ÞAÐ HLÝTUR AÐ NÁLGAST HEIMSMET AÐ VINNA LEIK EN SKORA EKKERT MARK

Því miður verð ég að viðurkenna það, þótt það sé mjög erfitt fyrir svona eldheitan "Poolara" eins og mig, að Liverpool var bara miklu lakari aðilinn í þessu leik og áttu bara engan veginn skilið að vinna.  Vonandi fara þeir að taka sig saman í andlitinu ef þeir ætla að  eiga einhvern möguleika á titlinum þetta árið......


mbl.is Sá fjórði til að skora tvö sjálfsmörk í sama leiknum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HEFUR ALÞINGI, SAMKVÆMT STJÓRNARSKRÁNNI, FJALLAÐ UM ÞESSI KAUP??????

Eða var gerður sá fyrirvari við samninginn AÐ ALÞINGI ÆTTI EFTIR AÐ FJALLA UM MÁLIÐ OG VEITA SAMÞYKKI SITT?  Eru kannski fleiri mál sem eru svona á "GRÁU SVÆÐI" og má segja að séu heimilislaus.  ÉG HÉLT AÐ ALLIR SEM TAKA SÆTI Á ALÞINGI SVERJI EIÐ AÐ STJÓRNARSKRÁNNI?  Mér er ekki kunnugt um hvort eingöngu nýliðar á Alþingi sverji þennan eið eða hvort ALLIR þingmenn geri það en ef svo er að einungis nýliðar geri þetta, þá er full ástæða til að "eldri" þingmenn rifji þennan eið einnig upp.....


mbl.is Ríkissjóður kaupir 93% eignarhlut í Landsneti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

INNVIÐARÁÐHERRA OG FLEIRI ÆTLUÐ AÐ "LÆRA" AF VIÐBRÖGÐUNUM EÐA RÉTTARA SAGT VIÐBRAGÐSLEYSINU VIÐ FYRSTA VEÐURHVELLINUM RÉTT FYRIR JÓLIN......

En sennilega eru þeir ekki enn sestir á skólabekk því það eru enn jólafrí hjá ÖLLUM menntastofnunum landsins.  Í það minnsta er allt jafn ófært og áður og ekkert hefur breyst í snjómokstursmálum hér á landi......


mbl.is Líklega mesti snjór í áratugi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÉG VEIT EKKI BETUR EN AÐ LIVERPOOL HAFI UNNIÐ LEIKINN EN EKKI FUNDIÐ HANN....

Liverpool átti fyrri hálfleikinn og sundurspiluðu Villa menn algjörlega og það skilaði verðskulduðum tveimur mörkum.  Villa menn reyndu aðeins í seinni hálfleik og skoruðu þá eitt mark, sem varð til að koma smá hreyfingu á blóðið í þeim en það slokknaði alveg á þeim við þriðja mark Liverpool og það má bara kalla það að þeir hafi sloppið með skrekkinn...............


mbl.is Liverpool vann fjörugan leik á Villa Park
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

JÓLAKVEÐJUR

Bestu óskir til allra sem ég þekki um Gleðileg Jól og farsæld á komandi ári og allra sem hafa komið hér við á blogginu hvort sem þeir hafa skilið eftir athugasemdir eða ekki....


mbl.is Skýr skilaboð það!
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HVERS VEGNA ER HÚN AÐ TJÁ SIG UM ÞETTA????????????????

Ég get ekki með neinu móti séð að þetta komi henni nokkurn skapaðan hlut við.........


mbl.is „Kannski dálítið ríflegt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NÚ Á AÐ "DÆLA" ÚTRUNNU GLUNDRI Í FÓLK.........

Nú þegar almenningur er farinn að sjá í gegnum "bóluefnaplottið", þá sjá bóluefnaframleiðendur fram á að hagnaðurinn minnki og grípa þá til þess ráð að "LENGJA" líftíma þessara svokölluðu "bóluefna" til að minnka afföllin.  EN HVER ERU RÖKIN FYRIR ÞVÍ GEYMSLUÞOL "BÓLUEFNANNA EYKST????????????


mbl.is Geymsluþol Covid-19 bólefnis lengist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÆTLI "SVIKARINN" SÉ LOKSINS KOMINN MEÐ BAKÞANKA VEGNA SVIKANNA VIÐ KJÓSENDUR??

Þá segi ég bara "batnandi mönnum er best að lifa".  En spurningin er: "gerir hann eitthvað í því"?????????


mbl.is Einar: Viðbragð borgarinnar of vanmáttugt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

RÉTTLÆTIÐ NÁÐI FRAM AÐ GANGA - AÐ LOKUM..............

Argentína átti hreinlega leikinn í rúmlega 78 mínútur, þar til dómarinn færði Frökkunum ódýra vítaspyrnu, á silfurfati og hleypti þeim þar með inn í leikinn.  Þeir þökkuðu fyrir sig og skoruðu úr "GJAFAVÍTINU" og settu aukinn kraft í sinn leik og náðu svo að skora jöfnunarmarkið og tryggðu sér þar með framlengingu.  Í framlengingunni skoruðu bæði liðin eitt mark og hverjir aðrir en Messi og MPappe skoruðu?  Það var svo í vítaspyrnukeppninni sem Argentínumenn tryggðu sigurinn,  fyrst varði Martinez (markvörður Argentínu) eitt víti og síðan brenndu Frakkar af einu víti og þar með voru Argentínumenn búnir að tryggja sér heimsmeistaratitilinn.     En hvað var hún Edda Sif Pálsdóttir eiginlega að hugsa þegar hún valdi sér kjól til að klæðast við þetta tækifæri??????????? 


mbl.is Argentína heimsmeistari í þriðja sinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

MAROKKÓMENNIRNIR VORU BARA "SPRUNGNIR" Á LIMMINU..........

Þeir höfðu ekki þá breidd í liðinu sem þurfti til svo þeir gætu náð lengra.  Svona framganga hefur sést áður og í tónlistarheiminum er þetta kallað "ONE HIT WONDER".  Króatarnir gerðu bara það sem þeir þurftu að gera en það var bara að spila af skynsemi og hleypa Marokkómönnunum ekki of langt.  Það gekk að mestu leiti upp og Króatarnir létu Marokkómennina skilja það að þeir kæmust ekki lengra en í fjórða sætið á HM. Svo er spurning hvort þeir verði meira á HM í framtíðinni????????


mbl.is Króatía fær brons
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

LOKSINS MAÐUR MEÐ "SMÁ" RAUNVERULEIKATENGINGU...............

Þetta er ágætis byrjun hjá honum en að mestu leiti er þetta "sýndarmennska" því það er ekki hægt að já að 200.000 krónu LÆKKUN geri mikið því ekki er hann með nein "hungurlaun" og 2 - 4% aðhaldskrafa á allar deildir er ekkert annað en lélegur brandari.......


mbl.is Bæjarstjórinn lækkar laun sín
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞETTA KALLAR MAÐUR AÐ HÆTTA Á TOPPNUM..................

Það var ótrúlega magnað að fylgjast með manninum í leiknum á móti Króatíu og enn ótrúlegra að ann skyldi EKKI vera kosinn maður leiksins.  HANN KOM AÐ ÖLLUM MÖRKUM LIÐSINS.  Hann skoraði fyrsta mark leiksins, menn eru ekki sammála um hvort dæma hafi átt vítaspyrnu þarna en reglurnar eru alveg skýrar MAÐURINN VARFELLDUR INNAN TEIGS OG ÞÁ ER VÍTASPYRNA DÆMD og reglurnar eru alveg skýrar svo geta menn verið ósammála um hvort það sé réttlátt.  Hann átti stoðsendinguna á Alvares þegar annað markið var skorað og svo þetta ótrúlega spil hans upp hægri kantinn, alveg frá miðju og inn í teig Króatanna og endaði á því að gefa boltann fyrir markið og ekkert annað fyrir Alvares að  gera annað en að "SKÓFLA" boltanum yfir marklínuna, sem hann og gerði.  EF ÞAÐ ER EITTHVAР RÉTTLÆTI TIL Í HEIMINUM ÞÁ EIGA ARGENTÍNUMENN AÐ VERÐA HEIMSMEISTARAR OG MESSI LYFTIR STYTTUNNI FRÆGU.....


mbl.is Úrslitaleikurinn síðasti leikur Messi á heimsmeistaramóti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EKKI ER ANNAÐ AÐ SJÁ EN AÐ ÞESSI SAMNINGUR SÉ MUN LAKARI EN SÁ SEM SGS GERÐI...

Nú hlýtur RÚV að taka Sólveigu Önnu Jónsdóttur í viðtal og "sauma" rækileg að henni........


mbl.is Skrifað undir 6,75% launahækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

GETUR VERIÐ AÐ ÞEIR SEM MEST BERJAST FYRIR INNLIMUN LANDSINS Í ESB SÉU MEÐ "PENINGAPOKA" HEIMA HJÁ SÉR????

Auðvitað vakna upp spurningar hjá fólki þegar svona fréttir berast....


mbl.is Varaforsetinn með peningasekk heima hjá sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

GEFUR 12,4 MILLJARÐA HAGNAÐUR TIL KYNNA AÐ TEKJUR ÞURFI AÐ AUKAST????

Því miður ég get ekki komið  auga á "NEYÐINA" sem félagið horfir fram á?  Það sem ég sé er ekkert annað  en stjórnlaus græðgi.  Það kemur fram að þeir telji sig þurfa að hækka leiguna vegna hækkunar fasteignamats. Hækkun á fasteignamati leiðir að sjálfsögðu til hækkunar fasteignagjalda og en í því árferði sem við búum við verður ekki annað séð en að hagnaðurinn hefði samt sem áður gert nokkuð mikið meira un að standa undir þeim kostnaðarauka sem verður við fasteignamatshækkunina.  Er kannski "NEYÐIN" að mestu leiti sú að ARÐSEMISKRÖFUR eigendanna eru of miklar????????


mbl.is Alma: „Nauðbeygð til að hækka leiguverð“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"HÆGRI ÖFGAMENN" ÞREYTT HUGTAK BAKBORÐSSLAGSÍÐULIÐSINS.......

Það er alveg merkilegt að heyra þetta "JARM" í þessum VINSTRI ÖFGAMÖNNUM, sem kalla sig fréttamenn í dag.  Svo fá þeir alltaf til sín Stjórnmálafræðing, sem er með merki Samfylkingarinnar stimplað á ennið og sér "poppúlista" í hverju horni til að kommenta á hlutina og svo er Silja Bára fengin sem álitsgjafi í HÆLISLEITENDAMÁLUM og ef eitthvað er aðfrétta af Donald Trump.  En aldrei berast fréttir af "VINSTRI ÖFGAMÖNNUM" eru þeir kannski ekki til??  Mín reynsla er sú að þeir séu þjóðfélögunum jafnvel hættulegri............


mbl.is 25 handtekin, grunuð um að hafa skipulagt valdarán
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VERÐUR EKKI BARA AÐ HÆKKA STÝRIVEXTINA OG ÞAÐ STRAX???????

Svo náttúrulega ef versnar efnahagsleg staða þeirra Evrópuríkja, sem eru í viðskiptum við landið, er þá ekki EINA OG BESTA ráðið til að bregðast við því AÐ HÆKKA STÝRIVEXTINA?????????


mbl.is Áhætta tengd fjármálastöðugleika vaxið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SENNILEGA VAR ÁSTÆÐAN FYRIR STÓRLEIK PORTÚGALSKA LIÐSINS SÚ AÐ RONALDO BYRJAÐI EKKI LEIKINN

Seinni árin hefur mér fundist leikur Portúgalska liðsins snúast of mikið um persónu Ronaldos en kannski minna um fótboltann sem slíkan og Portúgalska liðið hefur ekki fengið að njóta sín sem heild.  En á þessu varð heldur betur breyting í kvöld þegar Ronaldo kom ekki inn á fyrr en seinni hálfleikurinn var um það bil hálfnaður.  Ég man ekki eftir betri leik af hálfu Portúgalska liðsins og þá er ósanngjarnt að velja einhvern einn þar úr því það má segja að allir hafi átt stórleik þar sem  liðsheildin var alveg stórkostleg.  Maður fékk það á tilfinninguna þegar staðan var orðin 5 - 1 að Svissle3ndingarnir væru bara að bíða eftir því að þessari martröð færi að ljúka e svo var ekki alveg raunin og til að "snúa hnífnum í sárinu" skoruðu Portúgalar eitt mark í lokin og enduðu á að vinna 6 - 1 og svei mér þá þeir hefðu getað skorað meira en þeir létu þetta duga..........


mbl.is Ramos með þrennu í stórsigri Portúgals
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ER EITTHVAÐ ANNARLEGT Á BAKVIÐ "LOFTSLAGSRÉTTTRÚNAÐINN"????

Varla sér maður nokkurn miðil án þess að þar sé fjallað um „loftslagsbreytingar og virðist vera einhverskonar „mission“ í gangi hjá „rétttrúnaðarliðinu“ og þá „BAKBORÐSLAGSÍÐULIÐINU“ að telja fólki trú um að þessar loftslagsbreytingar séu af mannavöldum og ef ekki takist að stöðva þessa þróun sé nánast heimsendir í nánd eftir um það bil 8 ár og vestrænar þjóðir verði að vera búnar að gera ráðstafanir  fyrir árið 2030, annars verður „allt búið“.  En Kínverjar og Indverjar fá „frest“ til ársins 2042 til að hætta að menga og að gera ráðstafanir í loftslagsmálum.  En verður ekki dómsdagur genginn yfir þá?  Við erum búin að fá margar „DÓMSDAGSSPÁR“ í gegnum tíðina; til dæmis sagði Al Gore að ALLUR ís á heimskautunum yrði horfinn um aldamótin 2000, vegna hlýnunar af mannavöldum, vissulega hefur ísinn á heimsskautunum bráðnað en alls ekki að fullu en það  er síður en svo af mannavöldum og kem ég að því seinna í þessum pistli.  Hver man ekki eftir því,  þeir sem eru komnir til vits og ára, þegar OZONLAGIÐ var að hverfa og jörðin átti að vera í stórhættu vegna þess að við notuðum svo mikið af ozoneyðandi efnum eins og FREON og AMMONÍAK og eitthvað fleira sem ég get ekki munað hvað var .  Um daginn var haldinn 27 „lokatilraunin“ til þess að bjarga jörðinni frá því að farast vegna loftslagsbreytinga af mannavöldum. Þessi svokallaða ráðstefna var haldin í Egyptalandi og fékk nafnið  COP27 og eins og áður segir var þarna um að ræða 27 „lokatilraunina“ að ræða til að ná samkomulagi um að bjarga jörðinni frá loftslagsvánni, sem hangir yfir okkur.  Eins og við var að búast skilaði þessi „ráðstefna“ engu þrátt fyrir fjölmenni sem mætti og sem dæmi má nefna að Ísland sendi 44 aðila þarna niður eftir (ekki datt neinum í hug að notast við fjarfundabúnað til að minnka „kolefnissporið“ vega fundarins) og það hlálegasta var að á svæðið mætti fólk á 400 EINKAÞOTUM.  Finnst mönnum það líklegt að fólk sem ferðast um á einkaþotum, sé eitthvað á þeim buxunum að spá í og bjarga loftslagsvá?  Svo bárust fregnir af því að ekki hafi fæðan borið þess merki að mikið væri tekið tillit til loftslagsins þarna, dýrindis nautasteikur og kjötvörur voru á boðstólum og ýmsar fæðutegundir, sem eru ekki hollar fyrir loftslagið og sem það lið sem berst mest í þessum málum, segir að sé bannvara.  Ekki er ósennilegt að eftir át á þessum veisluréttum hafi verið sleppt út nokkuð miklu magni af „ÞARMAGASI“, sem er víst mjög slæmt fyrir loftslagið. Og svo til að bíta hausinn af skömminni þá var að birtast í nýjasta hefti „Bændablaðsins“, rannsókn sem þar sem niðurstaðan er sú að það að lotlagsbreytingar af því að moka aftur ofan í skurði, þar sem áður var mýrlendi og eyðileggja þar með ræktarland, hefur EKKERT að segja hvað loftslagið varðar þvert á það sem haldið hefur verið fram.  Og þetta sama á örugglega við á fleiri sviðum?   Margt fleira get ég talið upp en það virðist vera að eitthvert „rétttrúnaðarlið“ nærist á því að reyna að  stjórna okkur sauðsvörtum almúganum með HRÆÐSLU og HRÆÐSLUÁRÓÐRI (eins og covid-19 og svo þessu loftslagskjaftæði og margt fleira hefur verið notað í gegnum tíðina og benti ég aðeins á brot af því fyrr í þessum pistli).

 

EN NÚ Á EFTIR ÆTLA ÉG AÐ KVEÐA ENDANLEGA NIÐUR ÞESSA „LOFTSLAGSHLÝNUN AF MANNAVÖLDUM“ OG SÝNA FÓLKI FRAM Á HVAÐ ER „RAUNVERULEGA“ Í GANGI OG VELDUR SENNILEGA ÞESSUM ÖFGUM Í VEÐURFARINU.:

 

Í nokkur ár hafa ég og nokkrir aðrir hér á „blogginu“, verið óþreytandi við að benda á þá augljósu staðreynd að MIKIL færsla hefur verið á „SEGULPÓLNUM“ allt frá aldamótunum 1899/1900 (sem þau gögn ná til sem ég hef undir höndum).  Þessi staðreynd kollvarpar með öllum  „loftslagsragnarakaspám“ BAKBORÐUSLASÍÐULIÐSINS, sem stendur mest að „loftslagshræðsluáróðinum“ sem er í gangi núna.  Þetta lið virðist hafa mjög góðan aðgang að fjölmiðlum og svo kann það mjög vel að nýta sér samfélagsmiðlana í áróðri sínum og þeir sem ekki taka undir blaðrið í þeim eru umsvifalaust „bannaðir“ í umræðunni, því ekki má fara gegn „RÉTTTRÚNAÐINUM“.  Áhrif staðsetningar Segulpólsins á veðurfar eru mjög vanmetin og mjög litlar rannsóknir eru til hvað þetta varðar og er það mjög miður og er þess valdandi að auðveldara er fyrir „loftslagshamfaraliðið“ og „glóbalistaliðið“ að hafa áhrif á almenning svo hægt sé að „senda“ mikið fjármagn (að lágmarki 50 milljarða ISK næstu fimm árin) í einhverja loftslagssjóði, sem staðsettir eru einhvers staðar úti í heimi og enginn veit hvað verður um nema að sjálfsögðu þeir sem „höndla“ með þessa peninga.

 Færsla Segupólssin 1

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Mynd 1 sýnir færslu Segulpólsins frá árinu 1900 og fram til ársins 2020

 

ATH. „KLIKKIГ Á MYNDINA TIL AÐ STÆKKA HANA 

Þegar þetta er skrifað standa yfir svokölluð PÓLSKIPTI og er „hlýnunin mest á pólsvæðunum.   Það gefur auga leið að það svæði sem Segulpóllinn yfirgefur koma til með að hlýna og er bráðnun Grænlandsjökuls skýrasta dæmið um það og svo að sjálfsögðu bráðnunin á Suðurskautinu.   Myndin sýnir ferðalag Segulpólsins nyrðri frá aldamótum 1899/1900 til ársins 2020 hann stefnir á norðurhluta Síberíu og samkvæmt spám frá NASA þá kemur hann til með að enda í Indlandshafi.  Miðað við gögn, sem ég tíndi upp af „netinu“.  Þegar þetta er skrifað er Segulpóllinn staðsettur suðaustur af hinum reiknaða Norðurpól EN SEGULPÓLLIN NYRÐRI ER HINN RAUNVERULEGI NORÐURPÓLL OG ÞAÐ SAMA GILDIR AÐ SJÁLFSÖGÐU UM SEGULPÓLINN SYÐRI.  Segulpóllinn syðri er alltaf í 180° suður af nyrðri Segulpólnum, þannig að syðri Segulpóllin færist til samhliða nyrðri pólnum.  Sem dæmi um breytingarnar á veðurfarinu má nefna, að á þeim árum sem ég kláraði námið frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík (1981) lá hin svokallaða „lægðabraut“ milli Grænlands og Íslands og fór syðst yfir Ísland en núna liggur „lægðabrautin langt suður af Íslandi og aðallega yfir Írland og suðurhluta Skotlands og kemur að öllum líkindum til með að færast enn meira til.

 

Segulsvið jarðar mynd 1 

 

 

 

 

 

Mynd 2 sýnir staðsetningu Segulpólsins árið 1980 og segulsvið jarðar

 

ATH. „KLIKKIГ Á MYNDINA TIL AÐ STÆKKA HANA

Samkvæmt myndinni þá er segulsvið jarðarminnst við Segulpólana sjálfa en verður sterkara eftir því sem nær dregur miðbaug en fer þá aftur að minka þar af leiðandi eru öll geimför, sem send eru út fyrir lofthjúp jarðar látin yfirgefa segulsvið jarðar sem næst Segulpól jarðar til að spara eldsneyti annars væri einnig möguleiki á því að eldflaugin kæmist einfaldlega ekki útfyrir lofthjúp jarðar.  Síðustu pólskipti áttu sér stað fyrir 780.000 árum.  Vísindamenn eru ekki sammála um hvaða áhrif yfirstandandi pólskipti hafi en flestir eru sammála um að áhrifin séu „minniháttar“ (hvað sem það nú þýðir) . 

Framhjá ÖLLUM þessum staðreyndum hefur verið horft í sambandi við þessi loftslagsmál og vil ég fullyrða að þessar loftslagsbreytingar, sem nú  eiga sér stað, séu að mjög litlum hluta af mannavöldum heldur séu þær af náttúrulegum völdum sem mannkynið hefur enga stjórn á og það hefur afskaplega litla þýðingu að vera að henda fjármunum í hina og þessa sjóði til að koma í  veg fyrir hlýnun.  Að sjálfsögðu eigum við að ganga vel um jörðina og hafa það í huga að við fleygjum ekki rusli á stofugólfið heima hjá okkur.   EN HVERS VEGNA GÖNGUM VIÐ ÞÁ SVONA ILLA UM JÖRÐINA???????


ÞURFTI ALLAN ÞENNAN TÍMA TIL AÐ KOMAST AÐ ÞESSARI NIÐURSTÖÐU??

Ekki furða þótt allt sé á niðurleið á landinu ef enginn þorir að taka ákvörðun og standa við hana, sem ég held að sé stærsta vandamál okkar í dag.......


mbl.is Telja fullreynt að rekið verði kísilver í Helguvík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband