ÞESSAR SKATTATILLÖGUR ASÍ ERU BARA TÓMT BULL.....

Það er fyrst og fremst markmið að EINFALDA skattana en EKKI að FLÆKJA þá.  Að bæta við skattþrepi er algjörlega út í hött.  Ég sé nú ekki hvernig þessi fullyrðing Fjármálaráðherra, um að "jaðarskattar" hækki, geti staðist að nokkru leiti.  Það er nokkuð einfalt að ef persónuafslátturinn hefði fylgt neysluvísitölu frá upphafi ætti hann að vera 78.168 krónur og ef 320.000 krónu laun ættu að vera skattfrjáls og persónuafslátturinn væri 78.168 krónur, þyrfti neðra skattþrepið að verða 20,49%.  Auðvitað kostar þessi aðgerð nokkuð mikla fjármuni en kostnaðurinn við þetta þarf alls ekki að vera svo mikill þegar upp er staðið.  Ríkið kemur til með að hafa auknar tekjur vegna þess að neysla þeirra einstaklinga, sem njóta þessara skattbreytinga eykst og kemur frammí auknum virðisaukaskatttekjum ríkisins og svo er hægt að láta hærra skattþrepið taka við  í til dæmis 699.000 króna tekjum.......


mbl.is Skattatillögur ASÍ auki jaðarskatta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

BORGARSTJÓRI ER EKKERT AÐ BRAGGAST OG HOLU-HJÁLMAR ER MEÐ "PÁLMANN Í HÖNDUNUM".......

En þetta gengdarlausa bruðl á fjármunum kölluðu Reykvíkingar yfir sig í kosningunum og sitja víst uppi með þetta út kjörtímabilið.  Heldur fólk virkilega að þetta breytist eitthvað við það að Þórdís Lóa verði borgarstjóri?  Nei þetta verður alveg óbreytt þar til þessi "meirihluti" verður kosinn í burtu og verður svo hreinsað til í embættismannkerfi borgarinnar í kjölfarið, því embættismennirnir hafa sungið með "meirihlutanum" i spillingunni, eins og komið hefur í ljós......


mbl.is „Dönsk strá og pálmatré“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞAÐ ER GREINILEGT AÐ "VINSTRA LIÐIÐ" ÆTLAR AÐ "JAPPLA" Á ÞESSU KLAUSTURSMÁLI Í MINNST TVO MÁNUÐI TIL VIÐBÓTAR....

Þær Helga Vala, Hanna Katrín og Rósa Björk fóru alveg með það þegar þær sögðu AÐ VIRÐING ÞINGSINS VÆRI Í HÚFI cool tongue-out VÆRI Í HÚFI  EF BERGÞÓR ÓLASON YRÐI ÁFRAM FORMAÐUR NEFNDARINNAR.  Það er alveg með ólíkindum ef fyllerísröfl einhverra sex einstaklinga á að halda öllum þingstörfum í gíslingu mánuðum saman.  Eru virkilega ekki mikilvægari mál en þetta á þinginu?  Ef svo er ekki er þá eitthvað að gera með þingið yfirleitt??????


mbl.is Frávísun ekki stuðningur við Bergþór
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HVAÐ HRJÁIR UTANRÍKISRÁÐHERRA LANDSINS EIGINLEGA?????

Er hann haldinn svo mikilli minnimáttáttarkennd, sem brýst út í gríðarlegu mikilmennskubrjálæði?  Hann ætlar að koma að heimsmálunum, eins og þau leggja sig og hann heldur það virkilega Íslensk afskipti hafi þar úrslitaáhrif.  Hann ætlaði sér í gær að "redda" ástandinu í Venesúela, í dag er það málefni dómara, sem var hent í fangelsi í Tyrklandi.  Hvað skyldi það vera á morgun?  Á meðan "dankast" allt niður á við hér á landi en það virðist engu máli skipta..........


mbl.is Óska upplýsinga um dómara í fangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÓTRÚLEGT AÐ ESB SKULI ENNÞÁ REYNA ÞENNAN ÁRÓÐUR OG ENN ÓTRÚLEGRA AÐ EINHVER SKULI TRÚA ÞESSU KJAFTÆÐI.....

Fyrst eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna frægu í Bretlandi, trúðu menn þessu og Breska pundið féll nokkuð mikið (hátt í 20%), en svo sáu menn að áhrifin voru bókstaflega engin áhrif.  Fyrirtæki og stofnanir áttu að flytja frá Bretlandi og til Evrópu og þá sérstaklega til Parísar, en það gerðist ekki og nú berast fréttir af því að fyrirtæki og þá sérstaklega fjármálafyrirtæki í Evrópu, hyggi á flutning til Bretlands.  Nú eru menn farnir að átta sig á því að BRexit hefur MUN alvarlegri afleiðingar fyrir ESB en Bretland og nefni ég hér á eftir nokkur atriði: Fyrir það fyrsta minnkar þessi "stóri" markaður sem ESB sem INNLIMUNARSINNAR tala svo mikið um  úr 500 milljón manns niður í 436 milljónir manna.  Þetta eru rúm 5% af heildarmannfjölda heimsins.  VÆRI EKKI NÆR AÐ HUGA AÐ 95% MARKAÐNUM, SEM ÞAR AÐ AUKI KREFST EKKI FULLVELDISFRAMSALS AF OKKUR? Hagvöxtur innan ESB hefur verið mjög lítill og sá litli hagvöxtur sem hefur verið hefur verið mestur í Bretlandi og er því mikil hætta á efnahagslegum samdrætti hjá ESB eftir BREXIT.  Hin ESB ríkin hafa flutt mun meira af vörum til Bretlands og nú verður sá útflutningur allur í uppnámi.  Bretar hafa greitt stjarnfræðilegar upphæðir til ESB og nú skrúfast fyrir þessar greiðslur en það verður ekkert létt verk að draga "báknið í Brussel saman".  OG SVO ER AÐALMÁLIÐ AÐ EF BRETUM VERÐUR GERT MÖGULEGT AÐ YFIRGEFA SAMBANDIÐ, ÁN ÞESS AÐ ÞEIM VERÐI GERT ÞAÐ MJÖG ERFITT OG BEITT VIÐ ÖLLUM MÖGULEGUM OG ÓMÖGULEGUM RÁÐUM, SKAPAST MÖGULEIKI FYRIR ÖNNUR RÍKI AÐ YFIRGEFA SAMBANDIÐ.  ÞVÍ ER HÆGT AÐ SEGJA AÐ EF BREXIT VERÐUR AÐ VERULEIKA, ER ÞAÐ UPPHAFIÐ AÐ FALLI ESB OG NÆST KEMUR SVO ENDANLEGA "ROTHÖGGIÐ" SEM ER EVRAN..........


mbl.is Líkja Brexit við Eyjafjallajökul
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

AUÐVITAÐ VILL ESB AÐ BRETAR KJÓSI AFTUR.......

Því ESB er þekkt fyrir að láta atkvæðagreiðslur fara fram trekk í trekk þar til niðurstaðan er yfirstjórn þeim að skapi....


mbl.is ESB vill að Bretar kjósi aftur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Föstudagsgrín

Prestur var að messa fyrir þétt setinni kirkju þegar skrattinn birtist allt í einu.  Hann ógnaði og hótaði í allar áttir svo allir í söfnuðinum urðu óttaslegnir og flúðu út úr kirkjunni, nema einn gamall maður.  Þegar kirkjan var orðin tóm þá fór skrattinn til gamla mannsins og spurði: "Ertu ekki hræddur við mig, ég er illmennskan endurholguð, hræðilegasta skepnan í öllum heimi og mun mjög líklega pynta þig!"  Gamli maðurinn svaraði: "Þú hræðir mig ekki, ég er búinn að vera giftur systur þinni í 45 ár."


HVAR Í ÓSKÖPUNUM ERU ÞESSR MJAÐMAHÁU HRÍSLUR, SEM ERU AÐ SETJA ALLT Á HLIÐINA?

Þessa "dýrmætu" hríslur, sem eiga að vera með þann "status", hjá einhverjum aðilum, að ef verður hreyft við þeim fari bara öll byggð á Vestfjörðum ef ekki á landinu öllu, í eyði en sjást ekki á þessari mynd.  Þetta mál er alveg er alveg með ólíkindum, hvernig getur það átt sér stað að TVEIR SUMARBÚSTAÐAEIGENDUR GETI HALDIÐ HEILUM LANDSFJÓRÐUNGI Í GÍSLINGU Í ÁRATUGI?  Og ekki nóg með það heldur geta þeir virkjað heilt sveitarfélag til að "vinna" fyrir sig til að tefja málið enn frekar, en sennilega eru þetta "dauðateygjurnar" við að tefja framgang þessa máls.........


mbl.is Hafi sætt „ofbeldi, ofsa og yfirgangi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VÆRI MUN BETRA FYRIR BRETA AÐ FARA SAMNINGSLAUSIR ÚT ÚR ESB EN AÐ GANGA AÐ ÞEIM SAMNINGI SEM ER Í "BOÐI" NÚNA

Enda er ekkert til að sækjast eftir innan ESB, sem ekki er hægt að semja um síðar.  Hvað er eiginlega svona nauðsynlegt að semja um?   Það hefur meira að segja komið fram hjá Theresu May, að ef ekki náist samningur verði jafnvel að hætta við brexit.  Hún vinnur nú ekki af meiri heilindum að brexit en þetta...


mbl.is Flestir vilja úr ESB án samnings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ERU MENN ÞÁ LOKSINS AÐ RANKA VIÐ SÉR?????????

Nú eru menn farnir að sjá við hvers konar aðstæður þeir þurfa að búa við á byggingartíma Landspítalans.  Strax eru menn orðnir þreyttir á þessum sífelldu sprengingum og ekki bætir úr skák að bílastæðin á Landspítalanum við Hringbraut hafa verið skert verulega og allra síst máttu þau við því (enginn veit hvað sá tími verður langur, þó svo að áætlanir séu til en menn þekkja það hversu vel áætlanir standast).  Og kannski er farið að skoða allt þetta í samhengi? En menn virðast aldrei hafa skoðað verkefnið með tilliti til þeirra þátta sem skipta máli í umhverfi verkefnisins og eru þar SAMGÖNGUR stærsti þátturinn.  Það sagði mér sjúkraflutningamaður að ástandið væri þannig í dag, að sjúkrabíll í FORGANGSAKSTRI væri í STÓRFELLDU VANDRÆÐUM, ÞAÐ STANDA EKKI TIL NEINAR SAMGÖNGUBÆTUR Á ÞESSU SVÆÐI.  HVERNIG HALDA MENN AÐ ÁSTANDIÐ VERÐI ÞEGAR FRAMKVÆMDUM ER LOKIÐ???  Þetta er aðeins hluti af vandamálinu.  Ég man ekki betur en að mikill tími hafi farið, af fréttatímum RÚV fyrir stuttu síðan, um hve bágt ástandið væri á mörgu húsnæði Landspítalans á Hringbraut væri vegna myglu og lélegs viðhalds.  En nú er orðið allt í lagi með þessar byggingar og meira að segja á að fara að nýta þessar byggingar áfram.  Er nema von að spurt sé: "HVER EÐA HVERJIR HAFA HAG AF ÞESSARI VITLEYSU???????


mbl.is Meirihluti lækna vill Landspítalann á nýjan stað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞETTA ERU MJÖG DÆMIGERÐ VIÐBRÖGÐ OG SÝNIR HVERSU MIKIL MÁLEFNAFÁTÆKTIN ER HJÁ ÞESSU FÓLKI....

Ég er búinn að fara nokkuð vel yfir þessa skýrslu og get ekki betur séð en að til dæmis sé gagnaöflun til mikillar fyrirmyndar og úrvinnsla þeirra einnig.  Hvergi hef ég orðið var við áróður heldur er aðeins verið að vinna með staðreyndir og útfrá því sem staðreyndir segja, þá eru dregnar fram niðurstöður.  Hvergi gat ég séð að fjallað væri um náttúruverndarsamtök eins og "hryðjuverkasamtök" eins og FORSÆTISRÁÐHERRA, UMHVERFISRÁÐHERRA OG FORMAÐUR SAMTAKA HVALASKOÐUNARFYRIRTÆKJA héldu fram og finnst mér að þessir aðilar eigi að biðjast afsökunar á ummælum sínum.  Mín niðurstaða eftir að hafa lesið yfir skýrsluna er að hún byggi á staðreyndum og að sú gagnrýniá hana sem komið hefur fram, sé alveg úr lausu lofti gripin og sé frekar vitni um aumkunarvert rökþrot þeirra aðila sem hafa hana uppi......


mbl.is „Illa rökstudd áróðursskýrsla“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HVERNIG ER ÞETTA HÆGT AÐ FJÖLDI EINSKAKLINGA SEM GENGUR Í HJÓNABAND ENDI Á ODDATÖLU??

Ég fæ þetta bara engan vegin til að ganga upp en hinsvegar virðist ekkert vera að í tölunum um þá sem skilja.....


mbl.is Fleiri hjónabönd og færri skilnaðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞARNA KEMUR ÞAÐ FRAM SVART Á HVÍTU AÐ HVALASKOÐUN HEFUR NEIKVÆÐARI ÁHRIF Á HVALINA EN HVALVEIÐAR

En "NÁTTÚRUVERNDAR-AYATOLLARNIR" fengu þarna skýrslu, sem hrekur málflutning þeirra langt út í hafsauga. Og hver skyldu svo viðbrögð þeirra vera?  ÞEIR REYNA AÐ ÞEGJA SKÝRSLUNA Í HEL Í ÞEIRRI VON AÐ MÁLIÐ BARA GLEYMIST OG SÍÐAR MEIR GETI ÞEIR BARA HALDIРRANGFÆRSLUM SÍNUM ÁFRAM......


mbl.is Hafa ekki haft neikvæð efnahagsáhrif
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

BREXIT HEFUR MUN NEIKVÆÐARI ÁHRIF Á ESB EN BRETA.......

En Eiríkur Bergmann og aðrir INNLIMUNARSINNAR, sem eru helstu "ráðgjafar" RÚV, forðast að tala um það eins og um heitan eld sé að ræða.  Fyrir það fyrsta minnkar þessi "stóri" markaður sem ESB sem INNLIMUNARSINNAR tala svo mikið um  úr 500 milljón manns niður í 436 milljónir manna.  Þetta eru rúm 5% af heildarmannfjölda heimsins.  VÆRI EKKI NÆR AÐ HUGA AÐ 95% MARKAÐNUM, SEM ÞAR AÐ AUKI KREFST EKKI FULLVELDISFRAMSALS AF OKKUR? Hagvöxtur innan ESB hefur verið mjög lítill og sá litli hagvöxtur sem hefur verið hefur verið mestur í Bretlandi og er því mikil hætta á efnahagslegum samdrætti hjá ESB eftir BREXIT.  Hin ESB ríkin hafa flutt mun meira af vörum til Bretlands og nú verður sá útflutningur allur í uppnámi.  Bretar hafa greitt stjarnfræðilegar upphæðir til ESB og nú skrúfast fyrir þessar greiðslur en það verður ekkert létt verk að draga "báknið í Brussel saman".  OG SVO ER AÐALMÁLIÐ AÐ EF BRETUM VERÐUR GERT MÖGULEGT AÐ YFIRGEFA SAMBANDIÐ, ÁN ÞESS AÐ ÞEIM VERÐI GERT ÞAÐ MJÖG ERFITT OG BEITT VIÐ ÖLLUM MÖGULEGUM OG ÓMÖGULEGUM RÁÐUM, SKAPAST MÖGULEIKI FYRIR ÖNNUR RÍKI AÐ YFIRGEFA SAMBANDIÐ.  ÞVÍ ER HÆGT AÐ SEGJA AÐ EF BREXIT VERÐUR AÐ VERULEIKA, ER ÞAÐ UPPHAFIÐ AÐ FALLI ESB..........


mbl.is Vaxandi líkur á útgöngu án samnings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞAÐ ER ÁNÆGJULEGT AÐ SJÁ AÐ ÁLVERIN SKULI VERA AÐ FÁ AUKNAR GREIÐSLUR TIL SÍN..

Þetta með hversu álverin á Íslandi eru að fá endurgreitt,úr virðisaukaskattskerfinu í formi INNSKATTS, Í hverjum einasta mánuði, er alveg með ólíkindum að EKKERT skuli vera fjallað um.  Bara ef tekið er tímabilið september til október 2018, þá var heildarveltan í "framleiðslu málma" 46 milljarðar.  Um það bil 98% af framleiðslunni fara til útflutnings, þannig að 45,1 milljarður af framleiðslunni er undanþeginn virðisaukaskatti og þar af leiðandi fá álverin ALLAN virðisaukaskatt af innlendum og erlendum efnisinnkaupum, vinnu iðnaðarmanna og ekki má  gleyma því að rafmagnið ber 11% virðisaukaskatt, sem álverin fá líka endurgreiddan.  Það er ekki nóg með að álverin fái rafmagnið fyrir lítið heldur heldur er hægt að segja að þau fái líka 9,91% AFSLÁTT AF RAFMAGNINU.  ÁRIÐ 2011 FENGU ÁLVERIN 4,6 MILLJARÐA ENDURGREIDDA Á MÁNUÐI, EKKI ER ÓSENNILEGT, MIÐAÐ VIÐ VERÐLAGSÞRÓUN, ÞESSI UPPHÆÐ SÉ 5,47 MILLJARÐAR Á MÁNUÐI Í DAG.  Á SAMA TÍMA OG ÁLVERIN ERU AÐ TAKA ÞETTA FJÁRMAGN TIL SÍN KVARTA RÁÐAMENN UNDAN FJÁRSKORTI VIÐ AÐ HALDA INNVIÐUM LANDSINS VIÐ......


mbl.is 8,5% aukning í virðisaukaskattskyldri veltu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

STENST SVONA LAGAÐ GAGNVART JAFNRÉTTISREGLU STJÓRNARSKRÁRINNAR???

Er hægt að taka eina starfsgrein svona út úr jöfnunni og styrkja sérstaklega til náms?  Hvað með hjúkrunarnema en það er óumdeilt að það vantar sárlega fleiri hjúkrunarfræðinga til starfa???????


mbl.is Kennaranemar fái styrki hjá LÍN
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EN ÞAÐ ERU ENGIN RÖK NEFND FYRIR "SÖLU" BANKANNA...........

Bjarni segir bara að það EIGI að selja bankana en getur ekki með nokkru móti nefnt nein almennileg rök fyrir máli sínu.  HVERS VEGNA ER ÞAÐ ALVEG NAUÐSYNLEGT AÐ RÍKIÐ SELJI BANKANA?  Halda menn kannski að það sé orðið það langt frá síðustu einkavinavæðingu bankanna að allir séu búnir að gleyma hvernig hún fór fram?  Menn eru kannski búnir að gleyma því þegar Landsbankinn var "seldur" síðast til Björgúlfsfeðga, þeir urðu fyrir valinu vegna þess að þeir kæmu með svo mikla peninga inn í landið frá því að þeir seldu STOLNU bjórverksmiðjuna úr landi.  En svo kom upp úr kafinu að þeir tóku lán í Búnaðarbankanum fyrir öllu saman og það sem meira var ÞEIR BORGUÐU LÁNIÐ ALDREI.  KANNSKI VAR ÞAÐ BARA AFSKRIFAÐ????????


mbl.is Ríkið selji Íslandsbanka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞAÐ VERÐUR NÁTTÚRULEGA ALLT ANNAÐ LÍF OG BETRA AÐ VERA VEÐURTEPPTUR Í VAÐLAHEIÐARGÖNGUNUM

Því það er vel þekkt að þegar Víkurskarðið er ófært þá er Fnjóskadalurinn ófær líka og bullandi snjóflóðahætta í Ljósavatnsskarði, en það er í það minnsta hiti í Vaðlaheiðargöngunum..........


mbl.is „Bros á hverju andliti“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EN DETTUR HENNI EKKI Í AÐ RÍKISSTJÓRNIN KOMI MEÐ ALMENNILEGT ÚTSPIL TIL ÞESS AÐ LIÐKA FYRIR SAMNINGUM??

En hvernig skyldi eiginlega standa á því að ferðaþjónustan er "sérstaklega" viðkvæm fyrir öllum kostnaðarbreytingum?????


mbl.is Verkföll ekki óskastaða nokkurs manns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Föstudagsgrín

Jónu var boðið í kvöldverð til Sigga sonar síns og herbergisfélaga hans Maríu. Á meðan á máltíðinni stóð tók mamma eftir því hve falleg María var. Eftir því sem leið á kvöldið varð mamma sannfærðar og sannfærðari um að eitthvað væri meira á milli Sigga og Maríu en bara vinskapur.

Siggi áttaði sig á hugsunargangi móður sinnar og sagði; "Mamma, ég veit alveg hvað þú ert að hugsa, en það er ekkert ...á milli okkar Maríu, við erum bara herbergisfélagar."

Viku síðar og eftir mikla leit sagði María við Sigga: "Ég hef verið að leita
að sykurkarinu í marga daga en ég hef ekki séð það síðan mamma þín var hjá okkur. Heldurðu nokkuð að hún hafi tekið það?".

"Ég efa það, en ég skal senda henni tölvupóst og spyrja", sagði Siggi.

"Elsku mamma, ég er ekki að segja að þú hafir tekið sykurkarið þegar þú varst í heimsókn og ég er ekki að segja að þú hafir ekki tekið það. En
staðreyndin er sú að við höfum ekki fundið sykurkarið síðan þú varst hjá okkur í mat."

Kveðja, Siggi

Nokkrum dögum síðar barst Sigga svar frá mömmu.

"Elsku sonur, ég er ekki að segja að þú sért að sofa hjá Maríu og ég er
heldur ekki að segja að þú sofir ekki hjá Maríu. En staðreyndin er sú að ef María svæfi í sínu eigin rúmi, hefði hún fundið sykurkarið."

Kveðja, mamma


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband