ER ÞÁ VERIÐ AÐ SEGJA AÐ 46% ÞJÓÐARINNAR SÉU EKKI MEÐ FULLA FIMM?

En við verðum að horfa til þess að áróðurinn fyrir INNLIMUN og því sem henni fylgir, er enn til staðar.  Og svo má ekki vanmeta áhrif þess, hvernig spurning er orðuð og á hvaða hátt hún er lögð fram.  Mér er það til efs að fólki hafi verið gerð grein fyrir því, þegar spurningin var lögð fyrir, að yfirgnæfandi líkur væru á því að evran yrði dottin upp fyrir sem gjaldmiðill þegar Íslendingum gæfist kostur á að taka hana upp.


mbl.is Fleiri á móti evru en með
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Það væri gaman að vita hversu stór (eða lítill) hluti þessarra 46% vilji ganga í ESB?

Guðmundur Ásgeirsson, 22.10.2015 kl. 16:09

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er búið að gera ÖLLUM grein fyrir því að evra verður EKKI TEKIN UPP NEMA ÍSLAND GANGI Í ESB.

Jóhann Elíasson, 22.10.2015 kl. 20:17

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Það sem ég er að velta fyrir mér er enmitt hversu margir þessara 46% hafa ekki meðtekið þá augljósu staðreynd.

Guðmundur Ásgeirsson, 22.10.2015 kl. 20:45

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég var alls ekki að gera lítið úr þér eða þinni athugasemd og að sjálfsögðu eru þetta góðar hugleiðingar hjá þér eins og við er að búast í athugasemdum frá þér.

Jóhann Elíasson, 23.10.2015 kl. 08:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband