna, hvernig í ósköpunum sem getur staðið á því), EN ÞAÐ ER AÐ GEFA HANDFÆRAVEIÐAR ALVEG FRJÁLSAR.  Þá koma ráðamenn (síðast Fjármálaráðherra) og segja: „af hverjum á þá að TAKA þann kvóta?“ Svarið er ÞAÐ ÞARF EKKI AÐ TAKA ÞANN KVÓTA AF NEINUM.  Ég hef áður talað um það að „stofnstærðarmælingarnar“ hjá HAFRÓ eru ekki nein MERKILEG VÍSINDI og engin einasta ástæða til að fara að „veiðiráðgjöf“ þeirrar stofnunar upp á kíló.  Veiðigeta þeirra sem stunda handfæraveiðar er mjög sennilega ekki meiri en um það bil 20.000 tonn á ári án þess að nokkrar takmarkanir séu settar þar á (takmarkanir þarf reyndar að setja á fjölda báta stærð þeirra og annað).  En veðráttan og fleira setur á takmarkanir.  Svo þarf að taka af margar takmarkanir sem hafa verið settar á vega strandveiða til dæmis þetta veiðisvæðakjaftæði, annað hvort eru menn á handfæraveiðum eða ekki það skiptir ekki nokkru máli á hvaða „svæði“ þeir eru.  Að þeir megi ekki veiða nema eitthvað ákveðið magn í hverri veiðiferð er alveg FÁRÁNLEGT, suma daga veiðist vel og svo er ekkert að fá aðra daga, þannig er það bara.  Þá er eitt mál, ÞAÐ AÐ AÐEINS MEGI VERA EINN MAÐUR Á ÞESSUM STRANDVEIÐIBÁTUM ÆTTI HREINLEGA AÐ BANNA, ef eitthvað kemur uppá þar sem einungis er einn maður á bát getur sá maður ENGA BJÖRG SÉR VEITT, ÞETTA ER EINFALDLEGA ÖRYGGISATRIÐI.

 Með ráðstöfun af þessu tagi væri komið í veg fyrir að kvóti safnist til örfárra aðila, endurnýjun innan greinarinnar ætti að vera möguleg og einnig að byggð myndi lítið sem ekkert raskast en gæti styrkst aftur. Með því að nota þessa aðferð við veiðistjórnunina væri komið í veg fyrir svokallað kvótabrask og fiskvinnslan í landi gæti sérhæft vinnslu sína.

Það hefur mikið verið rætt um það að útgerðin „gæti ekki“ greitt fyrir veiðiheimildirnar, þetta er náttúrulega bull og ekkert annað.  Ég veit ekki um neina atvinnugrein, sem ekki þarf að greiða fyrir hráefnið í lokaframleiðslu sína.  Að sjálfsögðu á útgerðin að greiða eitthvað fyrir hráefnið og ekki væri óeðlilegt að 20% af lönduðum afla færi í svokallað veiðigjald. 

EINA RAUNVERULEGA LAUSNIN Á ÞESSU VANDAMÁLI MEÐ TVÖFÖLDU VERÐLAGNINGUNA, ER AÐ ALLUR FISKUR FARI Á MARKAÐ OG ALLIR FISKKAUPENDUR SITJI VIÐ SAMA BORÐ.  OG ÞÁ ÞARF AÐ EFLA MIKIÐ ALLT GJALDEYRISEFTIRLIT HÉR Á LANDI OG KOMA Í VEG FYRIR AÐ GJALDEYRIR SKILI SÉR EKKI TIL LANDSINS.

Þá er mikið talað um það að það verði að hreinsa allt liðið af Alþingi.  Það tel ég að sé alls ekki nóg.   Þegar nýir ráðherrar taka til starfa, þá þarf að hreinsa út úr ráðuneytunum um leið.  Bæði ráðuneytisstjórinn og skrifstofustjórinn eiga að víkja og nýi ráðherrann kemur með ráðuneytisstjóra og skrifstofustjóra með sér.  Með þessari ráðstöfun yrði komið í veg fyrir ráðuneytisstjórar og skrifstofustjórar ráðuneytanna stjórnuðu í raun og veru og svo er náttúrulega ekki gott að fólk fái sigg á ra....... vegna of langrar setu á vissum stólum...........


mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

LAND TÆKIFÆRANNA - HVAR ER ÞAÐ OG FYRIR HVERJA??????

Ef þetta land er Ísland, þá verða íbúar landsins að uppfylla einhver skilyrði, sem ekki er á færi allra að uppfylla  til dæmis virðist vera ágætt að "eiga" eins og einn Sjávarútvegsráðherra, hafa góðan aðgang að stjórnvöldum, hafa mikið fjármagn til að "spila úr" og ýmislegt fleira dettur mér í hug en margt af því er ekki prenthæft svo ég held því bara fyrir mig.  En vel á minnst, hvernig ætli "rannsókninni" á Samherjamálinu líði?  Ég hef ekkert heyrt á það minnst núna í kosningabaráttunni...............


"SÉRTRÚARSÖFNUÐURINN" SEM KALLAR SIG VIÐREISN OG HELDUR SIG VERA STJÓRNÁLAFLOKK FÆR HELDUR ORÐ Í EYRA....

Og þá sérstaklega Ole Anton Bieltveit, sem opinberaði slaka vitsmuni sína með því að far út í ritdeilur við Ragnar Önundarson fyrrum bankastjóra og viðskiptafræðing.  Eins og flestum ætti að vera kunnugt, þá eru FÁIR sem standast Ragnari Önundarsyni snúning þegar um er að ræða efnahagsmál hvort sem er í landsmálum eða á alþjóðavettvangi.  Því verður ekki hægt að segja annað en að Ole Anton Bieltveit slái algjört "vindhögg" með því að ætla sér að fara í ritdeilur við Ragnar Önundarson.  Svargrein Ragnars er á blaðsíðu 16 í Morgunblaðinu í dag og þar fer hann vel yfir muninn fljótandi gengi Íslensku krónunnar og fastgengi evrunnar og muninn sem þetta hefur á efnahagslífið.  Ragnar Önundarson nýtur mikillar virðingar og er alveg sérstaklega tekið tillit til þess sem hann skrifar og þekking hans á því sem hann skrifar er alveg gríðarlega mikil og engum nema Ole Anton Bieltveit hefur hingað til dottið í hug að REYNA að andmæla honum.  En margir í þessum Sértrúarhópi virðast hafa eitthvað furðulega trú á eigin ágæti og TRÚ sinni því varaformaðurinn, sem er víst menntaður hagfræðingur, virðist finnast það allt í lagi að fara á svig við hagfræðireglur þegar kynntur er "ábati" landsins af að tengja gengi Íslensku krónunnar við evru.......


EINHVERJIR ERU TILBÚNIR TIL ÞESS AÐ LÁTA ATKVÆÐI SITT DETTA NIÐUR "DAUTT"

MEÐ ÞVÍ AÐ KJÓSA SÓSÍALISTAFLOKK ÍSLANDS Í KOSNINGUNUM TIL ALÞINGIS NÆSTA LAUGARDAG.  Að verða vitni að þessu er alveg ótrúlegt, flokkur sem stendur ekki fyrir neitt annað en að hafa það sem sitt helsta stefnumál að KOMA Á EINRÆÐI HÉR Á LANDI (fólk er hvatt til að horfa á viðtal við Gunnar Smára Egilsson í "Dagmálum á mbl.is), það verður ekki séð að þessi flokkur geti unnið með einum eða neinum flokki, sem er í framboði til Alþingis í kosningunum á laugardaginn.  En það er tæp vika ennþá til kosninga og enn er von til að einhverir sjái að sér.........


mbl.is Framsóknarflokkur í lykilstöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HVAÐA "REIKNIKÚNSTIR" LIGGJA ÞARNA AÐ BAKI??????????

Ég veit ekki hvaða forsendur geta legið þarna að baki, sem dæmi er hægt að benda á það að vextir LÆKKA EKKI við það eitt að tengja Íslensku krónuna við EVRU og svona mætti lengi telja.  En svo var ég minntur á það að menn geta fengið það sem þeir vilja, með því að breyta bara forsendunum þar til þeir eru sáttir við útkomuna.  Mér finnst það athugavert ef varaformaður flokksins leggur starfsheiður sinn að veði fyrir svona "Hókus Pókus" stærðfræði..........


mbl.is Áætla að ráðstöfunartekjur heimilanna muni aukast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

JÆJA ÞÁ ER GRÍMAN FALLIN HJÁ TALIBÖNUM - EN HVENÆR FELLUR HÚN HÉRNA??

Annars held ég nú að flestir hafi vitað hvað var í vændum þarna austur í Afganistan en aftur á móti höfum við ekki hugmynd um hversu lengi þetta "grímuball" hjá okkur varir........


mbl.is Talíbanar banna stúlkum að mennta sig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SÓSÍALISTAFLOKKUR ÍSLANDS OG GUNNAR SMÁRI EGILSSON.........

Áðan var ég að hlusta á viðtal Arnþrúðar Karlsdóttur við Katrínu Baldursdóttur oddvita Sósíalistaflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður og Sigmar Guðmundsson sem er í öðru  sæti Viðreisnar í Suðvesturkjördæmi ("Kraganum"), viðtalið var á Útvarpi Sögu.  Þau voru sammála um að það þyrfti að breyta miklu í Sjávarútvegnum, Heilbrigðiskerfinu, Félagskerfinu, Löggæslunni, Dómskerfinu og mörgu fleiru en þau voru með öllu ósammála um leiðirnar. þarna fannst mér koma í ljós, í málflutningi Katrínar Baldursdóttur, hvernig Gunnari Smára Egilssyni hefur tekist að koma "frösum" eins og "Ný-Frjálshyggju" (sá frasi hefur reyndar aldrei verið skilgreindur), "Auðvaldið", Öreigar og nokkrir fleiri sem ég reyndar man ekki nákvæmlega hverjir eru, Katrín Baldursdóttir notaði þessa "frasa" alveg óspart og reyndar bætti hún við nokkrum öfgaskoðunum frá sér sjálfri.  En merkilegt nokk þá kom Sigmar Guðmundsson aldrei ESB eða evrunni að því það var nóg að gera hjá honum við að svara Katrínu Baldursdóttur og gekk það alveg ágætlega hjá honum, enda er hann alveg þrautþjálfaður fjölmiðlamaður og reyndar á hún einnig sinn bakgrunn í fjölmiðlum þótt nokkuð sé um liðið síðan hún starfaði á þeim vettvangi.  Gunnar Smári hefur reynt af mikilli örvæntingu og mjög litlum sannfæringarkrafti að verja stjórnmálastefnu sem hefur ALDREI VIRKAÐ og gekk sér endanlega til húðar fyrir um 30 árum og meira að segja Kína hefur að mestu leiti kastað megninu af þessari stefnu.  Það er alveg með ólíkindum hvað þessi maður hefur getað vafið einföldum "Vinstri Öfgasálum" um fingur sér með lýðskrumi og hreinum og klárum lygum.  En það verður ekki tekið af honum að hann er flugmælskur og hann á mjög auðvelt með að hrífa fólk með sér.  En þetta eru einmitt einkenni siðblindingja.  Það væri ekki úr vegi að rifja upp nokkur atriði úr sögu þessa manns:  Hann var einn af helstu forkólfum þess að "Fréttablaðið" fór af stað í núverandi mynd og mér skilst að hugmyndin hafi verið hans.  Þegar hugmyndin um "Fréttablaðið" var komin vel af stað tókst honum að sannfæra Jón Ásgeir og fleiri "viðskiptamógúla" um að það væri tilvalið að koma svona "fríblaði" af stað í Danmörku.  Þessi áform "floppuðu" algjörleg og með því minnkuðu möguleikar hans á því að komast í í "klíkuna" með Jóni Ásgeiri og fleirum.  Eftir ævintýrið í Danmörku kom hann til baka til landsins, með skottið á milli lappanna og "endurreisti" Fréttatímann.  Það ævintýri stóð í nokkra mánuði og endaði í gjaldþroti og það sem var alvarlegast var að starfsfólkið fékk ekki greidd laun síðustu mánuðina.  Þegar það varð alveg ljóst að Jón Ásgeir og félagar vildu ekkert með manninn hafa, gerðist hann stækur Sósíalisti með það að markmiði að berjast gegn "AUÐVALDINU" og með lítilmagnanum.  Hann stofnaði Sósíalistaflokkinn og tókst að fá nokkra til fylgis við sig (maðurinn er jú vel mælskur og sannfærandi) og nú stefnir hann á að flokkurinn fái sæti á Alþingi.  Í dag er ekki vitað hverjir koma til með að vera í framboði fyrir flokkinn, en ekki kæmi það á óvart að þar yrði hann sjálfur í framvarðasveitinni því ekki ætlar hann að lifa eins og einhver öreigi.  Finnst mönnum þessi maður mjög trúverðugur?  Það sem er öllu alvarlegra, að mínu  mati, er sú staðreynd að ýmsir ætla að ljá þessu framboði atkvæði sitt, manni sem ætlar að fótumtroða réttarríkinu, ryðja út úr hæstarétti, skipta Samherja upp og fleira og fleira ætlar hann að gera komist hann að og ég get ekki betur séð en hann vill helst ekki fara í neitt samstarf heldu vill hann verða EINRÆÐISHERRA, því á annan  hátt getur hann ekki komið þessum áformum sínum í framkvæmd........


"!SKATTALÆKKUNIN" SEM VARÐ AÐ SKATTAHÆKKUN..........

Nú get ég ekki lengur orða bundist.  Á miðju kjörtímabili kynnti ríkisstjórnin að nú ætti að nú ætti að LÆKKA skatta á hina sem lökust hafa kjörin í þessu þjóðfélagi.  Þetta fólst í því að ÞRIÐJA SKATTÞREPINU var bætt við og varð það 31,45%, hin tvö skattþrepin hækkuðu úr 36,94% í 37,95%, og hitt skattþrepið fór úr 46,24% í 46,25%.  EN ÞAR MEÐ ER EKKI ÖLL SAGAN SÖGÐ PERSÓNUAFSLÁTTURINN LÆKKAÐI ÚR 53.895 KRÓNUM Í 50.792 KRÓNUR.  ÁÐUR HAFÐI PERSÓNUAFSLÁTTURINN LÆKKAÐ ÚR 56.447 KRÓNUM.  MEÐ ÞVÍ AÐ LÆKKA PERSÓNUAFSLÁTTINN OG BÆTA VIÐ "ÞRIÐJA SKATTÞREPINU" OG LÆKKA PERSÓNUAFSLÁTTINN VARÐ TIL Í RAUNINNI SKATTAHÆKKUN SEM VAR DULBÚIN SEM SKATTALÆKKUN.  Ég var nú reyndar búinn að reikna þetta út, fyrir nokkru síðan, en fann þessa útreikninga mína ekki, en mig minnir að eftir tekjur að upphæð rúmar 520.000 krónur hafi skattar tekið að LÆKKA en fram að því HÆKKUÐU þeir.  ÞAÐ VITA ÞAÐ FLESTIR AÐ EINA RAUNHÆFA KJARABÓTIN, FYRIR ÞÁ SEM MINNST HAFA, ER AÐ HÆKKA PERSÓNUAFSLÁTTINN. Það sem undrar mig er að ASÍ, Efling, VR og fleiri eru með fólk í vinnu við að reikna svona lagað út og mér finnst stórfurðulegt að enginn þessara aðila skyldi gera athugasemd við þetta.........


ERU VG OG FLEIRI STJÓRNMÁLAFLOKKAR AÐ "GERA" LOFTSLAGSMÁLIN AÐ EINHVERJU AÐALMÁLI Í KOSNINGUNUM TIL AÐ ÞURFA EKKI AÐ RÆÐA MÁL SEM SKIPTA ÞJÓÐINA MIKLU MEIRA MÁLI?????

Fyrir það fyrsta þá er þetta lið fast í þeim hjólförum að loftslagsbreytingarnar séu af mannavöldum.  Í þeim "drullupolli" eru VG, Samfylkingin og krakkaræflar, sem þessir aular eru að verða búnir að hræða líftóruna að mestu leiti úr, með því að telja þeim trú um að heimsendir sé í nánd.   Vísindin á bak við þessa vitleysu eru ekki meiri en það að þetta lið beitir fyrir sig „heilaþvegnum táningsræfli, sem er búin að læra „loftslagsmöntruna“ utanbókar. VITA MENN EKKI AF FÆRSLU SEGULPÓLSINS?  ÞETTA ÞÝÐIR Á MANNAMÁLI AÐ Á ÞESSUM TÍMUM STANDA YFIR "PÓLSKIPTI".  Nú er segulpóllinn staddur í norður-Síberíu og vísindamenn NASA telja að hann endi í Indlandshafi.  Vegna þess að segulpóllinn, var áður en "flakkið" byrjaði, staddur norður af Kanada hefur HLÝNAÐ umtalsvert á norðurslóðum, til dæmis bráðnar Grænlandsjökull mjög hratt og hlýindametin í Kanada eru gott vitni um þetta en annars staðar hefur kólnað mjög mikið og sem dæmi má nefna að jöklar eru byrjaðir að myndast í norðurhluta Síberíu, þar sem segulpóllinn er staddur þessa stundina. Þegar og ef segulpóllin endar í Indlandshafi, verða ýmis þéttbýl svæði í Asíu óbyggileg og mikill flutningur á fólki verður frá þessum svæðum.  HVERNIG TEKUR HEIMSBYGGÐIN Á ÞEIM MÁLUM?  Nú þegar stjórnmálamenn eru búnir að láta ljúga sig fulla um loftslagsbreytingar af mannavöldum og verða búnir að eyða milljörðum í að MOKA OFAN Í SKURÐI og nú ætlar stjórnmálaelítan að ráðast að 6% útblæstri okkar Íslendinga og BANNA innflutning á bílum, sem ganga fyrir JARÐEFNAELDSNEYTI.  Hvernig ætli ástandið hefði orðið á norðurlandi í óveðrinu í desember árið 2020 ef stór hluti íbúanna hefði verið búinn að skipta yfir í rafmagnsbíla?   Þessar breytingar og öfgar í veðurfarinu má rekja beint til þessara breytinga á segulpólnum. "LOFTSLAGSBREYTINGAR AF MANNAVÖLDUM" ERU EKKERT ANNAÐ EN "BIG BUSINESS".  En auðvitað afneita þessir aðilar að hlýnun loftslags eigi sér aðrar skýringar en að vera af mannavöldum, svo fastir eru þeir í þessum "loftslagstrúarbrögðum" sínum.  Það er kominn tími til að þetta lið fari að taka hausinn úr ra........ á sér og fara aðeins að sjá hlutina frá öðru sjónarhorni en tommu rörsýninni, sem hefur háð því fram til þessa.  Það eru til margar bækur sem sýna fram á að þetta með „LOFTLAGSHLÝNUN AF MANNAVÖLDUM“  er ekkert annað en GETGÁTA og ef við tökum bók eftir dr. Helga Björnsson jöklafræðings, þessi bók heitir JÖKLAR Á ÍSLANDI og hún segir svo ekki verður um villst að hitastigið á jörðinni hefur HÆKKAÐ og LÆKKAÐ í gegnum aldirnar og sér ekkert fyrir endann á því.  Til dæmis var VATNAJÖKULL tvískiptur og fremur lítill og ræfilslegur á LANDNÁMSÖLD og fékk nafnið KLOFAJÖKULL.  Það er óskaplega einfalt, ÞAÐ ERU ENGIN VÍSINDI Á BAK VIÐ ÞESSA MÝTU UM LOFTSLAGSHLÝNUNINA OG „VÍSINDAMENN“ ERU ALLS EKKI SAMMÁLA Í ÞESSUM MÁLUM  EINS OG ER Í FLESTUM MÁLUM.  SVO KOMA STJÓRNMÁLAMENN FRAM MEÐ HRÆÐSLUÁRÓÐUR Í ÞESSUM MÁLEFNUM OG GERA AÐ AÐALMÁLINU Í KOSNINGUNUM SEM ERU FRAMUNDAN,  TIL ÞESS AÐ KOMAST HJÁ ÞVÍ AÐ RÆÐA EFNI SEM ERU AÐKALLANDI OG STJÓRNMÁLAMENN ÆTTU AÐ RÆÐA......


ÞESSI MAÐUR Á EINFALDLEGA EKKERT ERINDI SEM ÞJÁLFARI KARLALANDSLIÐSINS Í KNATTSPYRNU......

Það þarf nú ekki annað en að skoða árangur hans síðan hann tók við.  Og ekki nægir honum að bera fyrir sig það sem gerðist hjá KSÍ fyrir síðustu landsleikjatörn.  HANN ER BARA ENGINN MAÐUR TIL STARFSINS......


mbl.is Komið gott af grátkór landsliðsþjálfarans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband