STRÁKARNIR BÁRU ÞAÐ ALVEG UTAN Á SÉR AÐ ÞEIR VOR EKKERT MEÐ HUGANN VIÐ LEIKINN

Og því fór sem fór.  Þeir spiluðu alveg þokkalega á köflum en þeim var alveg fyrirmunað að "klára" sóknirnar.  Þeir voru þungir, seinir í að taka sér stöður á vellinum, sendingarnar voru svona þokkalegar yfirleitt en þessi  tvö mörk, sem Rúmenar fengu má segja gefins, komu eftir "arfaslakar" sendinga og Rúmenarnir þökkuðu pent fyrir sig með marki í bæði skiptin og í minnsta kosti tvö skipti sluppum við með "skrekkinn". R´nar Alex var eiginlega eini maðurinn í Íslenska liðinu sem var með einhverju lífsmarki og ekki verður honum kennt um þessi tvö  mörk sem við fengum á okkur. En skelfilegast fannst mér horfa upp á leikinn hjá Guðlaugi Viktori Pálssyni, fyrra markið skrifast alfarið á hann, ég bara þekkti manninn ekki aftur hann hafði áður átt hvern stórleikinn á fætur öðrum með A landsliðinu en í dag var hann varla skugginn af sjálfum sér.  Arnar Þór þjálfari átti fyrir löngu að vera búinn að skipta honum útaf, því það kom í ljós strax á fyrstu mínútum leiksins að eitthvað mikið væri að hjá honum og fyrst honum var ekki skipt út í hálfleik, var algjörlega ljóst að það hefði átt að gera það eftir fyrra mark Rúmenanna.  ÞAÐ ER ORÐIÐ NOKKUÐ LJÓST AÐ ARNAR ÞÓR ER EKKI SÁ ÞJÁLFARI, SEM  VANTAR TIL  AÐ STÝRA A LANDSLIÐINU ÞAÐ SÝNDI HANN MEÐ SÍNU STÆRSTA GLAPPASKOTI ÞEGAR HANN "LOSAÐI SIG VIÐ" LARS LÄGERBACK EINA MANNINN SEM HEFUR GERT EITTHVAÐ AF VITI MEÐ A LANDSLIÐIÐ.........


mbl.is „Leikur sem við áttum aldrei að tapa“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Þjálfarinn sagði fyrir leikinn að úrslitin skiptu ekki öllu máli heldur bara að strákarnir léku vel. Ég hélt að aðalmál allra þjálfara væri að vinna leiki og ekkert annað. 

Sigurður I B Guðmundsson, 3.9.2021 kl. 10:41

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Jú Sigurður.  Mér hefur nú ekki fundist neitt mjög merkilegt, sem þessi þjálfari hefur sagt og gert hingað til og mér finnst mjög fátt benda til þess að það breytist nokkuð í framtíðinni.  Ég held að það sé orðið fullreynt með þennan mann í þjálfarastöðu landsliðsins.  EN EITT FINNST MÉR AÐ ÞURFI AÐ KOMA FRAM "ÆTLI RÚMENARNIR GREIÐI ÞESSUM KVENSUM FYRIR AÐ VEIKJA LANDSLIÐ ÍSLANDS FYRIR LEIKINN"????????

Jóhann Elíasson, 3.9.2021 kl. 10:55

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Ánægjulegt að sjá góða takta Guðmundar Þórarinssonar leikmanns New York City í leiknum, en ég bíð enn eftir skýringum á því hvers vegna Arnór Ingvi Traustason leikmaður í byrjunarliði New England Revolution sem er langefst í bandarísku atvinnumannadeildinni, var ekki valinn í landsliðshópinn fyrir þetta verkefni.

Guðmundur Ásgeirsson, 3.9.2021 kl. 17:06

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Guðmundur, ég verð nú að segja eins og er að það var fátt í leik strákanna okkar, sem gladdi augað í þessum leik og ég segi það með þér að það var nokkuð mikið í gjörðum þjálfarans sem hann þarf að útskýra betur og ég held að hann sé bara búinn að "moka" yfir sig.......

Jóhann Elíasson, 3.9.2021 kl. 20:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband