GETUR ÞAÐ VERIÐ AÐ "SAMHERJAMÁLIÐ" SPRENGI RÍKISSTÓRNINA??????

Það myndi nú koma svolítið á óvart, því það virðist vera full samstaða innan ríkisstjórnarflokkanna um að aðhafast ekkert í því máli og helst að koma í veg fyrir að rannsókn fari fram........


mbl.is Undiralda hjá VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Föstudagsgrín

Þennan sendi mér dyggur lesandi og sendi ég honum bestu þakkir fyrir.

Flugvél flaug í gegnum talsvert óveður. Ókyrrðin var mikil og ekki skánaði ástandið þegar eldingu laust niður í annan vænginn. Ein kona tapaði sér alveg. Hún stóð upp fremst í vélinni og öskraði "Ég er of ung til að deyja!!". Síðan kallaði hún "ef ég á að deyja núna þá vil ég að síðustu mínútur mínar í þessu jarðlífi verði minnisverðar. Er einhver hér í
flugvélinni sem getur látið mér líða eins og sannri konu?"

Það sló á þögn í vélinni og fólkið starði á örvæntingarfullu konuna fremst í vélinni. Þá stóð karlmaður frá Texas upp aftarlega í vélinni. Hann var myndarlegur, hávaxinn, vel vaxinn. Hann gekk rólega fram ganginn og byrjaði að hneppa frá sér skyrtunni, einni tölu í einu. Enginn annar hreyfði sig. Hann fór úr skyrtunni og hnyklaði brjóstvöðvana.  Hún tók andköf...

Þá, sagði hann...

"Straujaðu þessa og færðu mér bjór".


CORBYN ER ÞEKKT PALESTÍNUSLEIKJA OG ÞVÍ KEMUR AUKIÐ GYÐINGAHATUR Í HANS STJÓRNARTÍÐ INNAN VERKAMANNAFLOKKSINS EKKERT Á ÓVART......

En hins vegar kemur aumingjaskapur fréttamanna og það hversu "létt" þeir láta hann sleppa við að útskýra málið á óvart. Ætli það sama væri uppi á teningnum ef hann væri hallur undir málstað Ísraela????????


mbl.is Enga afsökunarbeiðni að fá frá Corbyn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"HÁLFNAÐ ER VERK ÞÁ HAFIÐ ER".............

JÚ AÐ VÍSU SÁ HANN AÐ SÉR OG SAGÐI SIG ÚR EINUM VINSTRI FLOKK VG (WC) EN ÞAÐ ER TIL LÍTILS AÐ FÁ BARA HUGLJÓMUN Í STUTTA STUND EN ÞAÐ ÞÝÐIR AÐ MAÐURINN ER Í MIKILLI HÆTTU Á AÐ GANGA Í ANNAN VINSTRI FLOKK OG ÞVÍ ER ÞAÐ MIKIÐ ATRIÐI AÐ HANN HUGSI VEL SINN GANG ÁÐUR EN HANN GERIR EITTHVAÐ Í FLJÓTFÆRNI.....


mbl.is Andrés segir sig úr þingflokki VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞAÐ ER MIKILL MUNUR Á ÞVÍ AÐ MISSTÍGA SIG EÐ BRJOTA Á SÉR BÁÐAR LAPPIRNAR...

Forráðamenn Samherja VISSU það frá upphafi að það sem þeir voru að gera var ÓLÖGLEGT. þetta er að mestu spurning um SIÐFERÐI og við skulum bara rétt vona að almennt sé "SIÐFERÐISSTANDARDINN" á HÆRRA plani en þarna kemur fram......


mbl.is „Má ekki verða þannig að enginn megi misstíga sig“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HVORT RÍKIÐ, NAMIBÍA EÐA ÍSLAND, SKYLDI NÚ VERA BANANALÝÐVELDI????

Namibíumenn ráku tvo ráðherra úr embætti og nú berast fréttir af því að annar þeirra hafi verið handtekinn.  En á meðan gengur allt sinn vanagang á Íslandi.  Með hverjum deginum sem, líður án nokkurra aðgerða af hendi stjórnvalda, verða hlutirnir bara vandræðalegri og spillingin innan kerfisins verður augljósari........


mbl.is Íslendingar ættu að rannsaka spillingu heima fyrir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

BJÓST HANN VIÐ EINHVERJU ÖÐRU??????????

Nú er kominn tími til að hann taki höfuðið út úr ra........ á sér og nái einhverri "smá" jarðtengingu.  Er hann virkilega í algjörri afneitum og svo  víðsfjarri ÞJÓÐINNI að hann sjái ekki hvernig hann og öll ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur, hefur vaðið yfir þjóðina á skítugum skónum, ekki einu sinni, ekki tvísvar heldur marg sinnis.  Og ekki nóg með það heldur var þjóðinni ekki einu sinni sagt frá hvað var í vændum í síðustu "kosningabaráttu".  Að sjálfsögðu gat engan órað fyrir þessu Samherjamáli, en FÓSTUREYÐINGAFRUMVARPIÐ var fyrirséð og ef kjósendur hefðu vitað af því að von væri á því, er ég nokkuð viss um að útkoma kosninganna hefði orðið önnur fyrir VG.  Sama er hægt að segja um ORKUPAKKA ÞRJÚ, þrátt fyrir að, að sagt sé að það mál hafi verið í undirbúningi í stjórnkerfinu í TÍU ÁR, voru afskaplega fáir utan stjórnkerfisins, sem höfðu heyrt á það minnst.  Ég er ansi smeykur um að Sjálfstæðisflokkurinn hefði lent á öðrum stað í kosningunum til Alþingis, ef fólk hefði haft vitneskju um þetta mál og hvernig forysta Sjálfstæðisflokksins "tæklaði" það mál og það í algjörri andstöðu við vilja grasrótar flokksins.  Hefðu kjósendur Framsóknarflokksins gert sér grein fyrir hringlandahætti og undirlægjuhætti forystu flokksins við forystusveit Sjálfstæðisflokksins og VG, er ég viss um að úrslit kosninganna fyrir Framsóknarflokksins hefðu orðið önnur........


mbl.is „Þetta er ekki góð könnun“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HVERSU LENGI SKYLDI SEÐLABANKI EVRÓPU (ECB) GETA BJARGAÐ EVRUNNI???

Sjálfsagt verður sá tími talinn í mánuðum en ekki árum því við bætist BREXIT og þá bætist við enn meira fall evrunnar og ekki eru sjóðir Seðlabanka Evrópu ótæmandi.  Það mætti stundum hald að sjóðir Nasista væru ótæmandi en svo er þó ekki og verður fróðlegt að fylgjast með framvindunni..........


mbl.is Horfum vegna þýskra banka breytt í neikvæðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VERÐUR EINHVER BREYTING Á ÍSLANDI VIÐ ÞAÐ AÐ ÞETTA MÁL KOM UPP????

Eða verða Íslenskir kjósendur alveg sömu sauðirnir áfram, KJÓSA BARA SAMA LIÐIÐ YFIR SIG AFTUR OG AFTUR ALVEG NÁKVÆMLEGA SAMA HVAÐ ÞEIR GERA?  Nú eru rétt tæp tvö ár, ef heppnin er með þá verður tíminn styttri, ætli það sé nægur tími fyrir stjórnarflokkana til þess að "gullfiskaminni" okkar kjósenda verði orðið þannig að við verðum búin að gleyma FÓSTUREYÐINGAFRUMVARPINU, ORKUPAKKA ÞRJÚ OG VIÐBRÖGÐUM RÍKISSTJÓRNARINNAR VIÐ SAMHERJAMÁLINU svo eitthvað sé nefnt?  Eins og flestir ættu að vita, þá eru aðeins TVEIR stjórnmálaflokkar á Alþingi, sem hafa unnið fyrir almenning á þessu kjörtímabili, þrátt fyrir fögur loforð frá hinum stjórnmálaflokkunum hafa þeir EKKI séð ástæðu til  að standa við þau.  ÞVÍ FINNST MÉR AÐ VIÐ SKULDUM ÞESSUM TVEIMUR STJÓRNMÁLAFLOKKUM AÐ ÞEIR EINIR FÁI ATKVÆÐI OKKAR Í NÆSTU ALÞINGISKOSNINGUM.  EN ÞESSIR STJÓRNMÁLAFLOKKAR ERU MIÐFLOKKURINN OG FLOKKUR FÓLKSINS.  Hugsið ykkur vel um þegar þið gangið inn í kjörklefann OG MUNIÐ ÞIÐ ERUÐ EIN ÞAR INNI.......


mbl.is Lýsa yfir „djúpum vonbrigðum“ með ríkisstjórnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞAÐ DAPURLEGASTA ER AÐ "ALLT" STJÓRNKERFIÐ VIRÐIST VERA GEGNUMSÝRT...

Á morgun verður vika frá sýningunni á þætti KVEIKS um þetta svívirðilega og dapurlega mál fór í loftið og hvað hefur eiginlega gerst?  KVAÐRATRÓTIN AF ENGU, stjórnvöld segja að málið sé hjá til þess bærum yfirvöldum, eru þessi yfirvöld tilbúin fyrir þetta verkefni hvað varðar fjármagn og mannskap?  Skattrannsóknarstjóri hefur ekki fengist til að tjá sig um málið og sannast sagna verð ég að viðurkenna að ég man ekki til þess að héraðssaksóknari hafi nokkuð sagt þessu viðkomandi.  Sjávarútvegs- og Landbúnaðarráðherra situr sem fastast og ekki að sjá að neitt fararsnið sé á honum.  Verður þetta eins og "rannsóknin" á HRUNINU, þar sem nokkrir aukaleikarar voru teknir af "lífi" en höfuðpaurarnir sluppu með allt saman og komu svo til baka með ALLAN sinn auð og fengu meira að segja VERÐLAUN fyrir að koma með peninngana AFTUR inn í landið.  ÞANNIG AÐ NÚ ERU ÞEIR MARGFALT AUÐUGRI EN ÁÐUR OG HVER ER SVO LÁTINN BORGA BRÚSANN? JÚ ALMENNINGUR, EN NÚ ER KOMIÐ MIKIÐ MEIRA EN NÓG, VIÐ VILJUM AÐGERÐIR OG ÞAÐ EKKI SEINNA EN STRAX.  Í Namibíu hefur verið gripið til aðgerða en á Íslandi hefur ekkert gerst.  Það var ömurlegt að sjá Forsætisráðherra endurtaka sömu "möntruna" sem hún hefur muldrað frá því að þetta mál kom upp.  Hefur hún ekki enn áttað sig á því að fólk VILL SJÁ AÐGERÐIR EKKI EITTHVAÐ INNIHALDSLAUST BLAÐUR???????


mbl.is Dapurlegt dæmi um arðrán
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EF MENN KALLA ÞAÐ "JÁKVÆTT" AÐ MEGA ÞAKKA FYRIR AÐ VINNA MOLDÓVU, ER MARKIÐ EKKI SETT HÁTT....

Sannleikurinn er sá að eiginlega má segja að aðeins tveir menn hafi verið með fullri meðvitund í þessum leik, það voru Birkir Bjarnason og Mikael Anderson, aðrir í liðinu létu Moldóvana "draga" sig niður á þeirra plan.  Sérstaklega eftir að Moldóvarnir "fengu jöfnunarmarkið að gjöf" fóru þeir að spila "rúgby", sem dómarinn lét að mestu leyti óátalið.  Eftir að Ísland komst aftur yfir lagaðist leikurinn aðeins, hvað gróf brot varðaði (reyndar var leikurinn í heildina svo grófur að það hefði átt að banna hann innan 18 ára).  En Gylfi Þór fór svo alveg með því að KLÚÐRA vítaspyrnunni.  Þetta er önnur vítaspyrnan á stuttum tíma sem hann klúðrar vítaspyrnu og spurning hvort hann þurfi  ekki að fara að æfa sig í að taka vítaspyrnur, það er að segja ef hann á að taka þær á annað borð í framtíðinni........


mbl.is Jákvæður endir á undankeppninni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

AÐEINS FARIÐ AÐ "FALLA Á" SILFRIÐ

Ég setti mig í stellingar til að fara nú að sjá þátt sem virkilega myndi nú "kryfja" til mergjar, það eða þau mál sem hvíla á þjóðinni um þessar mundir.  Eins og við var að búast var aðeins EITT mál í umræðunni og jók það vissulega á væntingarnar, því það ætti nú að vera hægt að komast að einhverri vitrænni niðurstöðu á tæpum klukkutíma.  En viti menn, þarna kom saman hópur af fólki með mismunandi skoðanir og vitsmuni til að koma þeim á framfæri og allur tíminn fór í að karpa um einhver smáatriði, sem í stóra samhenginu komu málinu ekkert við, þannig að úr varð samhengislaust kjaftæði og lítið dæmi má nefna að einum þátttakendunum, í þessum "panelumræðum" fannst það alveg tilvalið að bera saman laun leikskólakennara og forstjóra og eins af eigendum Samherja.  Svo eins og venjulega var "drottningarviðtal" í þættinum við Þorstein Pálsson (reyndar var líka sýndur bútur af viðtali við þennan Norska Seðlabankstjóra, sem Jóhanna og Gunnarsstaða Móri fluttu hingað, til að taka við af Davíð Oddssyni og ég man bara ekki hvað heitir, en ég get ekki skilið hvað það átti að þýða því viðtalið var bæði stutt og ómerkilegt).  En Þorsteinn fór að tala um hversu nauðsynlegt það væri að kvótakerfið skilaði sem MESTU til þjóðarinnar með því að handhafar kvótans greiddu markaðsverð fyrir kvótann.  Þetta fannst mér mjög merkilegt að heyra hann segja, því það var HANN sem heimilaði VEÐSETNINGU KVÓTANS.  Hann stuðlaði að því, ásamt fleirum, að kvótinn var festur í sessi með því að afnema það að kvótinn yrði aðeins til eins árs í senn.  Þannig má segja að hann sé GUÐFAÐIR KVÓTANS EINS OG HANN ER Í DAG.  Þó að menn séu í svona "drottningarviðtölum" og það ætti að vera einfalt að fá það fram sem leitað er eftir, þá eru menn bara það "klókir" að þeir fara bara að tala um eitthvað annað og þáttastjórnandinn er bara svo illa að sér í málinu að hinn sleppur með skrekkinn.  Í framtíðinni verður það ekkert forgangsmál að horfa á "SILFRIÐ".......


mbl.is Ekki í mínum höndum að krefjast frystingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Föstudagsgrín

Þennan sendi mér dyggur lesandi og sendi ég honum bestu þakkir fyrir.

Eiginkonan sagði við eiginmanninn: „Ég vildi að ég væri dagblað, því þá væri ég í höndum þínum allan daginn.“ Eiginmaðurinn svarar að bragði: „Ég vildi líka að þú værir dagblað. Þá fengi ég nýtt blað á hverjum degi.

 


ÞÁ VERÐUR HÚN AÐ "FRAMKVÆMA" OG GERA EITTHVAÐ "TRÚVERÐUGT" Í MÁLINU.

Fyrir það fyrsta þá á hún að láta henda stjórnendum Samherja (ekki bara Mása heldur ÖLLUM sem eru viðriðnir þetta mál) í gæsluvarðhald og það í MINNST ÞRJÁ MÁNUÐI TIL AÐ VERNDA RANNSÓKNARHAGSMUNI.  Láta "FRYSTA" allar eignir Samherja hér á landi og skipa starfsstjórn yfir fyrirtækið til að koma í veg fyrir að ástandið bitni á óbreyttum starfsmönnum fyrirtækisins.  Það dugir ekkert fyrir hana að blaðra bara eitthvað útí loftið eins og hún gerði í fréttum í hádeginu.........


mbl.is Katrín hefur áhyggjur af orðspori Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞESSI MAÐUR ER ALGJÖRLEGA ÚTI Á TÚNI. ER ÞETTA EKKI ÞAÐ SEM ER KALLAÐ "POPPÚLISMI"?

Veit maðurinn ekki  að á landinu höfum við Fjármálaeftirlitið, sem er nýbúið að sameinast Seðlabanka Íslands, er ekki lágmarskrafa að þessar stofnanir fari að SINNA þeim störfum sem eru þeim ætluð í stað þess að þingmaðurinn fari fram að kerfið verði bara enn frekar þanið út??????????


mbl.is Samherjamálið kalli á betra eftirlit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HVERSU LÁGT GETUR MÁSI LAGST Í "VÖRNINNI"?????

Starfsferillinn hjá þessum manni er fyrir bý og heldur Mási virkilega að hann geti kjaftað sig á þennan hátt út úr þessu?  Það vita það allir sem eitthvað þekkja til Samherja og vinnubragðanna á þeim bæ, ð það er Mási sem heldur utan um ALLT þar og ekki er keyptur mjólkurlíter þar inn, án þess að Mási samþykki þau kaup og stjórnar hann öllu með harðri hendi.  Þannig að þessi málsvörn hans er í hæsta lagi aumkunarverð og lýsir því að mestu leyti hversu auðvirðilegur karakter maðurinn er...........


mbl.is Jóhannes hafi flækt Samherja í ólögmæt viðskipti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

""STÓR -> STÆRRI -> STÆRSTUR""

Það er bara ósköp einfalt: "Fyrirtæki geta ekki orðið svona stór og mikil eingöngu á heiðarlegan hátt".  Og ég er hissa á því að það skuli ekkert hafa gerst varðandi Samherja fyrir löngu síðan en alltaf hefur forstjórinn getað komist hjá "skakkaföllum" en það er mér hulin ráðgáta hvernig hann ætlar að "kjafta sig út úr þessu"......


mbl.is Bendla Samherja við spillingu og mútur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

BARA BYRJUNIN OG SVO ER EFTIR AÐ TAKA TILLIT TIL "FRAMÚRKEYRSLUNNAR"....

Þó svo að viðhengd frétt fjalli nú minnst um nýjan Landsspítala, þá er full ástæða til þess að nú verði staldrað við og aðeins farið yfir farinn veg.  Eftir því sem hefur liðið á framkvæmdirnar, berast fleiri og fleiri "hryllingssögur" frá Landspítalanum við Hringbraut, þessar sögur hljóta að hrifa eitthvað við fólki.  Starfsfólk er orðið úttaugað og þreytt á sprengingum og jarðvegsvinnu og svo bætist undirmönnunin við og þrengslin sem eru alveg gífurleg.  Svo bætist við að sjúklingarnir verða fyrir alveg gífurlegu ónæði, vegna yfirstandandi framkvæmda.  Ekki man ég hversu mikill tími er áætlaður í þessa framkvæmd EN ÉG HELD ÉG GETI ALVEG FULLYRT ÞAÐ AÐ ÞESSAR FRAMKVÆMDIR KOMA TIL MEÐ AÐ TAKA FIMM TIL TÍU ÁRUM LENGRI TÍMA EN ÁÆTLAÐ ER.  VÆRI EKKI RÁÐ AÐ LÁTA STAÐAR NUMIÐ NÚNA OG GERA ALMENNILEGA ÚTTEKT Á VERKINU OG GANGI ÞESS OG KOSTNAÐI HINGAÐ TIL OG VÆRI EKKI BARA JAFNVEL RÁÐ AÐ HÆTTA VIÐ VERKIÐ OG BYRJA AÐ REISA NÝJAN LANDSPÍTALA Á NÝJUM STAÐ????????


mbl.is Afkoman versnar um 10 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

MEIRI ÞVÆLAN Í MANNINUM...........

Það er langt síðan að það var ljóst að fimm til tíu milljarðar hefði verið eins og krækiber í tunnu í þessa hít sem komin var og svo er líka annað sem menn gleyma að sú gífurlega eyðsla sem var í gangi þarna, hefði bara haldið áfram og "björgunin" hefði kostað tugi milljarða og hver hefði ávinningurinn fyrir þjóðfélagið verið???  Vissulega hefði ávinningurinn fyrir hann orðið nokkuð mikill en hver hefði ávinningurinn fyrir þjóðarbúið verið?????


mbl.is Hagkvæmara fyrir ríkið að bjarga WOW air
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞETTA ER STAÐFESTING Á ÞVÍ AÐ ÞJÓÐIN VILL AÐ RÍKISSTJÓRNIN FARI EFTIR NIÐURSTÖÐU ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLUNNAR 2016

Menn eru orðnir þreyttir á "hringlandahætti þingsins og hvernig þingið og þingforseti hafa haldið þjóðinni í gíslingu innan ESB og þar með komið í veg fyrir BREXIT.  Og þar með "lengt" í hengingarólinni fyrir ESB....


mbl.is Stórsigur Boris Johnson í kortunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband